Apríl
Glæsisnekkja James Brown
Glæsisnekkja James Brown

01.04.2004 Apríl

Glæsisnekkja við bryggju á Hornafirði

Í morgun lagðist að bryggju á Hornafirði ein glæsilegasta snekkja sem hingað hefur komið. Eigandi skipsins er auðkýfingurinn James Brown og sigldi hann hingað ásamt áhöfn sinni frá Englandi. Áhöfn skipsins telur 6 menn og miðað við íburðinn í skipinu þá er ljóst að ekki væsir um áhöfnina. James sagði aðspurður að áhugi hans á siglingum og Íslandi hefði verið þess valdandi að hann hélt upp í þessa stór siglingu til Ísland. "Svo var pabbi á freygátu við Íslandsstrendur í þorskastríðinu og mig langaði að kynnast þjóðinni sem lagði breta í því stríði".
James og félagar láta úr höfn síðar í dag og er stefnan þá sett á Vestmannaeyjar. Hornfirðingum er velkomið að koma og skoða skipið og heilsa upp á áhöfnina til kl. 14:00 í dag, en uppúr því leggjum við í hann á ný sagði James að lokum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica