Kaffisala á sumardaginn fyrsta
Fréttatilkynning
Hin árlega kaffisala Slysavarnadeildarinnar Framtíðar á sumardaginn fyrsta verður í húsi félagsins. Kaffisalan hefur notið mikilla vinsælda hjá bæjarbúum og ekki er að efa að fullt verður út úr dyrum hjá þeim slysavarnakonum. Slysavarnadeildin Framtíðin hélt upp á 50 ára afmælið sitt þann 7. febrúar s.l. og hélt deildin aðalfund sinn þann dag. Í framhaldinu var ákveðið að halda hátíðarkvöldverð á Víkinni og var hann haldinn þann 19. mars s.l. Slysavarnafólk og gestir áttu saman ánægjulega kvöldstund með kvöldverði, glensi og gríni.
Slysavarnadeildinni voru færðar góðar gjafir í tilefni afmælisins. Björgunarfélag Hornafjarðar færði deildinni stafræna myndavél og síma í hús félagsins, Sveitarfélagið Hornafjörður gaf deildinni “Sögu Hafnar”, Krossey ehf. gaf 100.000 kr., Slysavarnafélagið Landsbjörg gaf 50.000 kr. og Ásgerður og Gunnar sendu blóm í tilefni dagsins. Kunnum við öllum þeim sem glöddust með okkur og færðu okkur gjafir bestu þakkir. Stjórn SVD Framtíðar




Skrifa athugasemd