Maí
Ungar fimleikadrottnigar hjá Sindra
Ungar fimleikadrottnigar hjá Sindra

04.05.2004 Maí

Fimleikdeildin fær góða gjöf

Í síðustu viku var Fimleikadeild Sindra færð góð gjöf. Það var Öryggisvarslan sem kom færandi hendi og færði deildinni stórt Trampólín. Bára Ólafsdóttir þjálfari hjá fimleikadeildinni sagði að fimleikadeildin væri mjög þakklát fyrir þessa gjöf sem kæmi til með að nýtast deildinni vel bæði faglega og svo er þetta líka alveg ótrúlega skemmtilegt áhald sagði Bára. Við erum ofsalega ánægð með þessa gjöf og ánægð með að Öryggisvarslan skuli hugsa svona vel til okkar. Næst á dagskránni hjá fimleikadeildinni er sýning hjá krökkum 6 – 9 ára og verður sú sýning mánudaginn 10. maí kl. 17:00 og auðvitað vonumst við eftir því að fólk fjölmenni og sjái hvað krakkarnir hafa verið að gera í vetur sagði Bára.

Það er nóg að gera í fimleikunum því 22. maí fara 10 ára stelpur og eldri á Trompmót í fimleikum sem er keppni í hópfimleikum og verður mótið haldið á Akranesi. Vetrarstarfinu líkur síðan með innanfélagsmóti.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica