Apríl
Vestrahorn VI
Vestrahorn VI

11.04.2004 Apríl

Málverkasýning á hornafjörður.is

Um páskahátíðina verður boðið uppá málverkasýningu á hornafjordur.is Það er listamaðurinn Elísabet Þorsteinsdóttir sem opnar fyrir þennan nýja lið á hornafjordur.is. Elísabet hefur lært myndlist á námskeiðum hjá Steinunni Einarsdóttir frá Vestmannaeyjum og eru flestar myndir hennar akríl- og olíumálverk. Myndir Elísabetar bera vott um að þar er á ferðinni góður listamaður og greinilegt að málaralistin er henni í blóð borin. Myndefnið sækir hún að mestu í heimabyggðina í Austur-Skaftafellssýslu. Elísabet hefur haldið fjórar málverkasýningar og eins hefur hún verið með málverk til sölu á Markaðstorgi Hornfirðinga í Hornabæ og hafa myndir hennar vakið mikla athygli þar.

Elísabet er gift Ögmundi Jóni Guðnasyni og eiga þau þrjú börn. Myndirnar sem eru á málverkasýningunni á hornafjordur.is er hægt að kaupa hjá Elísabetu í síma 478 1668.

Sjá sýningu

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica