Apríl
Frábært dómaratríó!
Frábært dómaratríó!

26.04.2004 Apríl

Styttist í sigurleikina

Um helgina héldu meistaraflokkslið Sindra í knattspyrnu í enn eina ferðina til Reykjavíkur til að keppa í deildarbikarnum. Heldur hefur gengið illa bæði hjá meistaraflokk karla sem og kvenna, en nú virðist eitthvað vera að rofa til og eitt er víst að það styttist alltaf í sigurleikinn. Sindraskvísur kepptu á laugardaginn við Þrótt Reykjavík á gervigrasvellinum í Laugardal. Leikið var í hávaða roki og bar leikurinn þess glöggt merki. Stelpurnar okkar urðu að játa sig sigraðar 4 – 0 en mikil batamerki sáust á liðinu frá leikjunum helgina áður. Tveir leikir eru eftir í deildarbikarnum hjá stelpunum. Þann 8. maí gegn Fjölni og 9. maí gegn Keflavík.

Meistaraflokkur karla lék tvo leiki um helgina. Á laugardaginn tapaði liðið naumlega fyrir Leikni Reykjavík 1 – 0 og á sunnudaginn gerði liðið jafntefli við BÍ 1 – 1. Þátttöku Sindra í deildarbikar karla er þar með lokið þetta árið. Liðið lék fimm leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði fjórum. Fyrsti alvöru leikur sumarsins verður síðan háður á Djúpavogi 18. maí en þar mun Sindri mæta heimamönnum bikarkeppninni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica