Apríl
Varskar húsmæður á reiðnámskeiði
Varskar húsmæður á reiðnámskeiði

17.04.2004 Apríl

Húsmæður í reiðskóla hjá Hanný Heiler

Hanný Heiler bóndi og tamningamaður í Dynjanda í Nesjum hefur látið langþráðan draum rætast og opnað reiðskóla. Hún er komin með góða aðstöðu fyrir kennslu og byrjuð með reiðnámskeið. Núna í vikunni byrjuðu fjórar húsmæðrur á Höfn að læra undirstöðuatriðin í reiðmennskunni. “Konurnar eru allar óvanar hestum og fyrst læra þær að leggja hnakkinn á hestinn, fara á bak og sitja hestinn rétt og stjórna honum, þær stóðu sig vel og ætla allar að koma aftur,” segir Hanný. Þessar konur eiga það sameiginlegt að eiga eiginmenn sem eiga hesta og sinna hestamennsku af áhuga. Ekki er ljóst hvort konurnar eru að þessu til að geta sótt um inngöngu í hestaklúbb karlanna eða hvort þær ætla að stofna sinn eigin klúbb og er nafnið Hestaklúbburinn Glódís tilnefnt í því sambandi.

Byrjað er að skrá þátttakendur á töltnámskeið sem haldið verður á næstunni og eins getur fólk haft samband við Hanný og fengið tíma þegar því hentar. Hver kennslutími með hesti og öðru tilheyrandi kostar 1.500 kr. Þeir sem vilja eiga hest en hafa ekki aðstöðu eða getu til að hafa hann geta komið honum í vetrarvist hjá Hanný. Innifalið í vetrarvistinni sem kostar 7.000 kr á mánuði, er húsaskjól, fóðrun og umhirða. Fyrir hest í útigangi með heygjöf er gjaldið 3.000 kr á mán.
Hanný veitir alla þjónustu í sambandi við hestinn m.a. að járna og láta hann hreifa sig.
Þessi þjónusta kemur sér vel fyrir þá sem ekki geta annast hesta sína sjálfir en vilja skreppa á hestbak og í vetur hafa fjórar konur nýtt sér þessa þjónustu fyrir hesta sína.
Sendum Hanný hamingjuóskir með starfsemina, sem örugglega á eftir að verða mörgum til ánægju og gagns.

Á myndinni eru (frá vinstri) Sigríður Margrét Magnúsdóttir, Hanný Heiler, Elín Magnúsdóttir, Fanney Þórhallsdóttir og Unnur Garðarsdóttir.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica