Námsferð 6. og 7. bekkjar Hafnarskóla í Öræfin
Á þriðjudag og miðvikudag var 90 manna hópur úr Hafnarskóla í námsferð í Öræfunum. Þetta voru nemendur 6. og 7. bekkjar ásamt 10 starfsmönnum og var tíminn notaður í rannsóknir, leik og störf. Gist var í Hofgarði þar sem haldið var fótboltamót og kvöldvaka en þess utan dvaldi hópurinn í Skaftafelli. Í Skaftafelli er kjörin aðstaða til hverskonar útivistarfræðslu og náms auk þess sem mikilvægt er að kynna þjóðgarðinn vel fyrir nemendum.
Annan daginn voru nemendur í hópavinnu þar sem þau lærðu hvernig hægt er að mæla hæð trjá, hvernig vatnshraði í ám er mældur og hvernig hæð og lengd milli jökulaldna er mæld. Einnig svöruðu þau spurningum í Skaftafellsstofu, horfðu á myndband um hlaupið í Skeiðará 1996 og mældu út tóftir gamalla útihúsa í Skaftafellsbrekkum. Hinn daginn fóru nemendur í gönguferð þar sem þau fræddust um sögu staðarins en einnig tóku þau þátt í sjálfboðaliðsvinnu, klipptu tré og hreinsuðu til. Mikið er um sjálfboðaliðsvinnu í þjóðgörðum landsins og kjörið fyrir skólahópa að fá að taka þátt í henni og leggja þannig sitt af mörkum.
Gott veður var þessa daga þrátt fyrir síðdegisskúrir á þriðjudag. Hylurinn í Lambhaganum hafði mikið aðdráttarafl og eftir vinnu á miðvikudag skelltu flestir sér út í ískaldan hylinn. Nemendur og starfsfólk Hafnarskóla þakkar starfsmönnum í Skaftafelli og nemendum og starfsmönnum Hofgarðs sérlega góðar móttökur og vonast til að koma aftur eftir tvö ár.
Sjá myndir úr ferðinni





Skrifa athugasemd