Apríl
Hressir strákar í Cock Robin
Hressir strákar í Cock Robin

21.04.2004 Apríl

Árshátíðarball Heppuskóla

Að kvöldi sumardagsins fyrsta verður árshátíðarball Heppuskóla haldið í Mánagarði. Það er engin smá hljómsveit sem mun leika fyrir dansi hjá krökkunum því “200 þúsund naglbítar” munu mæta á svæðið og halda uppi brjálaðri stemningu. Einnig munu Hornfirsku hljómsveitirnar Cock Robin og Fiction koma fram. Ekki er nokkur vafi á mikið fjör verður í Mánagarði, enda “200 þúsund naglbítar” rokksveit eins og þær gerast bestar og þekkt fyrir mikla stemningu og líflega sviðsframkomu. Svo er bara að bíða og sjá hvort Hornfirsku sveitirnar slái stórbandinu við á ballinu!

Ballið byrjar kl. 21:00 og því líkur kl. 24:00. Sætaferðir verða frá tjaldstæði og Heppuskóla kl. 20:45 og til baka frá Mánagarði kl. 00:10. Ballið er fyrir 8. – 10. bekk.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica