Apríl
Björn Sigfússon með nikkuna góðu (mynd:Gísli Örn)
Björn Sigfússon með nikkuna góðu (mynd:Gísli Örn)
Björn Sigfússon með nikkuna góðu (mynd:Gísli Örn)

14.04.2004 Apríl

Nikkan þanin á landstíminu

Nú hafa netabátar frá Hornafirði hafið veiðar aftur gott páskafrí. Í gær var ágætis fiskirí en aflinn frekar blandaður að sögn sjónarvotta! Í dag réru flest skip til fiskjar, bæði stór og smá og var ágætis kropp að sögn heimildarmanns, sem ekki vill láta nafn síns getið. Ekki er útlit fyrir sjóveður á morgun enda gerir veðurspáin ráð fyrir ört vaxandi NA-átt og þykknar upp, 20-25 m/s og rigning seint í kvöld, en NV 18-23 m/s í fyrramálið. NV 10-15 m/s og skúrir seint á morgun og á föstudag N og NV 10-15 m/s, en mun hægari út af Suðausturlandi.

Drengirnir á Hafdísinni eru hins vegar hættir veiðum og eins og sjá má á myndinni tók kokkurinn aðeins í nikkuna á landstíminu í seinasta túrnum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica