Fermingar nálgast
Nú líður að fermingum og væntanlega er orðin mikil spenna og tilhlökkun hjá væntanlegum fermingarbörnum. Ættingjar og vinir koma jafnvel um langan veg til að taka þátt í hátíðarhöldunum með fermingarbarninu og fjölskyldu þess. Pálmasunnudagur er n.k. sunnudag og þá verða fermd í Hafnarkirkju 11 unglingar og er þetta fyrsta fermingin af þrettán í Austur-Skaftafellssýslu. Fermt verður í Hafnarkirkju, Hoffellskirkju, Kálfafellstaðarkirkju, Bjarnaneskirkju og Stafafellskirkju. Fermingarbörn á þessu ári eru 40.
Kvennakór Hornafjarðar verður með sölu á fermingarskeytum eins og verið hefur undanfarin ár og hefur verið sett upp síða á hornafjordur.is í tengslum við fermingarskeytin. Hægt er að komast á síðuna með því að smella hér.





Skrifa athugasemd