Gestastofan í Skaftafelli stækkuð
Auglýst var í vetur eftir fólki sem áhuga hefði á að taka að sér veitingasöluna í Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli og rann umsóknarfrestur út án þess að nokkur umsókn bærist. Það hefur enginn fengist til að taka veitingasöluna að sér svo við breyttum bara rekstrarfyrirkomulaginu þannig að gestastofan verður stækkuð um það pláss sem veitingastofan og verslunin voru í þannig að skálinn verður eitt rými segir Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður.
Í gestastofunni verður smáhorn fyrir kaffisölu og nauðsynlegustu vörur fyrir tjaldsvæðið. Þetta fyrirkomulag er algengt í gestastofum erlendis og gefst vel svo við vonum að það verði eins hjá okkur segir Ragnar. Þetta þýðir minni þjónustu fyrir stærri hópa hér í gestastofunni en það er stutt í Freysnes þar sem öll þjónusta er til staðar og eins er góð þjónusta á Fagurhólsmýri og Kirkjubæjarklaustri. Með þessum breytingum verður aðstaða í gestastofu mjög góð og í glerskálanum við hlið hennar er tilvalið að setjast niður með kaffibollann og njóta útsýnisins. Ragnar segir að meðal þess starfsfólks sem ráðið verði til vinnu í Þjóðgarðinum séu fimm heimamenn, þar af tveir fastráðnir og að þetta fólk muni starfa þar lengur en yfir ferðatímann og vinni að ýmsum verkefnum sem fyrir liggi. Með þessu er verið að fækka skammtíma starfsfólki og lengja tímabilið sem unnið er í Þjóðgarðinum og ljúka verkefnum áður en ferðatímabilið hefst að vori segir Ragnar. Mikið hefur verið um heimsóknir skólafólks í gestastofu undanfarið og von er á 90 skólanemendum frá Höfn eftir viku.





Skrifa athugasemd