Nýr veitingarskáli “Frú María” opnar í Nesjum
Nesjaskálinn hefur nú tekið miklum stakkaskiptum frá því sem áður var, þar er ekki lengur matvöruverslun heldur kominn snyrtilegur og aðlaðandi veitingastaður með tveim veitingastofum. Eigendur veitingasölunnar "Frú Maríu" eru hjónin María Rós Valgeirsdóttir og Þorleifur Guðjónsson sem bæði eru að vestan, hún úr Dýrafirðinum og hann úr Reykhólasveitinni. Þetta er annað sumarið sem þau eru í Nesjaskálanum. Við áttum leið hér hjá í júní í fyrra og þá var allt lokað og ekkert um að vera svo þá datt okkur í hug að hér væri tækifærið, hringdum í Esso og það samdist um að við fengjum aðstöðuna hér segir María. Við vorum bara með hjólhýsi hér sem bústað í fyrra en nú höfum við íbúð og veitingaskálinn er að komast í það horf sem við viljum. Við vonum að fólki líki vel við þessar breytingar og finnist notalegt að koma og fá sér kaffi sopa og annað sem í boði er.
María og Þorleifur keyptu húsið á Hamraborg á Berufjarðarströnd og fluttu þangað um áramót 2001-2002 og búa þar. Þau eru engir nýliðar í veitingarekstri voru m.a. með hótel Öskju á Eskifirði og Bjarkarlund. Þegar fréttamaður leit við í Nesjaskála í gærkvöldi voru María og Þorleifur ásamt börnum þeirra Ylfu Rós og Jóhanni Dag að leggja síðustu hönd á verkið og ganga frá öllu fyrir opnunina í dag. Veitingar eru stílaðar uppá að fólk þurfi ekki að bíða eftir þeim og segir María, lengstan tíma muni taka að steikja hamborgarana. Meðal þess sem er á matseðlinum er ítalskt kaffi og venjulegt uppáhellt kaffi, súpa og réttur dagsins, smörrebrauð, samlokur, nýbakað brauð, ís, hamborgarar o.fl.
Þá er bara að drífa sig og líta við hjá Frú Maríu, veitingaskálanum við þjóðveg eitt.





Skrifa athugasemd