Apríl
Ferðaþjónustan við Jökulsárlón
Ferðaþjónustan við Jökulsárlón

29.04.2004 Apríl

Lögð verður áhersla á humar og ís

Ferðatorgið verður í Vetrargarðinum Smáralindinni í Reykjavík dagana  8.-9. maí n.k.  Þetta er sýning sem ferðaþjónustuaðilar um land allt standa að, kynning á því sem hver landshluti hefur uppá að bjóða fyrir þá sem vilja ferðast um landið. Kjörorðið er "Ísland sækjum það heim" og þetta er liður í því að veita sem bestar upplýsingar um hvað í boði er hvar sem er á landinu. Ferðamálafélag Austur- Skaftafellssýslu og Markaðsstofa Austurlands eru saman með bás á sýningunni.


Þetta er sama markaðssvæði hjá okkur og Markaðsstofunni og við kynnum allt svæðið austan-og suðaustanlands fyrir innanlandsmarkað segir Guðrún Ingimundardóttir formaður Ferðamálafélagsins. Við skiptum þessum bás í tvo og okkar liðsmenn kynna Austur-Skaftafellssýslu og þá ótal möguleika sem hún hefur uppá að bjóða. Guðrún segir eitt af því sem lögð er áhersla á að kynna sé humarinn og þá mörgu þætti sem honum tilheyra og til að minna á þau áhrif sem ís hefur á ferðamennsku í sýslunni verðum við með ísjaka úr Jökulsárlóni á staðnum .

Þetta er í þriðja sinn sem Ferðatorgið er haldin og reiknað er með að 25 til 30 þúsund manns komi á sýninguna og rétt er að taka fram að það kostar ekkert inn á hana. Sýningin byrjar kl. 11.00 báða dagana og er til kl.18.00

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica