Atkvæðagreiðslu líkur í dag
Atkvæðagreiðslu um samninga Vökuls við Samtök atvinnulífsins á Hornafirði líkur í dag. Verslunarmenn eru á lokasprettinum í samningamálunum en iðnaðarmenn eru eitthvað lengra á eftir með sína samninga segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður Vökuls. Lítið sem ekkert hefur gerst í samningum hjá sjómönnum. Í dag verður haldinn sameiginlegur fundur með starfsmönnum hjá öllum bræðslum á Austurlandi og er það annar fundur þeirra í samningamálum. Búið er að semja fyrir þá sem vinna hjá ríkinu en þeir fara ekki í atkvæðagreiðslu fyrr en í maí þar sem beðið er eftir að gerðir séu stofnanasamningar á hverri stofnun fyrir sig.
Hjördís Þóra segir að atvinnuástandið hér fari hægt batnandi og talsvert sé um það núna að auglýst sé eftir fólki í vinnu. Síðastliðinn föstudag voru 38 manns, 15 karlar og 23 konur, á atvinnuleysisskrá í sveitarfélaginu en 14.apríl 2003 voru 44 atvinnulausir.





Skrifa athugasemd