Apríl
Þær eru samt lang flottastar
Þær eru samt lang flottastar
Þær eru samt lang flottastar

19.04.2004 Apríl

Ekki okkar helgi, gengur betur næst

Um s.l. helgi kepptu bæði karla og kvennalið Sindra í deildarbikarnum. Meistaraflokkur karla keppti við Víðir Garði á laugardaginn, leikurinn fór fram á Leiknisvellinum og unnu Víðismenn leikinn 4-0. Sindramenn áttu þó sín færi í leiknum og hefðu með smá heppni getað lætt inn 2–3 mörkum. Uppistaðan í leikmannahópnum hjá Sindra voru strákar sem enn eru gjaldgengir í 2. flokk og vonandi herðir þessi reynsla þá og hvetur til dáða á komandi sumri. Björn Pálsson er búin að tilkynna félagaskipti aftur yfir í Sindra og lék með liðinu um helgina ásamt hinum nýja markmanni Sindra, Nezir Ohran frá Bosníu, en félagaskipti hans gengu í gegn á laugardaginn. Eins og áður hefur komið fram er þar á ferðinni góður markmaður og verður hann ekki sakaður um mörkin sem liðið fékk á sig um helgina.

Meistaraflokkur kvenna lék um helgina tvo leiki í deildarbikarnum og var þá mætt á ný til leiks með Sindra, Soffía A. Gunnarsdóttir, en hún hefur tilkynnt félagaskipti í Sindra fyrir komandi sumar. Á laugardaginn spiluðu Sindraskvísur við úrvalsdeildarliði þeirra norðanmanna, Þór/KA/KS og tapaðist sá leikur 14-0 og á sunnudaginn töpuðu þær 8–0 fyrir HK/Víking. Ekki góð úrslit fyrir stelpurnar, en taka verður tillit til þess að leikmannahópur Sindra var mjög fámennur og ungur að árum. Í leiknum á laugardaginn voru tveir varamenn, en engin varamaður var í leiknum á sunnudag. Áfram Sindri

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica