Sparkvallaátak KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands hefur undanfarna mánuði unnið að undirbúningi sparkvallaátaks. Sparkvellirnir sem fyrirhugað er að byggðir verði víða um land eru 18 metrar á breidd og 33 metrar á lengd og verða lagðir fyrsta lokks gervigrasi. Vellirnir verða vel girtir af og munu mörkin falla inn í girðinguna. Á fundi hjá Æskulýðs- og tómstundaráðs 4. desember s.l. var hvatt til þess að sveitarfélagið gengi til samstarfs við KSÍ um gerð sparkvallar á Hornafirði. Hjá sveitarfélaginu fengust þær upplýsingar að Sveitarfélagið Hornafjörður hefði áhuga á að ganga til samstarfs við KSÍ um gerð sparkvallar þó svo að ekki hefði enn þá verið gengið frá umsókn þar að lútandi.
Um staðsetningu slíks vallar ef að yrði hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun, en skýrt er kveðið á um það í reglum KSÍ að slíkur völlur sé á eða við skólalóð.





Skrifa athugasemd