Apríl
Kröfuganga í blíðskaparveðri á Höfn
Kröfuganga í blíðskaparveðri á Höfn

28.04.2004 Apríl

Alþjóðlegur baráttudagur verkafólks

Á laugardaginn er 1. maí alþjóðlegur baráttudagur verkafólks. Vökull Stéttarfélag mun eins og ævinlega standa fyrir hátíðardagskrá í tilefni dagsins. Á laugardaginn hefst dagskráin með kröfugöngu frá Víkurbraut 4 kl. 14:00 og mun Lúðrasveit Hornafjarðar leika fyrir göngunni. Að göngu lokinni munu Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður Vökuls flytja ávörp. Vökull Stéttarfélag og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi bjóða síðan til kaffisamsætis á Víkinni og mun Leikfélag Hornafjörður skemmta gestum.

Veitingastaðurinn Víkin sér svo til þess að menn geti skemmt sér fram eftir nóttu því þar verður stórdansleikur frá kl. 23:00 – 03:00.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica