Apríl
Starfsfólk Olís við opnun nýju stöðvarinnar
Starfsfólk Olís við opnun nýju stöðvarinnar

29.04.2004 Apríl

Frumraun að vera með Ellingsen í Olís verslun

Það er ánægjulegt þegar atvinnufyrirtæki á staðnum stækka og bæta við starfsfólki eins og er hjá Olís hér á Höfn eftir að nýi söluskálinn var tekin í notkun. Áður voru þar fimm manns í fullu starfi og þegar nýja verslunin opnaði bættust við þrjú heil störf og jafnvel það fjórða seinna. Það er búið að vera mikið að gera þar frá því formlega var opnað á sumardaginn fyrsta. Þetta hefur bara verið alveg meiri háttar segir framkvæmdarstjórinn Haukur Sveinbjörnsson, opnunarveislan stóð fram yfir helgina með allskonar góðum tilboðum sem fólk hefur nýtt sér vel. Við ætlum að hressa vel upp á ís-menninguna á staðnum og vera með úrval af ís og ís-réttum og ég er viss um að það á eftir að ganga vel því stóra fína ísvélin hrundi eftir þrjá daga og gamla máltækið segir ,, fall er farar heill”, og við fáum nýja ísvél strax eftir helgina.

Við erum að undirbúa Ellingsen-daga og þá koma menn frá Verslun Ellingsen og verða meðal annars með gasvörur og veita faglegar leiðbeiningar um notkun þeirra og meðferð segir Haukur. Þetta er frumraun hjá Olís að vera með svona Ellingsen horn í Olís-verslun og við fáum miklu fleiri vörutegundir frá þeim en nú er, sömu afslætti og tilboð og sama verð og er hjá þeim í höfuðstöðvunum. Það verður lögð áhersla á að hafa mikið af veiðivörum t.d. fyrir sportveiðina.

Með nýjum matreiðslutækjum og auknu úrvali hefur pylsusala hjá okkur aukist um 100 % og við verðum með nokkrar tegundir af nýbökuðum brauðum og þau fá mikið hrós. Krakkarnir í Heppuskóla eru eins og fleiri ánægð með að fá meira matarúrval og við ætlum að bjóða þeim uppá nýbökuð rúnnstykki með áleggi, einhverju sem er hollt fyrir þau segir Haukur. Eins og sjá má af þessu megum við vera ánægð með viðtökur fólks og byrjunin hefur verið frábær og gaman að finna hvað fólk er ánægt með þetta.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica