Apríl
Skinney-Þinganes með nýtt vörumerki
Skinney-Þinganes með nýtt vörumerki

13.04.2004 Apríl

Nýtt vörumerki hjá Skinney-Þinganes

Nýtt vörumerki, Blumaris, hefur verið tekið í notkun hjá Skinney-Þinganes og verður vörumerkið notað á þær vörur sem fyrirtækið selur undir eigin nafni. Vörur frá fyrirtækinu eru velþekktar um allan heim undir mismunandi nöfnum, skammstöfunum og númerum en segja má að fyrirtækið hafi í raun ekki haft neitt sérstakt vörumerki. Hinu nýja vörumerki er ætlað að samræma þetta og festa í sessi þá góðu ímynd sem vörur félagsins hafa. Þetta kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins www.sth.is.

Undanfarin ár hafa íslensk sjávarútvegsfyrirtæki verið að færast nær markaðnum og endanlegum viðskiptavinum. Fyrirtækin hafa um leið orðið sjálfstæðari í sölumálum sínum og tekið virkari þátt í markaðssetningu afurðanna.
Sú ákvörðun að taka í notkun vörumerki er eðlilegt framhald af þessu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica