Apríl
Samningar samþykktir
Á miðvikudaginn s.l. lauk talningu í atkvæðagreiðslu um samkomulag Vökuls og Samtaka atvinnulífsins. Niðurstaða atkvæðagreiðslu var eftirfarandi: Á kjörskrá voru 374 og greiddu 174 atkvæði eða 46,52%. Já sögðu 138 eða 79,31%, nei sögðu 28 eða 16,09% og auðir seðlar voru 8 eða 4,6%. Samningarnir voru því samþykktir og liggur því fyrir að samningar er komin á fyrir verkafólk á almenna markaðnum. Samningarnir gilda frá 1. mars s.l.
Í vikunni voru haldnir aðalfundir iðnaðarmannadeildar og deildar verslunar og skrifstofufólks hjá Vökli. Á fundum beggja deilda kom fram að samningar væru á lokastigi. Stjórnir beggja deilda voru endurkjörnar.





Skrifa athugasemd