Apríl
Stella Hrönn  ( Mynd Ragnar Frank)
Stella Hrönn ( Mynd Ragnar Frank)

27.04.2004 Apríl

Stella Hrönn boðin velkomin í Öræfasveit

Fjölmennt lið Öræfinga, um 50 % íbúa í sveitinni komu saman í Hótel Freysnesi um helgina og buðu nýjan starfsmann þjóðgarðsins í Skaftafelli velkominn til starfa í Öræfasveit. Veitingar, kaffi og kökur voru þar í boði þjóðgarðsins á degi umhverfisins. Þessi nýi liðsmaður þjóðgarðsins er Stella Hrönn Jóhannsdóttir sem valin var úr hópi tuttugu og eins umsækjenda um stöðu sérfræðings við þjóðgarðinn í Skaftafelli.
Að gömlum og góðum íslenskum sið sagði hún Öræfingum frá sér og fjölskyldu sinni en hún er frá bænum Keflavík á Hegranesi í Skagafirði.

Faðir Stellu er Jóhann Már Jóhannsson, sauðfjárbóndi og söngvari, bróðir stórsöngvarans Kristjáns Jóhannssonar. Unnusti Stellu er Karl Guðmundsson, Svavarssonar, en hann er uppalinn á Stafafelli í Lóni og á Höfn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica