Steinunn dró Júlíus Garðar til Hornafjarðar í dag.
Júlíus Garðar ÁR 111 var út af Ingólfshöfða þegar gírinn hjá þeim bilaði. Steinunn SF10 var á veiðum um þrjár mílur frá og kom hún bátnum til hjálpar og tók hann í tog til Hornafjarðar. Við vorum að klára að draga trossur við Höfðann og áttum trossur austar en létum þær eiga sig og héldum með bátinn í land sagði Ægir Birgisson skipstjóri á Steinunni. Siglingin í land tók 6-7 tíma og gekk vel. Við fórum bara rólega því það var svo hvasst og við Hrollaugseyjar slitnaði báturinn aftanúr en vel gekk að ná honum aftur. Mjög hvasst var út af Hvanney og aftur þurfti að laga tógið en ósinn var sléttur og þetta gekk allt prýðilega sagði Ægir.
Júlíus Garðar hefur verið keyptur til Stöðvarfjarðar og er hann á leið austur frá Hafnarfirði. Gert verður við gírinn á Hornafirði. Þegar búið verður að landa aflanum úr Steinunni fara þeir að vitja um trossurnar sem eftir voru. Ægir segir að veiði í netin sé svona þolanleg en ekkert meira en það.





Skrifa athugasemd