Apríl
Austurlandsmeistarar í 5. flokk 2002 sameinast nú í 4. flokk og halda til Færeyja
Austurlandsmeistarar í 5. flokk 2002 sameinast nú í 4. flokk og halda til Færeyja

06.04.2004 Apríl

Fjórði flokkur karla hjá Sindra leggst í víking

Nú hefur verið ákveðið að halda með 4. flokk karla hjá Sindra í æfinga- og keppnisferð til Færeyja. Ferðin verður farin í byrjun júní og verður siglt á vit ævintýranna með Norrænu og verður dvalið í viku í Færeyjum. Gestgjafar strákanna í ferðinni er Havnar Bóltafelag í Þórshöfn, en það félag heldur upp á 100 ára afmæli sitt á þessu ári. Þetta sögufræga félag þeirra Færeyinga er núverandi deildarmeistarar í Færeyjum. Hjá Sindra eru bundnar miklar vonir við þessa ferð vegna áframhaldandi samskipta félaganna og stefnt er að því að koma á varanlegum samskiptum á milli Sindra og HB.

Í ferðina fara 18 strákar á vegum Sindra og verða þeir glæsilegir “sendiherrar” fyrir sveitarfélagið okkar og munu þeir örugglega heilla frændur okkar til áframhaldandi samstarfs.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica