Bjólfskviða verður öll tekin í Sveitarfélaginu
Bjólfskviða er ævintýri um víkinga, tröll og forynjur og gerist sagan í Danmörku um árið 800 og svipar henni mjög til Hringadróttinssögu en höfundur hennar Tolkin hafði mikið uppáhald á Bjólfskviðu. Handrit myndarinnar er þegar klárt, búið er að tryggja fjármagn hennar að mestu leiti sem er um 800 milljónir. Undurbúningur hefst þegar að tveim vikum liðnum en taka myndarinnar hefst í byrjun október mun standa yfir í u.þ.b.10 vikur. Um 400 manns munu koma að gerð myndarinnar og verður fast starfslið um 70 manns. Í einu hestaatriðinu munu koma við sögu 120 hestar. Kvikmyndin verður á ensku og er reiknað með að hún verði frumsýnd í kvikmyndahúsum víða um heim í maí á næsta ári.
Kvikmyndin mun öll verða tekin hér í Sveitarfélaginu en ekki er búið að ákveða endanlega tökustað sem mun þó að öllum líkindum verða í Lóni. en endanlegur upptökustaður fer hugsanlega eftir því hvort víkingaþorpið sem notað verður í myndinni verður reist til frambúðar eða bara á meðan á töku myndarinnar stendur. Verði víkingaþorpið reist til frambúðar verður það vænleg ábót við það sem trekkir að ferðamenn í Sveitarfélagið. Leikstjóri myndarinnar verður Sturla Gunnarsson sem er fæddur Hornfirðingur, en flutti 5 ára gamall til Vancouver í Kanada. Sturla er vel þekktur leikstjóri og skipar sér sess meðal þeirra bestu í greininni, leikstýrði hann m.a. Rare birds (2002) með óskarsverlaunahafanum William Hurt. Ekki er ljóst hvaða erlendir leikarar munu leika aðalhlutverkin í myndinni þar sem verið er að semja um þau mál. Þeir íslenskir leikarar sem hafa verið nefndir eru Ingvar E. Sigurðsson og Hilmir Snær Guðnason.
Friðrik Þór Friðriksson einn af framleiðendum myndarinnar mætti til Hafnar í gær á kynningarfund á vegum Frumkvöðlaseturs Austurlands sem haldin var með hagsmunaaðilum hér í sveitarfélaginu en mikill áhugi heimamanna er á þessu verkefni. Friðrik Þór hefur verið í uppáhaldi hjá mörgum hornfirðingum frá því að hann gerði kvikmyndina Eldsmiðurinn sem gerði Sigurð Filipusson frá Hólabrekku ódauðlegan og var það fyrsta kvikmynd hans.
Friðrik Þór hélt mjög skemmtilega kynningu á verkinu ásamt heimi kvikmyndanna og svaraði hann spurningum viðstaddra. Stærsta framkvæmdin verður fólgin í því að reisa víkingaþorp, þar á að vera ein höll, stærsta bygging veraldar á tíma sögunnar. Að þorpsbyggingunni koma mest smiðir og grjóthleðslumenn. Sagði Friðrik að það væri viðtekin venja að leita til heimamanna í þau störf sem sköpuðust í kringum kvikmyndatökur hér áður en leitað er út fyrir sveitarfélagið.
Í kynningu Friðriks Þórs kom fram að aukning á ferðamönnum í kjölfar slíkrar myndar hefði verið gífurleg, sem dæmi nefndi hann aukningu á Nýjasjálandi þar sem Hringadróttinssaga var tekin hafi aukningin verð um 300% og kvikmynd Mel Gibsons Braveheart (1995) sem gerðist í Skotlandi á 13 öld, hafi skilað 700% aukningu á ferðamönnum á þeim slóðum sem sú mynd var tekin.
Þegar Friðrik Þór var spurður um af hverju hann hefði valið Hornafjörð fyrir tökustað á Bjólfskviðu var svarið; “Hér er svo fjölbreytilegt landslag, langar fjörur, skörp fjöll, jöklar, sterkar andstæður og veðurfar mjög hagstætt og engin hætta á að snjóa inni, allt þetta hentar mjög vel kvikmyndatöku”





Skrifa athugasemd