Apríl
Jón Sölvi, matreiðslumeistari
Jón Sölvi, matreiðslumeistari (mynd:Jón Sölvi)
Jón Sölvi, matreiðslumeistari (mynd:Jón Sölvi)

06.04.2004 Apríl

Fjáröflunarveisla til styrktar fötluðum

Á laugardaginn verður haldin fjáröflunarveisla til styrktar fötluðum og verður hún haldin í Nesjaskóla. Það er Jón Sölvi Ólafsson matreiðslumaður sem stendur fyrir veislunni sem verður öll hin glæsilegasta. Styrktarveislan hefst stundvíslega kl. 18:00 og verður þá boðið upp á fordrykk. Þegar menn hafa lokið við fordrykkinn og hitt mann og annan hefst síðan sjálf matarveislan, boðið verður uppá 5 – 6 rétta stórglæsilegan kvöldverð. Meðan snætt er mun Guðlaug Hestnes leika ljúfa “dinnertónlist” Allir þeir fjármunir sem safnast munu verða notaðir til kaupa á lyftustól fyrir sundlaug Hafnar. Slíkur stóll mun auðvelda allt aðgengi fatlaðra að sundlauginni.

Þetta er þarft og gott framtak hjá Jóni Sölva og vonandi að heima menn nýti sér þetta tækifæri og styrki gott málefni. Enn þá eru einhver sæti laus og því um að gera fyrir áhugasama að panta miða sem fyrst. Nánar má fræðast um veisluna á www.kokkur.is.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica