Vorverkin í görðunum
Tré og runnar í görðum á Hornafirði eru farin að taka vel við sér og eins er með ýmsan annan gróður og fólk farið að huga að görðum sínum. Rannveig og Magnús í Blómalandi hafa í tugi ára aðstoðað garðeigendur með klippingu trjáa og bara allt sem til garðyrkju telst þar með taldar ráðleggingar. Rannveig, sem var alveg til í að gefa okkur góð ráð með trén í garðinum og á hverju skuli byrja, segir að það sé um að gera að drífa sig í að klippa trén í garðinum núna ,,það er ekki eftir neinu að bíða og best er að vera búin að klippa áður en trén laufgast.
Það getur verið gott að klippa trén alveg niður á svona 10-15 ára fresti og lofa þeim að endurnýjast einkum limgerði. Alaskavíðir er mjög algengur hér, hann vex hratt verður ekki þéttur og er frekar grófur og hann hefur mjög gott af því að vera stífður alveg niður öðru hverju.”
Ef trjábeðin eru orðin mikið gróin segir Rannveig að gott sé að fá kurlaðar afklippur úti í Gámastöð og breiða kurlið yfir beðin. Betra er að hafa moldarbeð meðan plönturnar eru mjög litlar því grasið tekur næringu frá þeim en um leið og þær eru komnar vel upp þá skiptir það engu máli en vilji menn ekki hafa gras í beðinu er gott að setja kurlið yfir moldina. Þegar búið er að slá garðinn er mjög gott að setja allt slegna grasið undir trén og þar fá plönturnar mikinn áburð og arfi vex ekki. Með þessu losna menn við að nota illgresislyf og grasið verður orðið að mold næsta vor. Áburðargjöf er að sjálfsögðu mjög til bóta hvort heldur er húsdýra-eða tilbúinn áburður.
Þeir sem vilja nýta afklippur af trjánum en eru ekki tilbúnir með beðin geta sem best geymt greinarnar t.d. með því að vefja þær inn í blaut dagblöð og geyma á köldum stað í skugga, þannig geymast plönturnar vel þar til hægt er að koma þeim niður. Rannveig segist klippa greinarnar í ca 20 cm búta og stinga þeim í moldina og gott er að vera búinn að blanda áburði í moldina áður.
Til er gott ráð (sem notað hefur verið hér á Höfn) fyrir þá sem fá maðk á trén í garðinum og vilja losna við að eitra, en það er að semja við börnin í hverfinu um að týna maðkinn og t.d. greiða þeim visst á stikkið. Maðkarnir halda sig alltaf efst í trjánum og auðvelt að ná þeim eins er hægt að nota skæri og klippa toppinn á greininni þar sem maðkurinn er, þá þarf ekki að koma við hann. Annað gott ráð er að gefa smáfuglunum yfir veturinn þá koma þeir á sumrin og éta ótrúlega mikið af maðki.
Rannveig á mörg fleiri hollráð handa garðeigendum um hvernig hægt er að hafa ræktunina vistvæna og losna við óværu úr garðinum án eiturs og þá er bara að hafa samband við hana .





Skrifa athugasemd