Apríl
Frá námskeiði fyrir unga ökumenn
Frá námskeiði fyrir unga ökumenn

15.04.2004 Apríl

Námskeið fyrir unga ökumenn

Þrettán ungmenni sóttu námskeið fyrir unga ökumenn sem haldið var í Nýheimum á Höfn í gær. Sjóvá Almennar hafa verið með námskeið fyrir unga ökumenn undanfarin ár þar sem Einar Guðmundsson forvarnafulltrúi og Sumarliði Guðbjörnsson deildarstjóri tjónadeildar ásamt Sigurði Helgasyni hjá Umferðaráði hafa annast kennsluna. Námskeið þessi hafa verið haldið á nokkrum stöðum á landinu og það sem af er þessu ári hafa rúmlega 600 ökumenn og ökunemar sótt þau.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og með þátttöku í því fá þessir ungu ökumenn fullan bónus í bílatryggingu hjá Sjóvá Almennum.
Einar Guðmundsson segir að árangurinn af þessari umferðarfræðslu sé mjög góður og þeir sem sótt hafa námskeiðin lendi miklu sjaldnar í tjónum og það séu yfirleitt minni tjón hjá þeim.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica