Formleg opnun nýja Olísskálans
Olísskálinn á Höfn var formlega opnaður við hátíðlega athöfn klukkan tíu í morgun. Fjöldi manns mætti á staðinn og félagar úr lúðrasveitinni undir stjórn Jóhanns Morávek léku ljúf sumarlög. Albert Eymundsson bæjarstjóri klippti á borðann og opnaði Olísverslunina formlega og óskaði eigendum og umsjónarmönnum til hamingju með staðinn. Fjöldi tilboða er í gangi í tilefni dagsins, boðið var uppá kaffi og ilmandi brauð sem bakað er á staðnum og börnin fengu ís. Þessi nýja verslun er í alla staði hin glæsilegasta og gott vöruúrval.
Sendum Hauk, Ásdísi og öllu starfsfólkinu bestu hamingjuóskir með nýja staðinn.
Á myndinni eru Óli Júlla (pabbi Hauks), Haukur, Ásdís, Helga Friðriksdóttir forstöðumaður Markaðssviðs þjónustustöðva Olís og Albert bæjarstjóri.





Skrifa athugasemd