Maí
Ágætt gluggaveður á Hornafirði
Ágætt gluggaveður á Hornafirði

03.05.2004 Maí

Kuldalegt á landinu

Um helgina hvarf sumarið og hálf vetrarlegt varð á Hornafirði. Ekki snjóaði samt á okkur eins og sumstaðar annarstaðar á landinu, en mjög stíf norðanátt var og heldur lítið úti veður. Klukkan 6 í morgun var NV 13 m/s í Akurnesi og hitinn rétt skreið yfir frostmark og gerir Veðurstofan ráð fyrir sama veðri næsta sólarhringinn og hitinn 0 – 8 stig. Vonandi er þetta síðasta kuldakastið á þessu vori og að því loknu taki við sól, sumar og hiti. Reikna má með að þetta kuldakast haldist fram í miðja viku en þá er von um heldur hlýnandi veður.

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðanátt og víða él á miðvikudag, en bjart með köflum sunnan til. Norðaustanátt með snjókomu eða slyddu á fimmtudag, en rigningu sunnanlands. Austlæg eða breytileg átt og víða væta frá föstudegi til sunnudags. Svalt veður á miðvikdag, en síðan heldur hlýnandi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica