Boltinn kominn vel af stað
Um páskana skruppu leikmenn mfl. Sindra í æfingaferð á Snæfellsnesið, nánar tiltekið til Ólafsvíkur og öttu þar kappi við heimamenn. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og voru spilaðir tveir leikir. Fyrri leiknum lauk með sigri Víkings 1 – 0 en síðari leikurinn fór 0 – 0 og í þeim leik stóð nýr markmaður Sindra, Nezir Ohran á milli stanganna og var það einróma álit manna að þar væri á ferðinni mjög góður markvörður og sýndi hann mikið öryggi og góð tilþrif þrátt fyrir að vera nýkomin úr löngu og ströngu ferðalagi.
Á laugardaginn keppa Sindramenn við Víðir úr Garði, er sá leikur í deildarbikarnum og fer hann fram Leiknisvelli kl. 12:00. Sama dag munu Sindraskvísur keppa við Þór/KA/KS í deildarbikarkeppni kvenna og fer sá leikur fram kl. 16:00 á gerfigrasvellinum í Laugardal. Meistaraflokkur kvenna mun leika annan leik í deildarbikarnum á sunnudaginn kl. 14:00 gegn sameiginlegu liði HK og Víkings og fer sá leikur einnig fram á gerfigrasvellinum í Laugardal.





Skrifa athugasemd