Öldungar í blaki
Um s.l. helgi lögðu blakkonur í Sindra land undir fót og skelltu sér á öldungamót í blaki sem haldið var á Akranesi. Mótið byrjaði á fimmtudag og því lauk á sunnudag. 80 lið voru skráð til keppni og voru keppendur um 800 talsins. Öldungarnir frá Sindra spila í 4. deild en alls eru 6. deildir í kvennablakinu. Hinar “öldruðu” konur Sindra lentu í 4. sæti í sinni deild en þar keppa 7 lið og voru þær mjög ánægðar með árangurinn. Bjössi blak og Védís voru liðsstjórar hjá Sindra en þau hjónin eiga sterkar taugar til blakstarfs á Hornafirði og meðan þau bjuggu á Hornafirði blómstraði blakíþróttin og keppt var í mörgum flokkum.
Kvenöldungar Sindra æfa tvisvar í viku yfir veturinn og þá er ekkert gefið eftir, en þær segjast sakna þess svolítið að ekkert karlalið skuli vera til staðar á Hornafirði og vilja þær hvetja karlpeninginn til að mæta í haust og sýna hvað í þeim býr. Öldungamótið mun fara fram á Akureyri á næsta ári.





Skrifa athugasemd