Maí

Ingólfshöfði (Mynd Einar Sig.)

Útlendingar hrifnir að lundaskoðun í Ingólfshöfða - 31.05.2004 Maí

Skoðunarferðir í Ingólfshöfða eru mikil upplifun og þeim sem þangað fara hefur fjölgað ár frá ári. Sigurður Bjarnason í Hofsnesi byrjaði að fara með ferðafólkút í Ingólfshöfða árið 1991 og notaði og notar enn kerru aftan í dráttarvél til að flytja fólk út í höfðann. Sigurður og Einar sonur hans stofnuðu fyrirtækið Öræfaferðir sem núna er með 2 til 3 ferðir á dag, ef veður leyfir, út í Ingólfshöfða yfir ferðatímann. Þetta byrjaði í vor á föstudaginn langa og við erum búnir að fara nokkuð margar ferðir með fólk út í höfðann segir Sigurður og er það aðallega lundinn sem er skoðaður. Útlendingarnir sækjast eftir að skoða lundann um varptímann en þarna verpa um 50 þúsund lundapör. Geldfuglarnir (lundarnir) eru þessa dagana að koma í höfðann en þeir eru miklu seinna á ferðinni en varpfuglinn, þeir eru mikið gæfari svo hægt er að komast að þeim í svona meters færi. Sigurður segir að lundinn byrji ekki að verpa fyrr en hann er orðinn 5-8 ára, einu eggi hverju sinni, en talið er að lundar verði 40 til 60 ára gamlir Lesa meira
 
Pálína og Ólafur í Svínafelli við sundlaugina

Brjálað að gera í Svínafelli í Öræfum - 31.05.2004 Maí

Það er búið að vera brjálað að gera hér núna undanfarið sagði Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi í Svínafelli í Öræfum, þegar hann var spurður frétta fyrir hvítasunnuhelgina. Svefnpokapláss í Svínafelli voru full og ætluðu flestir sem þar voru að freista þess að ganga á Hvannadalshnúk. Veðrið á laugardeginum mun þó hafa sett áætlun fjallgöngumanna úr skorðum því leiðinda veður var í austanverðri Öræfasveit og á leiðinni á Hvannadalshnúk hvasst og rigning en í Svínafelli og Skaftafelli var logn, sól og hiti. Lesa meira
 
Unnsteinn Guðmundsson trillukarl

Ánægðir með lögin um krókaaflamarkið - 30.05.2004 Maí

Veiði smábáta á Hornafirði hefur gengið þokkalega í vor og veiði verið allt frá litlu uppí gott, eins og Unnsteinn Guðmundsson trillukarl komst að orði þegar hann var spurður um fiskirí og hann segir að þetta sé heldur lakara en í fyrra. Unnsteinn segir að smábátasjómenn á Hornafirði séu ánægðir með nýju lögin um krókaaflamarkið. “Okkur líst vel á þetta og það eru flestir hér sem hafa verið með krókaaflamark nema eitthvað 3-4 sem verið hafa með sóknardagakerfi. Þeir komast þokkalega frá þessu og ég held að þetta komi betur út fyrir heildina. Það eru margir sem eru með þetta frá 30 til 70 tonna kvóta, misjafnt hvað menn hafa getað keypt sér kvóta”. Lesa meira
 
Skúta og sportbátur heiðruðu smábátahöfnina í morgun

Verður sól og verður blíða! - 28.05.2004 Maí

Nú þegar stór ferðamannahelgi gengur í garð er ekki úr vegi að líta á það sem veðurfræðingar landsins bjóða upp á. Það er öllum ljóst að veðurfræðingarnir stjórna líðan landans frá degi til dags og sumir hafa þá bjargföstu trú að þeir hreinlega stjórni veðrinu, sem er nú kannski svolítið ýkt. Í viku byrjun litu veðurkortin vel út fyrir okkur Hornfirðinga en er líða tók á vikuna breyttust þau hægt og hægt til verri vegar. Auðvitað eru veðurfræðingar ekki óskeikulir og við skulum vona að það rigni aðeins á nóttunni og við fyrsta hanagal brjótist sólin út úr skýjunum og allir uni ánægðir við sitt. Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt, 5-13 m/s og skýjað, hvassast vestantil og víða súld eða dálítil rigning síðdegis. Austan 8-13 og dálítil súld eða rigning í nótt og á morgun. Hiti 8 til 13 stig. Lesa meira
 
Tekist á í boltanum

Leikjanámskeið að hefjast - 28.05.2004 Maí

Þriðjudaginn 1. júní hefjast ævintýra og leikjanámskeið Sindra. Alls verða námskeiðin fimm í sumar. Þrjú leikjanámskeið og tvö knattspyrnu- og frjálsíþróttanámskeið. Ævintýra- og leikjanámskeiðin standa yfir í tvær vikur frá mánudegi til föstudags en boltanámskeiðin í eina. Á námskeiðunum verður m.a. farið á hestbak, í veiðiferð og golf svo fátt eitt sé nefnt. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára og standa yfir milli 9 og 12. Einnig er boðið upp á gæslu fyrir krakkana milli kl. 8 og 9. Fyrsta námskeiðið hefst eins og áður segir 1. júní en það síðasta hefst 9. ágúst. Lesa meira
 
Seyðisfjörður

Ein stærsta sýning ársins á Austurlandi - 27.05.2004 Maí

Sýningin Austurland 2000 fer fram dagana 10. – 13. júní n.k. á Egilsstöðum, nánar tiltekið í Íþróttamiðstöðinni. Á sýningunni munu 120 einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir kynna starfssemi sína. Búist er við um 8 þúsund gestum á sýninguna og þeirra á meðal eru forseti Íslands og forsetafrú, alþingismenn Norðausturkjördæmis, ráðherrar, forystumenn ýmissa hagsmunasamtaka á Íslandi, sveitarstjórnarmenn á Austurlandi og fleiri. Mikil samstaða er á meðal Austfirðinga um að gera sýningardagana ógleymanlega. Fjöldi viðburða verður í fjórðungnum þá daga sem sýningin stendur yfir, dansleikir, sýningar o.fl. Sérstök aðstaða verður fyrir börn og skemmtileg leiktæki verða sett upp á sýningarsvæðinu. Lesa meira
 
Komin í sumarfrí

Skólaslit í Grunnskólum Hornafjarðar - 27.05.2004 Maí

Á morgun föstudag verður Grunnskólum Hornafjarðar slitið og krakkarnir fá þar með langþráð sumarfrí. Foreldrar sem eiga börn í flestum eða öllum skólunum munu hafa næg verkefni á morgun en Grunnskóli Hornafjarðar er þrískiptur og því verða þrenn skólaslit á morgun. Nesjaskóli ríður á vaðið og verða skólaslit skólans haldin í Mánagarði kl. 10:00. Rútur munu leggja af stað frá fyrstu biðstöð kl. 9:30. Klukkan 11:30 verður síðan Hafnarskóla slitið í Hafnarkirkju og skólaslit Heppuskóla verða kl. 14:00 einnig í Hafnarkirkju. Lesa meira
 
Glæsileg sveifla hjá Gunnu Steina

Golfvertíðin komin á fulla ferð - 27.05.2004 Maí

Í gær hófst hjá Golfklúbbi Hornafjarðar mótaröð sem spiluð verður næstu 6 miðvikudaga og gilda fjögur bestu skorin. Þessi mótaröð er nýjung hjá golfklúbbnum og er það Golfverslunin í Dalshrauni, Hafnarfirði sem styrkir þessa mótaröð. Alls mættu 15 kylfingar til leiks í gær, þrjár konur og tólf karlar. Um Hvítasunnuhelgina verður golfkennsla á vegum klúbbsins og er þar um einkatíma að ræða bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Kennari er hin alkunni golfsnillingur okkar Hornafirðinga Halldór Sævar Birgisson. Næsta mót á vegum félagsins er Sparisjóðsmótið sem fer fram laugardaginn 5. júní. Lesa meira
 
Ferðahópurinn við gönguleiðina þar sem snjóflóðið féll (Mynd Einar Sig.)

Snjóflóð féll nálægt gönguleið - 27.05.2004 Maí

Snjóflóð féllu skammt frá gönguleiðinni upp á Hvannadalshnúk sl. sunnudag. Einar Sigurðsson fjallaleiðsögumaður á Hofsnesi í Öræfum var á toppi Hvannadalshnúks með níu manna ferðahóp ásamt öðrum leiðsögumanni. Við heyrðum allt í einu miklar drunur og sáum að snjóflóð hafði farið af stað stutt frá gönguleið okkar upp á Hnúkinn og sáum hvar það hafði farið hlíðina sagði Einar. Ég er búinn að fara þarna um með fólk sl. 10 ár og hef aldrei fyrr séð snjóflóð falla á þessum slóðum. Þetta var mjög nálægt uppgöngu á Hnúkinn þar sem flestir fara upp. Hallinn er ívið brattari þar sem flóðið fór af stað en hluti flóðsins fór úr sama halla og við vorum að ganga upp. Það er því alveg fræðilegur möguleiki á að snjórinn fari af stað þegar menn eru að ganga upp hlíðina. Þetta er sá tími sem helst er hætta á að flóð komist á stað þegar kalt er um morguninn og svo kemur logn og hiti. Lesa meira
 
Krakkar úr Hafnarskóla í námsferð í Öræfum

Nemendur Hafnarskóla á ferð og flugi - 26.05.2004 Maí

Mikið hefur verið um að vera hjá nemendum Hafnarskóla undanfarið, og síðustu dagar skólaársins verið vel nýttir. 7. bekkur lagði í langferð til Vestmannaeyja s.l. mánudag og eru væntanleg heim um kl.19:00 í kvöld. Ferðin hefur gengið vel þrátt fyrir smá sjóveiki í Herjólfi og hafa krakkarnir átt ánægjulega daga. Í dag var farið í pizzuhlaðborð og sund á Selfossi og þaðan lá leiðin að Seljalandsfossi og síðan áfram í austur átt. Á mánudaginn fór 4. bekkur í ferðalag inn í Geitafell. Farið var í langan göngutúr og að honum loknum voru grillaðir hamborgarar og pylsur, farið í leiki og síðast en ekki síst vaðið í læknum. Vatnið þótti frekar kalt en börnin létu það ekki aftra sér og tóku sum sundtökin í köldu vatninu. Sama dag gróðursettu nemendur í 6. bekk Hafnarskóla rúmlega áttahundruð birkiplöntur inn í skólaskógum við Drápskletta. Eftir það fóru allir niður að höfn og fengu að róa á róðrabátum Sjómannadagsráðs. Lesa meira
 
Martin og Orka

Góð mæting á Hestadaginn - 26.05.2004 Maí

Firmakeppni Hestamannafélagsins Hornfirðings fór fram í sl fimmtudag, uppstigningardag við Stekkhól. Ekki viðraði vel og á tímabili leit út fyrir að ekki yrði hægt að halda mótið og hestadag fjölskyldunnar (sem ákveðið var að halda fyrir mótið), vegna mikillar snjókomu sem nær eingöngu var á og við völlinn og var á tímabili nánast ófært inn á völlinn. Ekki létu menn þetta á sig fá og var góð mæting á hestadaginn og voru hátt í 30 börn sem skelltu sér á hestbak og skoðuðu hesthús ofl. Firmakeppninn hófst svo kl. 16:00 og var þá snjórinn nánast allveg tekinn upp og skollið á þetta fína sumarveður. Góð þátttaka var í flestum flokkum nema unglingaflokk þar sem einungis einn knapi mætti. Lesa meira
 
Bara bestar

Jafntefli hjá stelpunum - 26.05.2004 Sindra fréttir

Í gær var fyrsti leikur Sindra á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Meistaraflokkur kvenna atti þá kappi við Fjarðabyggð og fór leikurinn fram á Neskaupstaðarvelli. Lokatölur leiksins urðu 3 – 3, í leik þar sem Sindri hefði hæglega getað hirt öll stigin. Mörk Sindra skoruðu þær Jóna Benný Kristjánsdóttir, Karítas Þórarinsdóttir og María Emilsdóttir. Næsti leikur hjá stelpunum verður 3. júní gegn Hetti og verður leikið á Egilsstöðum. Fyrsti heimaleikur mfl. kvenna hjá Sindra verður 15. júní á Sindravöllum. Í 1. deild kvenna C riðill eru aðeins þrjú lið Sindri, Fjarðarbyggð og Höttur og verður leikin fjórföld umferð. Lesa meira
 
Hólkar settir í Heiðarlæk

Einbreiðum brúm fækkar í Öræfum - 26.05.2004 Maí

Undanfarið hefur verið unnið að lagfæringu einbreiðra brúa í Öræfum. Brúarvinnuflokkur Sveins Þórðarsonar í Vík hefur verið að setja ný brúargólf á Skaftafellsá, Svínafellsá,Virkisá, Gljúfurá, Hólá og Stigá og er því verki að verða lokið. Suðurverk ehf. lauk um síðustu helgi að setja hólk í Heiðarlækinn sem er spölkorn sunnan við vegamótin í Skaftafell og með þeirri framkvæmd hvarf ein af mörgum einbreiðum brúm í Öræfum. Lesa meira
 
Útskrift nemenda á reiðnámskeiði FAS

Átján útskrifast í reiðmennsku frá FAS - 25.05.2004 Maí

Átján nemendur í Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu útskrifuðust í gær með fyrsta stigi í reiðmennsku og ellefu þeirra tóku einnig annað stig. Reiðmennska var kennd í FAS eftir áramót og kennari var Hanný Heiler. Í fyrsta stigi eru 14 kennslustundir og 28 í öðru stigi og er námið bæði verklegt og bóklegt. Námið skiptist í fimm stig. Mikill áhugi er á reiðmennskunáminu og eru nemendurnir sem voru í skólanum í vetur frá 13 ára uppí 53 ára. Hanný segir vel koma til greina að halda áfram með þessi námskeið utan skóla í sumar ef næg þátttaka yrði. Í framhaldsskólanum fá nemendur viðurkendar einingar út á reiðmennskunámið og fimmta stigið veitir réttindi inn í Hólaskóla. Prófdómari við útskriftina var Kristín Kárusdóttir á Kirkjubæjarklaustri. Lesa meira
 
Fellihýsi á nýja stallinum á tjaldstæðinu

Ferðalangar farnir að tylla sér á tjaldsvæðið - 25.05.2004 Maí

Sumarið er komið og fyrstu ferðalangarnir farnir að tylla sér niður á tjaldsvæðið á Hornafirði. Ekki þurfa ferðalangar að kvarta undan veðráttunni þessa dagana og margt sem bendir til þess að blíðan haldist næstu dagana. Þjónustumiðstöð SKG sér um rekstur tjaldstæðisins en það eru hjónin Hugi Einarsson og Sigríður Kapitola Guðrúnardóttir sem eiga og reka það fyrirtæki. Hugi sagði að þetta væri fjórða sumarið sem þau væru með tjaldstæðið og að öllu óbreyttu yrðu þau þarna næstu þrjú árin. Í nótt voru 10 manns sem gistu tjaldstæðið og þrír að auki gistu í smáhýsunum. Þetta var fjölþjóðlegur hópur sagði Hugi, 4 Þjóðverjar, 4 Finnar, 2 Íslendingar og 3 Danir. Lesa meira
 
Hornafjarðarhöfn

Aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði - 25.05.2004 Maí

Aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði var haldinn mánudaginn 24. maí síðastliðinn í fundarhúsi Vökuls. Á fundinum var kjörin ný stjórn félagsins. Úr fráfarandi stjórn gáfu allir kost á sér til áframhaldandi setu nema Þorvaldur Jón Viktorsson sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa sem formaður. Í hans stað var kjörinn formaður Árni Rúnar Þorvaldsson. Lesa meira
 
Úr leik yngri flokka

Neisti á toppnum í 3. deild karla D riðill - 25.05.2004 Maí

Þá er boltinn í þriðjudeild karla D riðils farinn að rúlla. Fyrstu umferð lauk í gær en sjö lið leika í riðlinum þannig að eitt lið situr hjá í hverri umferð og kom það í hlut okkar manna að þessu sinni. Í fyrstu umferðinni fengu Neisti, Einherja í heimsókn og lauk þeim leik með góðum 3 – 0 sigra Neista. Höttur tók á móti Leikni á Eiðavöllum og unnu Leiknismenn leikinn 2 – 0 og skoraði Daði Már Steinsson bæði mörkin. Síðasti leikurinn var viðureign Fjarðarbyggðar og Hugins og fór sá leikur fram á Neskaupstaðarvelli. Huginn vann þann leik 3 – 0 og skoraði Andri Bergmann Þórhallsson öll mörkin. Staðan í riðlinum eftir fyrstu umferð er því þannig að Neisti, Huginn og Leiknir eru með þrjú stig en önnur lið eru án stiga. Lesa meira
 
Halldór, Ragnar og Freyja ásamt tíkinni Trítlu við slökkvibifreiðina

Slökkvibifreið í háar Hæðir - 25.05.2004 Maí

Tekist hefur að aka slökkvibifreið Öræfinga upp í háar Hæðir ( í Skaftafelli). Upp að húsinu á Hæðum er vegurinn mjór, krappar beygjur, brattur og erfiður stórum bílum. Þessi tilraun tókst með ágætum, enda er Halldór Þorsteinsson í Svínafelli sem ók bílnum afburða bílstjóri, og niður komst hann aftur heill á húfi. Að sögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar og ábúanda á Hæðum, líst Halldóri ekki á að aka slökkvibílnum þarna niður brekkuna að vetri til ef hálka eða snjór væri. Þessi prufutúr á bílnum var farin að beiðni Steinþórs Hafsteinssonar slökkviliðsstjóra til að kanna hvort þessi stóri bíll með 12 tonnum af vatni kæmist að bæjunum í Skaftafellsbrekkum ef á þyrfti að halda vegna eldsvoða. Lesa meira
 
Yfirlitsmynd af umræddu svæði

Varnargarðar við Hólmsá - 24.05.2004 Maí

Bæjarráð Hornafjarðar hefur fjallað um mál er varðar Hólmsá á Mýrum og samgönguvandamál við Suðurfjörur. Á fundinum var lagt fram bréf frá Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið um gerð varnargarða austan Hólmsár neðan þjóðvegar nr.1. Þar kemur fram að lausleg kostnaðaráætlun sé um 6 millj.kr. og er farið fram á að sveitarfélagið kosti helming verksins. Halldóra B. Jónsdóttir formaður bæjarráðs segir að unnið sé að undirbúningi málsins og verið sé að senda það í allar þær nefndir í bæjarkerfinu sem þurfa að fjalla um það og samþykkja. Lesa meira
 
Frá Hornafjarðarflugvelli

Sumaráætlun Íslandsflugs tekur gildi í dag - 24.05.2004 Maí

Í dag tekur gildi sumaráætlun Íslandsflugs til Hornafjarðar. Sumaráætlunin gildir frá 24. maí til 31. ágúst. Fjóra daga í viku verður boðið upp á tvö flug á dag, eitt flug verður á sunnudögum en ekkert verður flogið til Hornafjarðar á þriðjudögum og laugardögum. Þeir dagar sem flogið verður tvisvar á dag eru mánudagar, miðvikudagar, fimmtudagar og föstudagar. Fyrra flugið þessa daga er með brottför frá Reykjavík kl. 8:15 og til baka frá Höfn kl. 9:45. Síðara flugið er með brottför frá Reykjavík kl. 16:15 og frá Höfn kl. 17:45. Á sunnudögum verður flogið frá Reykjavík kl. 13:45 og til baka frá Höfn kl. 15:15. Lesa meira
 
Frá útskrift Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (mynd:FAS)

Útskrift hjá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu - 24.05.2004 Maí

Föstudaginn 22. maí fór fram útskrift í Framhaldskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Þetta er í 13. skiptið sem stúdentar eru útskrifaðir frá skólanum. Að þessu sinni útskrifuðust 6 stúdentar og einn sjúkraliði. Eftirtaldir nemendur luku stúdentsprófi: Birna Þrúður Sigurbjörnsdóttir, Bryndís Björk Hólmarsdóttir, Eva Lind Björnsdóttir, Ingibjörg Zophoníasdóttir, Sigursteinn Haukur Reynisson og Þórey Harpa Þorbergsdóttir. Auk þess lauk Valgerður Hanna Úlfarsdóttir sjúkraliðabraut. Dúx var Sigursteinn Haukur Reynisson. Lesa meira
 
Allt tilbúið til brottfarar

Krakkar í Hafnarskóla á leið til Vestmannaeyja - 24.05.2004 Maí

Klukkan 5:45 í morgun lagði 7. bekkur í Hafnarskóla af stað í hina árlegu Vestmanneyjaferð skólans. Það var góður hópur af mjög spenntum börnum sem kom sér fyrir í rútunni hjá Sumarliða tilbúin að takast á við ævintýri næstu daga. Leiðin liggur nú til Þorlákshafnar þar sem Herjólfur verður tekin kl. 11:00. Í Vestmannaeyjum verður hópurinn í umsjá Ferðaþjónustunnar Viking tours og mun m.a. verða farið í bátsferð, söfn bæjarins skoðuð, skotist í sund, ekið um eyjuna og sprangað. Ágætisveður var í Vestmannaeyjum kl. 6:00 í morgun, logn, léttskýjað og hiti 8,0°. Veðurspá fyrir næsta sólarhring gerir ráð fyrir hægri norðlægri átt og léttskýjuðu í dag en suðlægari átt á morgun og þykknar upp. Hiti 7 – 12 stig. Lesa meira
 
Fögur fjallasýn (Mynd:Einar Björn)

Hvar er sumarið - 21.05.2004 Maí

Ekki hefur veðrið leikið við landann undanfarið og ekki lítur út fyrir stórkostlegar breytingar á veðri næstu dagana. Veðurhorfur næsta sólarhringinn gera ráð fyrir suðvestan 5-10 m/s og rigningu eða súld með hita á bilinu 6 – 10 stig. Ef litið er á veðurspá næstu viku gerir Veðurstofan ráð fyrir lítilsháttar súld norðaustanlands á sunnudag en léttskýjað sunnan- og vestanlands. Frá mánudegi til fimmtudags er gert ráð fyrir hægri suðaustlægri eða breytilegri átt, skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti 7 til 16 stig, svalast úti við sjóinn. Lesa meira
 
Við höfnina

Alltaf eitthvað í gangi á Hornafirði - 21.05.2004 Maí

Hornfirðingum á ekki að þurfa að leiðast um þessa helgi frekar en flestar helgir ársins. Í dag eru skólaslit Tónskólans í Austur-Skaftafellssýslu og verða þeir haldnir í Hafnarkirkju kl. 17:30 og eru allir velkomnir til að hlíða á ljúfa tóna nemenda. Stærsti viðburður helgarinnar í listalífinu er án efa frumflutningur á Íslandi á “Skáldið og Sekkjapípuleikarinn” sem er nýjasta afurð Nóbelsverðlaunahafans Seamusar Heaneys og hins virta írska tónlistarmanns Liams O’Flynn. Dagskráin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og verður flutt í Nýheimum á laugardagskvöld kl. 21:00. Lesa meira
 
Góð sveifla á Silfurnesvelli

Golfvertíðin að byrja - 21.05.2004 Maí

Nú styttist í að golfvertíðin byrji. Á morgun laugardag verður haldið fyrsta golfmót sumarsins og hefst það kl. 9:00. Margir glæsilegir vinningar verða í boði og er það verslunin Lónið sem gefur vinningana. Í sumar verður sú nýbreytni tekin upp hjá Golfklúbbi Hornafjarðar að spiluð verður mótaröð á miðvikudögum frá 26. maí til 30. júní, alls sex skipti. Mótafyrirkomulag verður þannig að spilarar þurfa að leika lágmark fjóra daga af þessum sex enda gilda fjórir bestu dagarnir. Spila má hvenær sem er yfir daginn, en þó verða tveir að spila saman og skila þarf korti í skála strax eftir leik. Þátttökugjald er kr. 2.000 sem skilast með fyrsta skorkorti. Glæsileg verðlaun verða í boði og er það Golfverslunin í Dalshrauni, Hafnarfirði sem styrkir þessa mótaröð. Lesa meira
 
Magnús Jónasar og Jón Stefán að gera húsin klár

Tíu smáhýsi til viðbótar í byrjun júní - 20.05.2004 Maí

Þeir eru einbeittir félagarnir Magnús og Jón Stefán Náttbólsmenn þar sem þeir eru að dytta að húsunum við Tjaldsvæðið og gera þau klár áður en ferðatíminn byrjar. Á myndina vantar Gústa Tobba sem var með pensilinn á lofti við eitt af húsunum. Nú líður að því að þeir geti farið að setja upp tíu smáhýsi til viðbótar en þau munu koma fyrir aftan þau sem fyrir eru. Reiknað er með að uppsetning þeirra geti hafist í byrjun júní en þá er tími auglýsingar um nýtt deiliskipulag liðinn og hægt að hefjast handa við uppsetningu húsanna. Lesa meira
 
Akurnes í Nesjum kl. 14:45 20.maí 2004

Sól í Lóni, snjór í Nesjum - 20.05.2004 Maí

Uppstigningardagurinn bíður okkur upp á nokkuð óvenjulegt veður eða sýnishorn af nokkrum veðurbrigðum í nágrenni Hafnar, á Mýrum er rjóma blíða og trjávöxtur í fullum gangi, í Nesjum var allt hulið snjó um tíma og náði snjórinn niður Skarðsdal í Lóni og þegar komið var fram hjá Þorgeirsstöðum á austurleið þá var eins og við manninn mælt, sól og flott veður, hitastig um 6-8 gráður. Kjörið fyrir þá athafnamenn sem nú standa í girðingarframkvæmdum við nýju sumarbústaðarlóðirnar í Stafafellsfjöllum. Lesa meira
 
Gerard Butler í Timeline (2004)

Gerard Butler í hlutverki Bjólfs - 20.05.2004 Maí

Búið er að finna leikarann sem tekur að sér hlutverki Bjólfs í kvikmyndinni Bjólfskviðu sem tekin verður upp hér í Sveitarfélaginu, það er skotinn Gerard Butler sem mun verða Bjólfur. Gerard er fæddur í Skotlandi en er af írskum ættum. Fyrsta myndin sem hann lék í var Mrs. Brown (1997) en það má segja að hann hafi byrjað feril sinn þegar hann lék í James Bond myndinni Tomorrow Never Dies (1997) og ári síðar í Tale of the Mummy. Gerard er meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem arftakar Pierce Brosnan í hlutverk breska njósnarans James Bond. Lesa meira
 
Þórólfur í góðu yfirlæti á Hótel Höfn

Fastakúnni á Ósnum í 14 ár - 20.05.2004 Maí

Þórólfur Jóhannsson eða Tóki eins og hann er kallaður hefur verið fastakúnni á Ósnum hjá þeim félögum Gísla Már og Óðni í 14 ár. Þórólfur byrjaði að venja komu sínar á "Gamla Ósinn" við Hafnarbraut strax þegar hann opnaði og hefur haldið tryggð við Ósinn æ síðan, en veitingastaðurinn Ósinn er staðsettur á Hótel Höfn. Þórólfur hefur því ekki látið sér nægja að sigla um ósinn í starfi sínu sem sjómaður. Eins og allir vita er Þórólfur einn allra harðasti stuðningsmaður Arsenal á Íslandi og þó víðar væri leitað og fer hann reglulega á leiki félagsins erlendis og auðvitað er hann fyrstur manna á Ósinn til að horfa á leikina í ensku knattspyrnunni. Og ekki leiddist honum mjög á síðasta tímabili, enda tapaði liðið hans ekki leik í enskaboltanum. Lesa meira
 
Hjólað með mömmu

Hjólað í vinnuna á Hornafirði - 19.05.2004 Maí

Á mánudaginn var fyrsti keppnisdagur í “Hjólað í vinnuna” en keppnin stendur yfir frá 17. maí til 28. maí. Á fyrsta degi höfðu 110 fyrirtæki með 172 lið skráð sig til keppni og eru skráðir liðsmenn um 1.000. Samkvæmt stöðulista í gær var Sveitarfélagið Hornafjörður í 5. sæti af 20 sveitarfélögum, en fimm fyrirtæki eða stofnanir eru skráð til keppni á Hornafirði. Glæsilegir viðurkenningarskildir verða veittir fyrir þrjú efstu sætin í hverjum fyrirtækjaflokki. Nú er bara um að gera fyrir Hornfirsku fyrirtækin sem þátt taka í keppninni að taka vel á og skila mörgum kílómetrum í hús og allir hinir sem ekki eru skráðir til keppni sýna stuðninginn í verki og hjóla, labba eða skokka í vinnuna. Lesa meira
 
Létt æfing fyrir bikarleik

Sindri áfram í bikarnum - 19.05.2004 Sindra fréttir

Í gær keppti meistaraflokkur Sindra við Neista frá Djúpavogi í VISA-bikar karla. Leikurinn fór fram á Djúpavogi og lauk með sigri okkar manna 2 – 1 og skoraði Sævar Gunnarsson bæði mörkin. Allt annað var að sjá til Sindraliðsins í þessum leik miðað við æfingaleikinn á móti Neista sem fram fór fyrir stuttu síðan. Menn voru greinilega staðráðnir í leggja allt í sölunnar í þessum leik og komast í aðra umferð bikarkeppninnar. Lið Neista skartaði tveimur nýjum leikmönnum frá Serbíu og Svartfjallalandi sem koma greinilega til með að styrkja liðið mikið. Næsti andstæðingur í bikarkeppninni verður Höttur og fer sá leikur fram 1. júní á Egilsstöðum. Lesa meira
 
Birna, Ófeigur, Jón Björn, Heiða Björg og tengdadóttirin Carina

Landsyn, norskt fyrirtæki með Hornfirskan bakgrunn - 19.05.2004 Maí

Hornfirsku hjónin Birna Ingólfsdóttir og Ófeigur Jóhannesson sem hafa búið undanfarin 6 ár í Noregi ásamt börnum sínum, hafa sett á fót fyrirtæki sem selja á Norðmönnum ferðir til Íslands. Birna mun sjá um daglegan rekstur fyrirtækisins en öll fjölskyldan mun koma að rekstrinum að einhverju leyti. Yfirbygging fyrirtækisins verður í algjöru lágmarki sagði Birna og við munum ekki vera með opna skrifstofu heldur munum við sjá um öll mál í gegnum síma eða tölvupóst. Við munum auðvitað gera Austur-Skaftafellssýslu hátt undir höfði enda þekkjum við best til í gömlu heimhögunum sagði Birna. Við ætlum líka að selja Íslendingum ferðir hingað til Noregs og við höfum verið svo heppin að fá pláss í nokkrar veiðiferðir í haust. Um er að ræða elgsveiði, fuglaveiði og dádýraveiði.Veiðitímabilið er í haust og er um að ræða veiðipakka með gistingu, og fullu fæði. Einnig ætlum við að reyna að lokka landann til að nýta sér hin frábæru skíðasvæði sem Noregur hefur upp á að bjóða auk almennra ferða allan ársins hring. Lesa meira
 
Guðrún Ása og Helga Rún að skipuleggja vinnu sumarsins

Allir skólakrakkar úr 8. - 10. bekk fá vinnu - 18.05.2004 Maí

Nú styttist í að vinnuskólinn á Höfn byrji og munu nemendur 8. bekkjar Heppuskóla mæta til vinnu 7. júní og 9. – 10. bekkur byrjar 10. júní. Guðrún Ása Jóhannsdóttir hefur verkstjórnina með höndum og aðstoðarverkstjóri er Helga Rún Guðjónsdóttir. Þetta er annað sumarið sem Guðrún Ása er verkstjóri og lætur hún vel af því starfi og segir að krakkarnir hafi verið rosalega góð í fyrra og alveg til fyrirmyndar og er viss um að eins verði það í sumar. Við Helga Rún erum að byrja í dag að undirbúa vinnuna, skipta í hópa og skipuleggja þetta segir Guðrún Ása. Flokksstjórarnir koma til vinnu á mánudaginn og þá förum við sem mætt erum að reita í beðum og undirbúa þau. Við fáum líka krakka úr framhaldsskólanum og þau verða í sláttuhópnum. Þegar krakkarnir byrja förum við í að snyrta og prýða bæinn, sá blómum, taka til og gera hann rosalega flottan. Lesa meira
 
Seamusar Heaney og Liams O’Flynn

Írsk stemning í Nýheimum - 18.05.2004 Maí

Laugardaginn 22. maí verður einn af dagskrárliðum Listahátíðar í Reykjavík frumfluttur í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Þetta er dagskráin ”Skáldið og sekkjapípuleikarinn” sem er nýjasta afurð Nóbelsverðlaunahafans Seamusar Heaneys og hins virta írska tónlistarmanns Liams O’Flynn sem leikur á hið sérstæða hljóðfæri Uilleann pipes eða “olnbogapípu”. Dagskráin, sem byggir á írskum þjóðlögum og textum og ljóðum Seamusar Heaneys, sem hann flytur sjálfur, hefst kl. 21:00, laugardaginn 22. maí. Til þess að skapa írska stemningu verður salnum í Nýheimum raðað upp eins og á kaffihúsi og að sjálfsögðu verða ekta írskar veitingar í boði. Lesa meira
 
Ný Esso stöð í byggingu

Styttist í nýja Esso stöð - 18.05.2004 Maí

Byggingu nýrrar Esso stöðvar við Vesturbraut miðar vel áfram. Húsið verður allt hið glæsilegasta en það leysir af hólmi gamla byggingu sem þjónaði ekki lengur kröfum nútímans. Heimir Örn Heiðarsson hjá HP sonum, sem verða rekstraraðili stöðvarinnar sagði að stefnt væri á opna í byrjun júní og menn vonast eftir því að formleg opnum geti farið fram 17. júní. Í nýju stöðinni verður hin hefðbundna sjoppa og þjónusta við bíleigendur en að auki verður boðið upp á dagvöru ýmiskonar og hægt verður að setjast niður og fá sér kaffi og nýbakað brauð. Í húsinu verður einnig verslun ÁTVR. Lesa meira
 
Íþróttahúsið við Heppuskóla

Sparkvöllur á Hornafjörð - 18.05.2004 Maí

KSÍ hefur úthlutað 60 sparkvöllum víðsvegar um land en alls bárust 105 umsóknir frá 59 sveitarfélögum. KSÍ útvegar grasið á vellina sveitarfélögunum að kostnaðarlausu en það er síðan í höndum hvers sveitarfélags að sjá um byggingu og frágang vallanna. Hjá KSÍ vonast menn til að geta úthlutað fleiri völlum, en það veltur á samningi við framleiðanda og auknu fjármagni til verkefnisins. Að sögn Alberts Eymundssonar bæjarstjóra vonast menn til að geta hafið framkvæmdir við völlinn í sumar og ætti hann þá að verða tilbúin með haustinu. Völlurinn verður staðsettur við hliðina á íþróttahúsinu við Heppuskóla og ekki er nokkur vafi á að hann á eftir að nýtast vel bæði til æfinga og leikja. Lesa meira
 
Gráspör sem sást á Hofi í Öræfum(mynd:Brynjúlfur Brynjólfsson)

Stofnun undirbúningsfélags um Fuglaathugunarstöð á Höfn - 17.05.2004 Maí

Miðvikudaginn 19.maí nk. verður haldinn stofnfundur undirbúningsfélags um Fuglaathugunarstöð á Höfn. Fundurinn verður í fundarsalnum í Nýheimum og hefst kl.17.00. Þau félög sem koma að stofnun þessa undirbúningsfélags eru: Félag fuglaáhugamanna á Hornafirði, Sveitarfélagið Hornafjörður, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Háskólasetrið á Hornafirði, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu og Frumkvöðlasetur Austurlands. Einnig verður Náttúrufræðistofnun Íslands boðið að vera aðili að undirbúningsfélaginu. Almenningi, fyrirtækjum og stofnunum sem áhuga hafa á að gerast stofnaðilar verður gefinn kostur á því að skrá nafn sitt á lista sem mun liggja frammi á fundinum eða tilkynna aðild fyrir 30.júní nk. Lesa meira
 
Albert, Óli, Rúnar, Jóna og Hallgrímur en hann afhenti vinningana fyrir hönd Krónunnar

Sprenging í sölu getrauna - 17.05.2004 Maí

Tippstofa Sindra hefur nú verið starfrækt á annað ár í núverandi húsnæði að Hafnarbraut. Óhætt er að segja að með tilkomu aðstöðunnar við Hafnarbraut hafi orðið sprenging í sölu getrauna hjá félaginu. Á síðasta ári seldust 405.867 raðir merktar Sindra en til gamans má nefna að árið 2002 voru raðirnar 115.438 og árið 2001 seldust 47.959 raðir. Sá sem staðið hefur í eldlínunni fyrir Tippstofu Sindra er Gestur Halldórsson og hefur hann með fórnfúsu starfi lyft grettistaki í getraunasölunni og gert Sindrahúsið að góðum samkomustað tippara á laugardögum. Nú er nýlokið krónuleik hjá Tippstofunni og þar varð hlutskarpastur Ólafur Jónsson, í öðru sæti var Rúnar Gestsson, Albert Eymundsson varð í þriðja sæti og Jóna Jóhannesdóttir í því fjórða. Krónan gaf vinningana sem voru vöruúttektir í verslun Krónunnar. Lesa meira
 
Unsteinn Þráinsson með kongó rósina (mynd:Björn Arnarson)

Líður að lokum grásleppuvertíðar - 17.05.2004 Maí

Grásleppuvertíðin í Berufirði hefur gengið frekar illa í vetur og vor og mun minni veiði hefur verið miðað við s.l. ár. Tvær Hornfirskar trillur, Benni SF- 66 og Siggi Bessa SF- 97 hafa stundað grásleppuveiðar í Berufirði og Breiðdalsvík á þessari vertíð og að sögn Friðþórs Harðarsonar hafa veður verið með eindæmum leiðinleg og mikill munur á aflabrögðum milli ára. Við erum þrír á hvorum bát og megum því vera með 150, löng net. Aflanum er landað á Djúpavogi og fara hrognin beint í bíl til Reykjavíkur þar sem þau fara í vinnslu hjá Bakkavör. Í svona tíð eins verið hefur á þessari vertíð þá höfum við þurft að glíma mikið við “kongó rósina” en netin fyllast af þessum óþvera þegar sjó setur upp sagði Fiddi að lokum. Lesa meira
 
Eggjatökuferð í Ingólfshöfða maí 2004 ©RF

Ingólfshöfði er friðlýstur - 17.05.2004 Maí

Til viðbótar við frétt um eggjatökuferð í Ingólfshöfða sem sagt var frá hér á vefnum er rétt að það komi fram að Ingólfshöfðasvæðið er friðlýst samkvæmt náttúruverndarlögum. Árið 1974 lögðu heimamenn það til að höfðinn yrði friðlýstur í minningu landnámsins og var það gert. Ákvæði friðlýsingarinnar voru þau að það sem heimamenn hefðu alltaf gert með höfðann gætu þeir stundað áfram, það er að beita sauðfé í höfðann, stunda eggjatöku, nýta reka o.s.frv. Hofsmenn eiga 2/5 af höfðanum og grasnytjar og kirkjujörðin Sandfell á 3/5 en Hofsmenn og einn bóndi í Svínafelli leigja jörðina af ríkinu og öðlast þann rétt sem henni tilheyrir. Öll eggjataka í höfðanum er því stranglega bönnuð öðrum en landeigendum. Lesa meira
 
Bandarísku heildsalarnir í góðu yfirlæti á Hótel Höfn

En er ekki Jökulsárlónið upp á jöklinum? - 15.05.2004 Maí

Um síðustu helgi komu fimmtán bandarískir ferðasöluaðilar í kynnisferð til Hornafjarðar. Hópurinn kom með bíl frá Egilsstöðum og var farið Öxi en við það seinkaði ferð þeirra mikið, ekki vegna ófærðar heldur var það náttúrufegurðin sem tafði för þeirra, því mikið þurfti að mynda. Á Hótel Höfn tók Guðrún Ingimundardóttir formaður Ferðamálafélags A-Skaft á móti þeim. Guðrún tók því vel ,eins og hennar er von og vísa, að segja frá þessari heimsókn sem hefur mikið gildi fyrir ferðaþjónustuaðila hér. Þegar sölumennirnir höfðu gætt sér á sjávarréttasúpu o.fl. sýndi Guðrún þeim bæinn og kynnti þá þjónustu sem hér er til staðar. Lesa meira
 
Nemendur Nesjaskóla við Svartafoss

Skólaferðalag Nesjaskóla - 14.05.2004 Maí

Nemendur 3. bekkjar Nesjaskóla komu í dag heim úr skólaferðalagi sínu í Öræfin. Á leiðinni þangað var komið við í kirkjunum í Nesjum, á Mýrum og í Suðursveit. Sigrún G. Björnsdóttir tók á móti hópnum í Suðursveitinni og fræddi hann um Kálfafellstaðarkirkju og síðan var áð við Hrollaugsstaði í blíðskapar veðri og kíkt í nestisboxin. Frá Hrollaugsstöðum var haldið í Skaftafell þar sem gengið var að Svartafossi, hádegisnesti snætt og farið í frískandi fótabað. Nemendur skoðuðu Skafafellsstofu og brúarleifarnar og upplýsingaskiltin um Skeiðarárhlaupið 1996 niðri á Skeiðarársandi. Lesa meira
 
Ásgrími Halldórsson SF-250 við Krosseyjarbakka

Útboð vegna stálþils á Krosseyjarbakka - 14.05.2004 Maí

Í gær voru opnuð tilboðið í stálþil vegna Krosseyjarbakka í Hornafjarðarhöfn. Tilboðin voru opnuð á sama tíma hjá á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar og skrifstofu Siglingastofnunar Íslands. Fimm tilboð bárust en kostnaðaráætlun hljóðar upp á kr. 48.381.630. Eftirfarandi fyrirtæki lögðu inn tilboð í verkið: Ísar ehf. kr. 30.952.000 sem er 63,9% af kostnaðaráætlun. Guðlaugur Einarsson ehf. kr. 41.550.000 sem er 85,5% af kostnaðaráætlun. Elinn ehf. kr. 42.238.490 sem er 87,3% af kostnaðaráætlun. Rósaberg ehf. kr. 48.468.680 sem er nánast samkvæmt kostnaðaráætlun og Sveinn Sighvatsson kr. 66.464.689 sem er 37,3% yfir kostnaðaráætlun. Lesa meira
 
Frá Íslandsmeistaramóti í fimleikum 2002

Fjárhagur USÚ traustur - 14.05.2004 Maí

Þing Ungmennasambandsins Úlfljóts í Austur-Skaftafellssýslu var haldið í Mánagarði sl. þriðjudag. 19 fulltrúar frá 5 aðildarfélögum sambandsins mættu á þingið. Gestur þingsins var Engilbert Olgeirsson stjórnarmaður í ÍSÍ. Fram kom á þinginu að fjárhagur sambandsins er traustur og raunar á það sama við um aðildarfélögin innan USÚ. Kjartan Hreinsson úr Hestamannafélaginu Hornfirðingi og Guðrún E. Þorsteinsdóttir Golfklúbbi Hornafjarðar voru endurkjörin í stjórn sambandsins. Hrefna Lúðvíksdóttir úr Umf. Sindra gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Ragnhildur Einarsdóttir úr Sindra kjörin ný í stjórnina. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 14. maí kl. 07:47

Árlegur hreinsunardagur á Höfn og í Nesjum - 14.05.2004 Maí

Á jafn flottum degi og nú er mætti halda að sumarið væri komið er gott að fara að huga að sínu nánasta umhverfi. Hvað er betra eftir langan vinnudag en að skella sér í garðinn og klára vorverkin. Á laugardaginn verður hinn árlegi hreinsunardagur á Höfn og í Nesjum og þá eru allir íbúar hvattir til að laga til í görðum sínum, og getur fólk skilið garðaúrgang eftir út við götu og munu starfsmenn bæjarins síðan safna garðaúrganginum saman. Eins og staðan er í kortunum um þessar mundir kemur kannski ekki til með að viðra vel til garðvinnu um helgina. En hver veit, kannski hafa veðurfræðingarnir rangt fyrir sér svona einu sinni. Lesa meira
 
María Sverrisdóttir og Mica

Óvænt heimsókn í Nesjaskóla - 13.05.2004 Maí

Krakkarnir í 1.bekk í Nesjaskóla fengu óvænta heimsókn í skólann í morgun, þar voru á ferð nokkrir félagar í Kiwanisklúbbnum Ós. Erindið sem þeir áttu við krakkana var að færa þeim vandaða reiðhjólahjálma sem eru gjöf frá Kiwanis, Eimskip og Flytjanda. Þegar krakkarnir voru búnir að setja upp hjálmana voru þau minnt á að það ætti alltaf að vera með þá þegar farið væri út að hjóla og var það samþykkt samstundis og lofað að gleyma því ekki.. Næsta laugardag, þann 15.maí kl. 14:00 er Hjólreiðadagurinn og þá er skorað á alla krakka á staðnum að mæta við Heppuskóla og auðvitað með hjólin og hjálmana. Það eru Kiwanis, Eimskip og Flytjandi sem standa fyrir hjólreiðadeginum um allt land. Sitthvað verður til gamans gert og krakkarnir fá tækifæri til að leysa nokkrar þrautir og geta þannig tekið þátt í skemmtilegum leik og átt möguleika á góðum vinningi. Lesa meira
 
SÁÁ Álfurinn, alltaf vinsæll

Álfasala SÁÁ - 13.05.2004 Maí

Hin árlega Álfasala SÁÁ fer fram dagana 13. – 16. maí. Á Hornafirði mun 4. flokkur karla hjá Sindra sjá um söluna og renna sölulaunin í ferðasjóð strákanna fyrir væntanlega Færeyjaferð sem farin verður í byrjun júní. Hornfirsk heimili eiga því von á að ungir drengir banki upp á hjá þeim og bjóði álfinn til sölu næstu daga. Auðvitað vonast strákarnir eftir því að viðtökur verði góðar og fólk sjái sér fært að styrkja gott málefni um leið og það styrkir ferðasjóð 4. flokks. Lesa meira
 
Mynd 102

Mikil frjósemi á Smyrlabjörgum - 13.05.2004 Maí

Annasamur tími er framundan hjá sauðfjárbændum þar sem sauðburður er að komast á stað og ekki er annað að heyra en það sé gott hljóð í Hornfirskum bændum. Sigurbjörn Karlsson á Smyrlabjörgum í Suðursveit er með 350 kindur á vetrarfóðrum og þar er sauðburður rétt að byrja. Hann segir að þetta líti vel út þar sem mikill gróður sé kominn, mikið meiri en venja er á þessum árstíma, það þyrfti bara að hlýna svolítið meira og lægja vindgustinn sem verið hefur undanfarna daga. Lesa meira
 
Sigrún Kapitola og Gunnlaugur Bragi í Smáralind

Austur-Skaftfellingar á Ferðatorgi í Smáralind - 12.05.2004 Maí

Um síðustu helgi stormuðu Austur-Skaftfellskir ferðafrömuður í Smáralind og tóku þátt í því sem ber nafnið Ferðatorg, en tilgangurinn með Ferðatorgi er að kynna Ísland fyrir Íslendingum. Austur-Skaftfellingar voru í bás með austurlandi og var yfirskriftin “Austurlandsfjórðungur í fókus”. Kynningarbásinn var mjög glæsilegur en þar var m.a. myndasýning á tveim skjáum, kar úr plexigleri sem í var ís úr Jökulsárlóni og lifandi humar. Humarinn vakti mikla hrifningu og undrun hjá fólki á öllum aldri og kom á óvart hvað margir voru hissa þegar við sagt var hvaðan humarinn kæmi og áttu sumir erfitt með að trúa því að svo stór humar veiddist við Íslandstrendur. Mikil skemmtidagskrá var í gangi alla dagana og fyrir hönd Lesa meira
 
Öræfingar í eggjatöku (Mynd Ragnar Frank)

Öræfingar í eggjatöku - 12.05.2004 Maí

Árleg ferð Öræfinga út í Ingólfshöfða til eggjatöku, fór fram sunnudaginn 9.maí. Veðrið var frábært, fuglalíf sjaldan betra og mikið af langvíueggjum Alls voru týnd um 1800 egg og er það helmingi betri fengur en á síðasta ári. Ragnar Frank Þjóðgarðsvörður í Skaftafelli var með í eggjatökuferðinni og segir hann að ferðin hafi verið söguleg og má segja að hún hafi markað tímamót nú á þessum jafnréttis tímum, því nú sigu tveir kvenmenn niður í bjargið, og það er örugglega í fyrsta sinn sem að finnsk kona hefur sigið í Ingólfshöfða, en það var Hanna vinnukona frá Svínafelli. Elsti maðurinn í hópnum Magnús Lárusson, frá Svínafelli, taldi þó að það væri nú ekki öruggt, því Ingólfur Arnarson, landnámsmaður hefði örugglega haft með sér duglega finnska konu þegar hann kom í land 874. Lesa meira
 
Altt að verða klárt fyrir brottför

Ævintýraferð hjá 10. bekk Heppuskóla - 11.05.2004 Heppuskóli fréttir

Í dag luku nemendur í 10. bekk hinum geysi vinsælu samræmdu prófum. Það hefur verið venjan í Heppuskóla að fara með nemendur í ferðalag að loknum prófum og verður þar engin undantekning á þetta árið. Lagt verður af stað í sannkallaða ævintýraferð í dag og komið til baka um miðjan dag á föstudag. Ferðin er heitið á Vatnajökul og mun hópurinn gista í Jöklaseli í tvær nætur og verða dagarnir notaðir til að renna sér á skíðum, fara í gönguferðir og farið verður í útsýnisferðir á jökulinn. Á fimmtudaginn liggur leiðin síðan á Kirkjubæjarklaustur og verður komið við í Skaftafelli, stoppað við Skeiðará og ekið upp að Skeiðarárjökli. Gist verður á Klaustri aðfaranótt föstudags. Lesa meira
 
Magnús Skarphéðinsson

Dulræn mál og líf eftir dauðann - 11.05.2004 Maí

Í síðustu viku var haldinn fyrirlestur um dulræn málefni, líf eftir dauðann og ýmislegt fleira tengt þeim málum. Gestur fundarins var Magnús H. Skarphéðinsson skólastjóri og kom hann til Hafnar á vegum Sálarrannsóknarfélagsins Stjörnunnar sem var stofnuð hér fyrir nokkrum árum. Tilgangur félagsins var að efla og þroska þekkingu fólks sem hefur áhuga á dulrænum og andlegum málefnum og hefja nýtt starfsár á komandi hausti. Fyrirlesturinn var hugsaður sem slíkur, að fá fólk til að koma Stjörnunni aftur upp á himininn. Lesa meira
 
Reynir og Svandís fyrir utan Ásgarð

Reynir og Svandís kaupa Ásgarð - 11.05.2004 Maí

Hjónin Reynir Arnarson og Svandís Guðný Bogadóttir gengu um helgina frá kaupum á Verðbúðum ehf., seljandi var útgerðarfyrirtækið Skinney-Þinganes. Verðbúðir ehf. á og rekur gistiheimilið Ásgarð sem staðsett er við höfnina á Hornafirði. Að sögn þeirra hjóna verður reksturinn með mjög svipuðum hætti og hann hefur verið síðast liðin tvö ár, hvað svo sem framtíðin ber í skauti sér. Þetta verður spennandi verkefni að takast á við og við hlökkum til sumarsins. Vel lítur út með bókanir í sumar og kemur fyrsti hópurinn í Ásgarð 20. maí. Lesa meira
 
Kraftmiklir krakkar í Nesjaskóla

Börn þurfa hreyfingu og mikið af henni - 10.05.2004 Maí

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur útnefnt 10. maí sem alþjóðadag hreyfingar. Í ár er athyglinni einkum beint að börnum en þeim stafar orðin hætta af hreyfingarleysi, kyrrsetu og röngu mataræði. Nemendur og kennarar í Nesjaskóla ætla að vera þátttakendur í þessum degi og byrjuðu skólann í dag á því að fara í góðan göngutúr. Gengið var að Stekkhól þar sem farið var í leiki og síðan gengið aftur heim í skóla. Svo skemmtilega vill til að þennan alþjóðadag hreyfingar ber upp á útileikjaátakið sem er í gangi í skólanum núna í maímánuði. Nemendur í heilsuskólanum Nesjaskóla verða því einstaklega virkir við hreyfingu og heilsueflingu þennan dag. Lesa meira
 
Jón Ólafsson tónlistarmaður, hress að vanda

Jón Ólafsson í Nýheimum - 10.05.2004 Maí

Jón Ólafsson mun halda tónleika í Nýheimum n.k. fimmtudag þar sem hann mun kynna nýútkomna sólóplötu sína sem ber hið fallega nafn “Jón Ólafsson” Jón semur öll lögin sjálfur en textarnir eru eftir Hallgrím Helgason, Ólaf Hauk Símonarson, Kristján Hreinsson, Stein Steinarr og sjálfur semur Jón einn textann. Jón hefur lengi verið að í tónlistinni og meðal kunnra hljómsveita sem hann hefur leikið með má nefna Sálina, Possibillies, Bítlavinafélagið og Nýdönsk. Jón hefur víða komið við í tónlistarlífi landans bæði sem hljóðfæraleikari og upptökustjóri auk þess að vera tónlistarstjóri við margar sýningar í Íslenskum leikhúsum. Á tónleikunum í Nýheimum mun Jón kynna sína fyrstu sólóplötu í tali og tónum og eflaust mun eitthvað af eldri efni fá að fljóta með. Lesa meira
 
Sandra Rán skorar fyrir Sindra

Síðustu leikir Sindra í Deildarbikarnum - 10.05.2004 Maí

Um helgina lék meistaraflokkur kvenna hjá Sindra síðustu leikina í Deildarbikarnum. Á laugardaginn kepptu þær við Fjölni í Egilshöll og lauk leiknum með sigri þeirra Fjölniskvenna 11 – 0. Á sunnudaginn kepptu þær svo við Keflavík og tapaðist sá leikur 7 – 0. Hópurinn hjá Sindra var þunn skipaður eins og í undanförnum leikjum og var á mörkunum að hægt væra að stilla upp fullskipuðu liði. Næsta verkefni hjá stelpunum er 25. maí en þá mæta þær Fjarðabyggð á Eskifjarðarvelli í fyrsta leik Íslandsmótsins í 1. deild kvenna C riðli. Fyrsti heimaleikurinn verðu síðan þann 6. júní gegn Einherja. Lesa meira
 
Bæjarstjórarnir Sigurður Geirdal og Kristján Þór ásamt Ara Þorsteinssyni

Tóku með sér humar til Akureyrar og Kópavogs - 08.05.2004 Maí

Bæjarstjórarnir Kristján Þór Júlíusson og Sigurður Geirdal voru meðal þeirra bæjarstjóra sem komu við á Markaðstorginu á Höfn og keyptu sér hornfirskan gæða humar til að taka með sér heim eftir viðveruna á Hornafirði síðustu daga en þeir voru ásamt öðrum bæjarstjórum á landinu á árlegum fundi sem að þessu sinni var haldinn á Hótel Höfn. Bæjarstjórarnir hafa einnig nota þennan árlega fund til að kynna sér landið og það sem það hefur upp á að bjóða. Aðal verkefni þessa fundar var verkefnaflutningur frá ríki til sveitarfélaga og efling sveitarstjórnarstigsins og hentaði fundarstaðurinn mjög vel enda var Austur-Skaftafellssýsla var fyrsta héraðið sem sameinaðist í eitt sveitarfélag, Sveitarfélagið Hornafjörð sem hefur síðan tekið að sér fleiri verkefni frá ríkinu með þjónustusamningum en önnur sveitarfélög. Lesa meira
 
Hreinsunardagur Hafnarskóla 2004

Hornfirðingar fyllast stolti - 07.05.2004 Maí

Í dag var hinn árlegi hreinsunardagur hjá okkur í skólanum. Farið var vítt og breitt um bæinn og mikið rusl tínt. Í vetur hefur það fokið í hrúgur og tiltölulega auðvelt var að fylla hátt í 100 poka af rusli. Opin svæði eins og Óslandið og Álaugareyjan voru vandlega hreinsuð enda ekki líklegt að nokkur þori þar um eftir að krían fer að verpa. Að hreinsun lokinni voru grillaðar pulsur í Hafnarskóla með aðstoð foreldrafélagsins. Eflaust fyllast allir Hafnarbúar stolti þegar þeir horfa á hreinan og snyrtilegan bæinn og vonandi leggjast allir á eitt við að halda honum hreinum og snyrtilegum í sumar. Lesa meira
 
Galvaskir nemendur Hafnarskóla á leið í ruslatínslu

Hreinsunardagur Hafnarskóla - 07.05.2004 Maí

Í dag fjölmenna nemendur Hafnarskóla ásamt kennurum sínum út á stræti og torg Hornafjarðar með svarta ruslapoka í hönd, því í dag er hinn árlegi hreinsunardagur skólans. Þá taka nemendur og kennarar höndum saman og hreinsa bæinn og er afraksturinn alltaf margir pokar fullir af rusli, sem hefur safnast saman á víðavangi yfir veturinn. Krakkarnir eru á ferðinni fram undir hádegi, en þá er boðið til grillveislu við Hafnarskóla og þar mætir foreldrafélagið og aðstoðar við grillið. Í grillveislunni taka krakkarnir svo hraustlega til matar síns, enda mikil orka búin að fara í erfiði morgunsins. Lesa meira
 
Æft á fullum krafti

Styttist í Íslandsmótið í knattspyrnu - 07.05.2004 Maí

Nú styttist óðum í að boltinn fari að rúlla fyrir alvöru og hefst keppni í 3. deild karla 23. maí. Lið Sindra í meistaraflokki karla hefur misst tvo reynda heimamenn frá sér, Halldór Steinar Kristjánsson sem gekk til liðs við ÍR og Júlíus Frey Valgeirsson sem gengin er í raðir HK. Einnig er Kjartan Páll Þórarinsson markvörður búin að flytja sig um set og leikur með ÍR í sumar. Einn nýr leikmaður er gengin í raðir Sindra, Nezir Ohran markvörður frá Bosníu. Það hefur auðvitað ekki farið framhjá neinum að Sindra mun spila í 3. deild þetta árið og því munu Hornfirskir knattspyrnumenn endurnýja kynni sín við Huginn, Fjarðarbyggð, Hött, Leikni, Neista og Einherja en það eru andstæðingar sumarsins í 3. deild karla. Og eins og góður maður sagði “Hin gömlu kynni gleymast ei” Lesa meira
 
Kemur Sir Sean Connery til Hornafjarðar?

Sean Connery eða Anthony Hopkins í Bjólfskviðu? - 06.05.2004 Maí

Leitað er nú að súperstjörnu í hlutverk kóngsins í ,, Beowulf og Grendel” eða Bjólfskviðu, sem verið er að undirbúa tökur á og verður að mestu tekin í Hornafirði. Nöfn eins og Sean Connery og Anthony Hopkins hafa verið nefnd í því sambandi. Talið er líklegt að þessar stórstjörnur hafi áhuga á koma til Íslands og þar sem hlutverkið er ekki stórt og viðkomandi þyrfti aðeins að dvelja tvær vikur á tökustað, geti þetta hentað ágætlega. Ef þetta gengur eftir þá eykst verðmæti myndarinnar verulega. Í aðalhlutverkið er verið að reyna að fá upprennandi unga stjörnu en ekki fékkst uppgefið hver hún er. Lesa meira
 
Lögreglan í broddi fylkingar

Í nógu að snúast hjá slysavarnakonum - 06.05.2004 Maí

Hin árleg kaffisala slysavarnadeildarinnar Framtíðar var á sumardaginn fyrsta í húsi slysavarnadeildanna á Höfn. Eygló Illugadóttir sagði að hátt í þrjúhundruð manns hefðu mætt í kaffi hjá félaginu og átt saman ánægjulega stund og notið veitinga. Við slysavarnakonur viljum þakka öllum þeim sem komu til okkar þennan dag kærlega fyrir komuna. Hjóladag héldum við svo 1. maí og komu vel yfir 100 manns og létu skoða hjólin sín og hjálma þrátt fyrir frekar leiðinlegt veður og töluverðan vind eins og ævinlega á hjóladeginum. Lesa meira
 
Elín og Jón í nýja fyrirtækinu

Papós kaupir eignir þrotabús Fiskgæða - 06.05.2004 Maí

Gengið hefur verið frá sölu á eignum þrotabús Fiskgæða ehf. og er kaupandi að eignunum Hornfirska fyrirtækið Papós ehf. sem er í eigu hjónanna Elínar Þorvaldsdóttur og Jóns Hafdal. Papós ehf. kaupir fasteignina að Álaugarvegi 3 ásamt öllu því sem henni fylgir. Jón sagði að nú þegar væri byrjað að gera húsnæðið tilbúið undir vinnslu, það er verið að þrífa allt hátt og lágt og lagfæra það sem lagfæra þarf. Við stefnum að því að byrja vinnslu í húsinu í næsta mánuði sagði Jón að lokum. Lesa meira
 
Lagt í hann með einn hjólabátinn

Einar Björn bjartsýnn á sumarið - 06.05.2004 Maí

Nú styttist í að ferðaþjónustan við Jökulsárlón hefji sumarstarfið. Einar Björn Einarsson sagði að verið væri að flytja hjólabátana og annað búnað vestur að Jökulsárlóni og allt yrði tilbúið fyrir 15. maí. Það er alltaf töluvert að gera í maí sagði Einar Björn, alltaf einhverjir hópar á ferðinni og töluverð lausa traffík og auðvitað reynum við að veita eins góða þjónusta og mögulegt er, þrátt fyrir fátt starfsfólk á þeim tíma. Í byrjun júní er svo allt komið á fulla ferð og þá er oft líf og fjör við Jökulsárlón enda hátt í fjörutíu þúsund gestir sem sækja okkur heim á hverju sumri. Ég er bjartsýnn á sumarið eins og ævinlega sagði Einar Björn enda alltaf logn og blíða í Suðursveit. Starfsmenn við Jökulsárlón eru 25 og við höfum opið hérna til 15. september. Lesa meira
 
Við löndunarbrygguna í Álaugarey

Aukin gæsla við erlend skip í Hornafjarðarhöfn - 05.05.2004 Maí

Þann 1. júlí nk. tekur gildi ný alþjóðleg siglingaverndaráætlun sem er samkvæmt samþykkt Alþjóðasiglingastofnunarinnar IMO, sem er ein af stofnunum Sameinuðu Þjóðanna, áætlunin felur í sér sérstakar ráðstafanir til að auka og efla siglingavernd í skipum sem eru í alþjóðlegum siglingum og hafnavernd í höfnum sem þjóna slíkum skipum. “Þetta er hluti af alþjóðlegum öryggisráðstöfunum gegn vá og hryðjuverkum og nær yfir allar hafnir þar sem tekið er á móti skipum erlendis frá og eins þeim sem fara héðan til erlendra hafna” segir Ari Jónsson formaður hafnarnefndar Hornafjarðar. Lesa meira
 
Það var fjör í Suðursveitinni

Námsferð hjá 4. og 5. bekk Hafnarskóla - 05.05.2004 Maí

Á mánudag og þriðjudag fóru nemendur í 4. og 5. bekk í námsferð í Suðursveit. Gist var í Hrollaugsstöðum og þar var einnig haldin kvöldvaka og fótboltamót en að öðru leyti var dvalið í vestari hluta Suðursveitar, fyrir sunnan sand eins og Suðursveitungar kalla það. Fyrri daginn var haldið vestur að Felli og gengið þaðan inn í Þröng og alveg upp að Breiðarmerkurjökli þar sem nemendur fengu allir að fara upp á jökulinn. Skoðaður var íshellir undir jöklinum og uppi á jöklinum var svelgur sem hægt var að horfa ofan í. Á leiðinni var náttúrulífið skoðað og spáð í bergtegundir og jarðlög. Nemendur söfnuðu 40 jurtategundum á þessari leið sem við flest teljum fremur gróðursnauða. Lesa meira
 
Vanda í Hafnarskóla

Unnið að stefnumörkun og námskrár innan Sindra - 05.05.2004 Maí

Á dögunum heimsótti Vanda Sigurgeirsdóttir nemendur í Hafnar- og Heppuskóla ásamt því að funda með kennurum, foreldrum, stjórnum íþróttadeilda og þjálfurum. Í framhaldi af heimsókn Vöndu var skipaður verkefnahópur sem hefur það að leiðarljósi að vinna að stefnumörkun og námskrár innan Sindra. Þetta er hið þarfasta verkefni sem vonandi á eftir að stuðla að minna brottfalli unglinga úr íþróttum. Vanda mun senda frá sér samantekt úr heimsókninni og mun m.a. benda á það sem hún mundi vilja leggja áherslu á og það sem hún telur að betur mætti fara í þjálfun ungmenna á Hornafirði. Lesa meira
 
Albert bæjarstjóri tilbúin á hjólinu

Hjólað í vinnuna - 04.05.2004 Maí

Annað árið í röð stendur Ísland á iði fyrir hjólreiðaátaki undir nafninu “Hjólað í vinnuna” Um er að ræða heilsueflingarverkefni fyrir fyrirtæki og er meginmarkmið þess að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. “Hjólað í vinnuna” er keppni á milli fyrirtækja þar sem starfsfólk er hvatt til að hvíla bílinn og nota reiðhjólið í staðinn. Í keppninni í ár er sú nýbreytni tekinn upp að þeir sem ganga, skokka eða nota línuskauta geta tekið þátt. Keppt er í 6 flokkum eftir fjölda starfsmanna hjá fyrirtækjum og eru keppnisgreinarnar tvær, flestir þátttökudagar og flestir kílómetrar. Lesa meira
 
Ásgerður Gylfadóttir formaður Hornafjarðardeildar RKÍ

RKÍ Hornafjarðardeild með tvö námskeið í maí - 04.05.2004 Maí

Rauði krossinn, Hornafjarðardeild ætla að bjóða almenningi upp á tvö námskeið sem haldin verða á Höfn í maí. Þetta eru 16 og 8 kennslustunda námskeið í skyndihjálp. Lengra námskeiðið er fullt námskeið þar sem farið er í alla grunnþætti og er gott fyrir þá sem ekki hafa farið áður á námskeið og þurfa t.d. vinnu sinnar vegna að vera í góðu formi hvað þetta snertir segir Ásgerður Gylfadóttir formaður Hornafjarðardeildarinnar. Átta stunda námskeiðið er svona upprifjunar námskeið fyrir þá sem hafa áður farið á námskeið, en talið er mjög gott fyrir fólk að rifja þetta upp á tveggja ára fresti. Ef komið er að þar sem slys hefur orðið er mikilvægt fyrir fólk að vita hvernig bregðast skuli við og á lengra námskeiðinu er bæði farið yfir atriði sem varða slys, endurlífgun, sjúkdóma og margt fleira. Lesa meira
 
Ungar fimleikadrottnigar hjá Sindra

Fimleikdeildin fær góða gjöf - 04.05.2004 Maí

Í síðustu viku var Fimleikadeild Sindra færð góð gjöf. Það var Öryggisvarslan sem kom færandi hendi og færði deildinni stórt Trampólín. Bára Ólafsdóttir þjálfari hjá fimleikadeildinni sagði að fimleikadeildin væri mjög þakklát fyrir þessa gjöf sem kæmi til með að nýtast deildinni vel bæði faglega og svo er þetta líka alveg ótrúlega skemmtilegt áhald sagði Bára. Við erum ofsalega ánægð með þessa gjöf og ánægð með að Öryggisvarslan skuli hugsa svona vel til okkar. Næst á dagskránni hjá fimleikadeildinni er sýning hjá krökkum 6 – 9 ára og verður sú sýning mánudaginn 10. maí kl. 17:00 og auðvitað vonumst við eftir því að fólk fjölmenni og sjái hvað krakkarnir hafa verið að gera í vetur sagði Bára. Lesa meira
 
Greiðfært í allar áttir

Heldur dregur úr vindi - 03.05.2004 Maí

Í norðan rokinu sem gengið hefur yfir landið hefur víða verið lítið ferðaveður. Þannig var ekkert ferðaveður um Hvalnes- og Þvottárskriður í gær og í nótt og þurfti vegagerðin að hreinsa töluvert grjót úr skriðunum í morgun. Þar fyrir austan er vindur einnig mikið að ganga niður og færð góð. Vegagerðin þurfti að hreinsa snjó af Öxi en því verki er nú lokið og færð þar ágæt en þó eru smá hálkublettir. Hálka er á Fagradal og Fjarðarheiði. Á leiðinni frá Hornafirði til Reykjavíkur er veður skaplegt. Við Kvísker er N 12 m/s og slær upp í 18 m/s í hviðum en fer lægjandi. Við Lómagnúp er er NA 10 m/s og á Mýrdalssandi er NNV 10 m/s. Lesa meira
 
Ágætt gluggaveður á Hornafirði

Kuldalegt á landinu - 03.05.2004 Maí

Um helgina hvarf sumarið og hálf vetrarlegt varð á Hornafirði. Ekki snjóaði samt á okkur eins og sumstaðar annarstaðar á landinu, en mjög stíf norðanátt var og heldur lítið úti veður. Klukkan 6 í morgun var NV 13 m/s í Akurnesi og hitinn rétt skreið yfir frostmark og gerir Veðurstofan ráð fyrir sama veðri næsta sólarhringinn og hitinn 0 – 8 stig. Vonandi er þetta síðasta kuldakastið á þessu vori og að því loknu taki við sól, sumar og hiti. Reikna má með að þetta kuldakast haldist fram í miðja viku en þá er von um heldur hlýnandi veður. Lesa meira
 
Steinunn  SF10 á leið til lands með Júlíus Garðar ÁR111

Steinunn dró Júlíus Garðar til Hornafjarðar í dag. - 02.05.2004 Maí

Júlíus Garðar ÁR 111 var út af Ingólfshöfða þegar gírinn hjá þeim bilaði. Steinunn SF10 var á veiðum um þrjár mílur frá og kom hún bátnum til hjálpar og tók hann í tog til Hornafjarðar. Við vorum að klára að draga trossur við Höfðann og áttum trossur austar en létum þær eiga sig og héldum með bátinn í land sagði Ægir Birgisson skipstjóri á Steinunni. Siglingin í land tók 6-7 tíma og gekk vel. Við fórum bara rólega því það var svo hvasst og við Hrollaugseyjar slitnaði báturinn aftanúr en vel gekk að ná honum aftur. Mjög hvasst var út af Hvanney og aftur þurfti að laga tógið en ósinn var sléttur og þetta gekk allt prýðilega sagði Ægir. Lesa meira
 
Myndasafn 567

Vel lukkaður hjóladagur - 01.05.2004 Maí

Í dag var haldinn hjóladagur á Höfn og var það Slysavarnadeildin Framtíðin sem stóð fyrir honum með aðstoð félaga úr Björgunarfélagi Hornafjarðar, Kiwanis og Lögreglunni á Höfn. Mikið fjölmenni mætti á staðinn og eftir að skoðun hafði farið fram á íþróttavellinum við Heppuskóla var haldið í hóp eftir Hafnarbrautinni og sem leið lá út í Slysavarnarhús þar sem tekið var á móti krökkunum með Svala og nýbökuðum kleinum. Allir krakkarnir fengu viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna í hjóladeginum ásamt pennaveski frá Sparisjóð Hornafjarðar. Lesa meira
 
Ylfa Rós,Torleifur, María og Jóhann Dagur

Nýr veitingarskáli “Frú María” opnar í Nesjum - 01.05.2004 Maí

Nesjaskálinn hefur nú tekið miklum stakkaskiptum frá því sem áður var, þar er ekki lengur matvöruverslun heldur kominn snyrtilegur og aðlaðandi veitingastaður með tveim veitingastofum. Eigendur veitingasölunnar "Frú Maríu" eru hjónin María Rós Valgeirsdóttir og Þorleifur Guðjónsson sem bæði eru að vestan, hún úr Dýrafirðinum og hann úr Reykhólasveitinni. Þetta er annað sumarið sem þau eru í Nesjaskálanum. Við áttum leið hér hjá í júní í fyrra og þá var allt lokað og ekkert um að vera svo þá datt okkur í hug að hér væri tækifærið, hringdum í Esso og það samdist um að við fengjum aðstöðuna hér segir María. Við vorum bara með hjólhýsi hér sem bústað í fyrra en nú höfum við íbúð og veitingaskálinn er að komast í það horf sem við viljum. Við vonum að fólki líki vel við þessar breytingar og finnist notalegt að koma og fá sér kaffi sopa og annað sem í boði er. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica