Hornfirsk stuttmynd komin í 16 mynda úrslit á PoppTíví
Úrslitaþáttur í Sketcha-keppni Landsbankans & PoppTíví var sýndur s.l. miðvikudag á PoppTíví og er alls búið að sýna 80 stuttmyndir sem eru að hámarki 7 mín að lengd. 16 af þeim eru nú komnar í úrslit og þar á meðal er stuttmynd þeirra félaga Daníels Imslands og Hlyns Pálmasonar "FS3" sem fjallar um goðsögn sem leitar hefndar eftir að fjölskylda hans er myrt. Myndin sem er í anda Braveheart er alls 40 mín að lengd og er klippt úr henni 7 mínútur fyrir Sketcha-keppnina.
Myndin er tekin á Höfn og í nágrenni en í henni má sjá þekkta Hornfirðinga sem léku gestahlutverk og eru þar á meðal Raggi Meysa, Hans Christensen, Nonni og Elli frá Málningarþjónustunni og Óli Kalli múrari.
Úrslitin í Sketch-keppninni verða tilkynnt í Fréttunum á PoppTíví á mánudagskvöld og eru verðlaunin ekki af verri endanum. Í fyrstu verðlaun er Sony upptökuvél & Avid Express klippiforrit samtals að verðmæti yfir 400.000 kr. Í önnur og þriðju verðlaun eru svo glæsilegar Canon A60 stafrænar myndavélar.
Það eru áhorfendur sem kjósa bestu stuttmyndina með því að senda SMS en þeir sem vilja kjósa Hornfirsku myndina þurfa að senda SMS skeyti í síma 1909 og með textanum "PTV 3"





Skrifa athugasemd