Meira byggt
Útlit er fyrir að húsbyggingarframkvæmdir í Sveitarfélaginu Hornafirði verði meiri en verið hefur undanfarið. Samkvæmt upplýsingum frá Hákoni Valdimarssyni byggingarfulltrúa er byrjað á byggingu íbúðarhúss í Firði í Lóni og í sumar verður byrjað á íbúðarhúsi á Hvalnesi í Lóni, einnig á einbýlishúsi á Höfn. Nokkur ár munu vera síðan íbúðarhús var byggt í Hornafirði utan Hafnar Verið er að ljúka við endurinnréttingu söluskála Olís og byrjað á nýrri Essó-stöð í stað þeirrar gömlu.
Á Hala í Suðursveit verður byggt við stálskemmu sem með viðbótinni verður 508.4 fermetrar og verður skemman í heild innréttuð fyrir Þórbergssetur.
Á Smyrlabjörgum er verið að breyta skemmu í fjögurra herbergja gistirými sem tekið verður í notkun í sumar.
Verið er að ljúka byggingu fjögurra íbúða raðhúss á Höfn á vegum Búmanna.
Reist verður skemma í Freysnesi fyrir bíla og tækjabúnað slökkviliðs og björgunarsveitarinnar í Öræfum. Vélarsalur Skinneyjar Þinganess verður stækkaður um 194.4 ferm. Stækkaðir verða matsalir á Vagnsstöðum og Árbæ og þar líka verður reist sólstofa einnig verða stækkaðir sumarbústaðir einn í Lóni og annar í Nesjum.
Hákon segir að Búmenn hafi hug á að byggja fleiri raðhús ef kaupendur fáist.





Skrifa athugasemd