Tveir fullfermis túrar
Það hljóp heldur betur á snærið hjá áhöfninni á Þinganesi SF-25 um s.l. helgi. Mokfiskirí var í botnvörpuna og tveir fullfermistúrar á örfáum dögum. Á laugardaginn lönduðu þeir í Reykjavík fullfermi af þorski eða um 45 tonnum. Strax var haldið á miðin að lokinni löndun og var veiðin vægast sagt ævintýralega góð og kom skipið aftur inn til löndunar í gær með fullfermi. Aflinn fékkst á Eldeyjarsvæðinu suður af Reykjanesi og voru menn að taka þetta um tólf tonn í holi og var uppistaðan í aflanum 3 – 5 kg. þorskur. Átta manna áhöfn er á skipinu og eigendur skipsins eru Skinney-Þinganes á Hornafirði.
Humarveiðar eru nú hafnar frá Hornafirði og hafa þær gengið vel og hafa bátarnir verið að landa að meðaltali um einu og hálfu tonni í veiðiferð. Veiðisvæðið er aðalega í Breiðamerkur- og Hornafjarðardýpi.





Skrifa athugasemd