Bráðinn Svínafellsjökull skapar hættuástand
Hættuástand hefur skapast við Hafrafell í Öræfum þar sem gönguleið liggur að Svínafellsjökli. Jökullinn er alveg farinn á löngum kafla og þar sem göngustígur að jöklinum liggur er kominn 10-20 metra hár bakki meðfram honum og þar undir djúpt lón. Bakkinn er milli 100 - 200 metra langur og hefur grafið undan brúninni svo að ef farið er þar fram á er hætta á að bakkinn geti gefið sig og næsta víst er að þeim sem þar lenti niður verður ekki hægt að bjarga. Jón Benediktsson í Freysnesi segir að þarna sé full ástæða til mikillar varúðar, fólk verður að sýna aðgát. Vegurinn upp að þessu svæði er stutt austan við Skaftafellsá og þarna kemur fjöldi ferðamanna á sumrin, oft eru margar rútur á dag á planinu við göngustíginn. Frá planinu er smá spölur eftir göngustígnum fram á bakkann þar sem ekki er lengur hægt að komast að jöklinum.
Það er ekki orðið neitt gaman að fara þarna núna þegar ekki er hægt að komast að jökulbrúninni eins og var fyrir fáum árum segir Jón, þess í stað er komin ný gönguleið sem liggur frá planinu við Hafrafell meðfram jöklinum og að honum. Þetta er milli 1-2 km ganga og mikið betra útsýni þaðan einnig er hægt að fara til baka gönguleið frá jöklinum sem liggur miðjavegu milli Hafrafells og Freysnes út á þjóðveg. Geta má þess að Batman-kvikmyndatakan fór fram á Svínafellsjökli þarna skammt frá. Búið er að setja upp hættumerki við göngustíginn út á bakkann.





Skrifa athugasemd