Maí
Greiðfært í allar áttir
Greiðfært í allar áttir

03.05.2004 Maí

Heldur dregur úr vindi

Í norðan rokinu sem gengið hefur yfir landið hefur víða verið lítið ferðaveður. Þannig var ekkert ferðaveður um Hvalnes- og Þvottárskriður í gær og í nótt og þurfti vegagerðin að hreinsa töluvert grjót úr skriðunum í morgun. Þar fyrir austan er vindur einnig mikið að ganga niður og færð góð. Vegagerðin þurfti að hreinsa snjó af Öxi en því verki er nú lokið og færð þar ágæt en þó eru smá hálkublettir. Hálka er á Fagradal og Fjarðarheiði. Á leiðinni frá Hornafirði til Reykjavíkur er veður skaplegt. Við Kvísker er N 12 m/s og slær upp í 18 m/s í hviðum en fer lægjandi. Við Lómagnúp er er NA 10 m/s og á Mýrdalssandi er NNV 10 m/s.

Þegar komið er vestur fyrir Mýrdalssand lægir vind mikið og hæglætisveður er á öllu suðurlandi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica