Apríl
Nanna Halldóra og Sólveig (mynd:kokkur.is)
Nanna Halldóra og Sólveig (mynd:kokkur.is)

13.04.2004 Apríl

Velheppnuð styrktarveisla

Á laugardaginn var haldin glæsileg matarveisla í Nesjaskóla til styrktar fötluðum í Austur-Skaftafellssýslu. Húsfylli var og ekki annað að heyra en gestir væru ánægðir með kvöldið. Veislan byrjaði með fordrykk og léku þeir Einar Jónsson og Þórir Ólafsson ljúfa tónlist fyrir gesti. Valgeir Ólafsson tók síðan við sem veislustjóri og leiddi gesti í gegnum borðhaldið. Guðlaug Hestnes lék á píanóið meðan gestir nutu glæsilegra rétta sem framreiddir voru af Jóni Sölva og aðstoðarfólki hans. Fleiri listamenn komu fram og skemmtu gestum, Jóhann Árni Andrésson lék á hljómborð og Birna Þráinsdóttir á þverflautu. Nanna Halldóra Imsland söng lagið “A thousand miles” við píanóundirleik Sólveigar Sigurðardóttir og slógu þær stöllur hreinlega í gegn með flutningi sínum.

Þar sem styrktarveislan tókst svo vel í þetta fyrsta skipti sem hún var haldin er það mikil hvatning til þess að halda hana að ári og vonandi sem oftast eftir það. Viðtökur hafa verið vægast sagt frábærar bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica