Apríl
Mundi Sæm SF-1
Mundi Sæm SF-1

06.04.2004 Apríl

Þorskurinn í Páskafrí

Hornfirskir netabátar munu draga upp net sín á morgun en þá hefst hið árlega þorskveiðibann. Þorskveiðibannið nær yfir veiðar á grunnslóð frá Stokksnesi og suður og vestur um land. Þetta er nokkurs konar “fæðingarorlof” hjá þorskinum en fyrir austan Stokksnes og utan við 12 mílur má þó áfram reyna að krækja í þann gula. Frekar léleg veiði hefur verið hjá Hornfirskum vertíðarbátum að sögn Torfa Friðfinnssonar á Hafnarvoginni, aflinn hefur verið svona frá 5 tonnum og upp í þetta 10 – 11 tonn og vilja sjómenn kenna því um hversu lítið æti sé á svæðinu.

Smábátar hafa lítið getað róið vegna tíðarfars í vetur, en í norðanrokinu undanfarið hefur ekki væst um þá á miðunum vestur með landinu. Afli smábáta hefur verið þetta frá 500 kg. uppí 2 tonn. Rjómablíða var hjá trillukörlum við Hrollaugseyjar í dag. “Blankalogn, glampandi sól og reytings afli” sagði einn trillukarlinn í stuttu spjalli.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica