Apríl
Á kafi í undirbúning í Hafnarskóla í morgun
Hressar stelpur í Hafnarskóla á Öskudag
Hressar stelpur í Hafnarskóla á Öskudag

04.04.2004 Apríl

Framhaldslíf sorps

Krakkarnir í 7.bekk Hafnarskóla hafa útbúið mjög gagnlegan bækling sem þau eru að senda í öll hús í sveitarfélaginu. Í bæklingi þessum eru leiðbeiningar um hvert hægt er að fara með það sem fólk þarf að losna við. Skrá er yfir þau fyrirtæki og félög sem taka við ýmsu til eyðingar eða til endurnýtingar t.d. ábreiður og ullarföt til björgunarsveitarinnar , apótekið tekur lyf til eyðingar, föndurefni til dagþjónustu fatlaðra, leikskólarnir taka við leikföngum, gömul rúmföt og vefnaðarvörur til Félags aldraðra og Þrykkjan þiggur nýtileg áhöld og húsgögn. Gámastöðin við Álaleiru er með gám fyrir notuð föt, fyrir Rauða kross Íslands.

Krakkarnir ætla að leggja sitt af mörkum til að bærinn þeirra og allt umhverfi verði snyrtilegt og endurnýtt verði það sem hægt er. Veitum krökkunum stuðning í átaki þeirra og hugsum áður en við hendum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica