Apríl
Eysteinn Sindri (mynd:FAS)
Eysteinn Sindri (mynd:FAS)

02.04.2004 Apríl

Söngkeppni framhaldsskólanna

Á morgun laugardag verður haldin hin árlega söngkeppni framhaldsskólanna. Keppnin fer að þessu sinni fram í Kaplakrika í Hafnarfirði. Fyrir hönd Framhaldskólans í Austur-Skaftafellssýslu keppir Eysteinn Sindri Elvarsson. Eysteinn Sindri mun flytja lagið “Sólin sest” en lagið er eftir hann og textann gerði hann í samstarfi við Nönnu Halldóru Imsland, Steindór Sigurjónsson og Emil Örn Morávek. Í gær frumflutti hann lagið í kaffiteríunni í Nýheimum við mikinn fögnuð þeirra sem á hlýddu. Greinilegt að “söngtröllið Eysteinn” er ekki í vandræðum með að hressa upp á lífið og tilveruna.

Eysteinn mun verða vel studdur af samnemendum sýnum því nemendafélagið stendur fyrir menningarferð til Reykjavíkur um helgina og auðvitað mæta þau öll í Kaplakrika og styðja sinn mann. Þeir sem ekki komast í Kaplakrika geta horft á keppnina kl. 21:00 á laugardagskvöldið, en hún verður sýnd á RUV.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica