Leikferð á Selfoss
Leikfélag Hornafjarðar og Leikhópurinn Lopi halda um komandi helgi í leikferð til Selfoss. Leikfélag Hornafjarðar mun sýna leikritið “Bar par” á föstudagskvöldið kl. 20:30 í leikhúsinu við Sigtún. Leikverkið “Bar par” hlaut feikn góðar viðtökur Hornfirðinga og góða dóma hjá gagnrýnendum. Leikhópurinn Lopi sem skipaður er unglingum á aldrinum 13 – 16 ára, mun síðan á laugardaginn sýna leikritið “Allt í plati” á sama stað kl. 14:00. Leikritið “Allt í plati” er skemmtilegt barnaleikrit þar sem Lína Langsokkur leiðir okkur um Hálsaskóg og þar hittir hún m.a. Lilla Klifurmús, Mikka ref, Karíus og Baktus og þá bræður Kasper, Jesper og Jónatann. Bæði leikritin eru í leikstjórn Magnúsar J. Magnússonar
Þetta er kjörið tækifæri fyrir Hornfirðinga búsetta á suðvesturhorninu til að sjá gróskuna í Hornfirsku leiklistarlífi og eru menn hvattir til að fjölmenna.





Skrifa athugasemd