Apríl

Næstum alltaf sól og blíða á Höfn

Sól, sól skín á mig - 30.04.2004 Apríl

Ekki hefur sólin leikið við Hornfirðinga í dag, en auðvitað eru menn ekki að gera neitt veður út af því og taka þessu með Skaftfellskri hógværð, vitandi það að sólin er aldrei langt í burtu þegar Hornafjörður er annars vegar. Hitinn hefur verið ágætur eða um 10° og rigning eða súld mestanpart dags. Veðurútlit næstu dagana er kannski ekki eins og flestir hefðu óskað sér, en það er nú einu sinni þannig að ekki geta allar óskir mannanna ræst og sem betur fer á það sama við um veðurspár, þær ganga ekki alltaf eftir. Á morgun er gert ráð fyrir vestan 8 – 13 m/s og léttskýjuðu en heldur hægari er líður á daginn og hiti á bilinu 8 – 13 stig. Ekki alslæmt og fánar ættu að blakta vel á alþjóðabaráttudegi verkafólks. Lesa meira
 
Skinney-Þinganes

Skinney-Þinganes skilaði 480 milljóna króna hagnaði árið 2003 - 30.04.2004 Apríl

Samkvæmt ársreikningi Skinneyjar-Þinganess hf. fyrir árið 2003 skilaði fyrirtækið 480 milljóna króna hagnaði eftir skatta á árinu, en hagnaður var 673 milljónir árið 2002. Hagnaður fyrir afskriftir var 679 milljónir sem svarar til 27,90% af rekstrartekjum, en var 28,66% á árinu 2002. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 8 milljónir í stað 307 milljóna árið áður. Rekstrartekjur á árinu voru 2.432 milljónir á móti 2.572 milljónum árið 2002. Veltufé frá rekstri lækkar á milli ára úr 699 milljónum í 539 milljónir, og er 22,16% af tekjum. Eiginfjárhlutfall hækkar úr 25,65% í 32,64% en eigið fé félagsins jókst á sama tíma úr 1.661 milljónum í 2.165 milljónir. Lesa meira
 
Glæsilegur árangur Sunddeildar Sindra

Komu heim með 26 verðlaunapeninga. - 30.04.2004 Apríl

Á sumardaginn fyrsta fóru 15 krakkar frá sund-deild Sindra á sundmót sem Ungmennafélagið Neisti á Djúpavogi stóð fyrir í sinni glæsilegu sundlaug og bauð til sín keppendum frá Höfn og einnig voru þar líka krakkar frá Fáskrúðsfirði. Frá því nýja sundlaugin var tekin í notkun á Djúpavogi hefur mikil breyting átt sér stað á sundmenningunni þar. Sundæfingar eru þar reglulega og krakkar þaðan eru dugleg að taka þátt í sundmótum og standa fyrir sundviðburðum. Það er stutt frá því að segja að Hornfirsku börnin stóðu sig með sóma og komu með 26 verðlaunapeninga með sér heim Lesa meira
 
Veðrið lék við krakkana í ferðinni

Námsferð 6. og 7. bekkjar Hafnarskóla í Öræfin - 29.04.2004 Apríl

Á þriðjudag og miðvikudag var 90 manna hópur úr Hafnarskóla í námsferð í Öræfunum. Þetta voru nemendur 6. og 7. bekkjar ásamt 10 starfsmönnum og var tíminn notaður í rannsóknir, leik og störf. Gist var í Hofgarði þar sem haldið var fótboltamót og kvöldvaka en þess utan dvaldi hópurinn í Skaftafelli. Í Skaftafelli er kjörin aðstaða til hverskonar útivistarfræðslu og náms auk þess sem mikilvægt er að kynna þjóðgarðinn vel fyrir nemendum. Lesa meira
 
Ferðaþjónustan við Jökulsárlón

Lögð verður áhersla á humar og ís - 29.04.2004 Apríl

Ferðatorgið verður í Vetrargarðinum Smáralindinni í Reykjavík dagana 8.-9. maí n.k. Þetta er sýning sem ferðaþjónustuaðilar um land allt standa að, kynning á því sem hver landshluti hefur uppá að bjóða fyrir þá sem vilja ferðast um landið. Kjörorðið er "Ísland sækjum það heim" og þetta er liður í því að veita sem bestar upplýsingar um hvað í boði er hvar sem er á landinu. Ferðamálafélag Austur- Skaftafellssýslu og Markaðsstofa Austurlands eru saman með bás á sýningunni. Lesa meira
 
Leikskólakrakkar kanna belta og hjálmanotkun

Reiðhjólahjálminn á höfuðið - 29.04.2004 Apríl

Nú þegar sumarblíðan leikur við okkur eykst fjöldi hjólreiðamanna á götum Hornafjarðar og um leið krefst það meiri aðgátar og tillitsemi hjá hinum akandi vegfarendum. Í blíðunni í gær voru krakkar á leikskólanum að kanna beltanotkun í bílum og hjálmanotkun hjá hjólreiðafólki. Bílbeltanotkun var viðunandi, en auðvitað eiga allir að vera vel spenntir í bílunum, annað er lögbrot. Hins vegar var hjálmanotkun reiðhjólafólks mjög lítil og alltof margir voru hjólandi án þess að nota þennan sjálfsagða öryggisbúnað. Það að sjá börn á hjólum án þess að nota hjálm er auðvitað hreint ábyrgðarleysi af hálfu foreldra og væri ekki úr vegi að foreldrar ásamt skólum og lögreglu sameinuðust í átaki fyrir aukinni hjálmanotkun barna og þá sérstaklega unglinga á Hornafirði. Lesa meira
 
Starfsfólk Olís við opnun nýju stöðvarinnar

Frumraun að vera með Ellingsen í Olís verslun - 29.04.2004 Apríl

Það er ánægjulegt þegar atvinnufyrirtæki á staðnum stækka og bæta við starfsfólki eins og er hjá Olís hér á Höfn eftir að nýi söluskálinn var tekin í notkun. Áður voru þar fimm manns í fullu starfi og þegar nýja verslunin opnaði bættust við þrjú heil störf og jafnvel það fjórða seinna. Það er búið að vera mikið að gera þar frá því formlega var opnað á sumardaginn fyrsta. Þetta hefur bara verið alveg meiri háttar segir framkvæmdarstjórinn Haukur Sveinbjörnsson, opnunarveislan stóð fram yfir helgina með allskonar góðum tilboðum sem fólk hefur nýtt sér vel. Við ætlum að hressa vel upp á ís-menninguna á staðnum og vera með úrval af ís og ís-réttum og ég er viss um að það á eftir að ganga vel því stóra fína ísvélin hrundi eftir þrjá daga og gamla máltækið segir ,, fall er farar heill”, og við fáum nýja ísvél strax eftir helgina. Lesa meira
 
Kvikmynataka hjá Pegasus á Skálafellsjökli

Stofnun félags sem hafi það markmið að fjárfesta í kvikmyndaverkefnum - 28.04.2004 Apríl

Eins og fram hefur komið er fyrirhugað að taka upp kvikmyndina Bjólfskviðu á Íslandi nú í sumar og haust og þessa dagana er unnið við að ljúka fjármögnun verkefnisins. Fyrirhugað er að taka stærsta hluta kvikmyndarinnar í Austur-Skaftafellssýslu og þess vegna er verið að kanna hvort áhugi sé hjá aðilum á Austurlandi að koma að fjármögnun verkefnisins. Eftir lauslegar kannanir og þreifingar hefur komið í ljós að áhugi er töluverður. Fram kemur í upplýsingum frá Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum, að fyrirhugað er að stofna félag sem hafi það markmið að fjárfesta í kvikmyndaverkefnum og byggja upp þjónustu fyrir kvikmynda- og auglýsingagerð. Gert er ráð fyrir að heildarfé félagsins verði 23 milljónir króna. Lesa meira
 
Kröfuganga í blíðskaparveðri á Höfn

Alþjóðlegur baráttudagur verkafólks - 28.04.2004 Apríl

Á laugardaginn er 1. maí alþjóðlegur baráttudagur verkafólks. Vökull Stéttarfélag mun eins og ævinlega standa fyrir hátíðardagskrá í tilefni dagsins. Á laugardaginn hefst dagskráin með kröfugöngu frá Víkurbraut 4 kl. 14:00 og mun Lúðrasveit Hornafjarðar leika fyrir göngunni. Að göngu lokinni munu Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður Vökuls flytja ávörp. Vökull Stéttarfélag og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi bjóða síðan til kaffisamsætis á Víkinni og mun Leikfélag Hornafjörður skemmta gestum. Lesa meira
 
Vinnusvæðið, séð af brún Almannaskarðs

Allt að verða tilbúið fyrir gangnagerðina - 28.04.2004 Apríl

Byrjað er að setja fyllingu undir veginn að Almannaskarði þar sem jarðgöngin koma að vestan. Búið er að gera plön fyrir vinnubúðir og aðstöðu vinnuvéla. Verið er að hreinsa jarðveg frá og af klöppinni þar sem byrjað verður að bora fyrir göngunum. Það þarf að hreinsa burt allan jarðveg til að hægt verði að byrja á að sprengja og það er nokkuð mikið magn segir Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni. Efnið úr göngunum verður notað í uppfyllingu á veginum sem verður 14 metra hár þar sem hæðst verður. Lesa meira
 
Allt þurrt við útfall Skeiðarár (mynd:Ragnar Frank)

Er von á framhlaupi í Skeiðarárjökli - 27.04.2004 Apríl

Í vikunni var greint hér frá óvenjulegu ástandi á rennsli Skeiðará og þurrum farvegi hennar við útfall. Helgi Björnsson jarðeðlisfræðingur vill ekki spá um hvað sé að gerast í Skeiðarárjökli enda ekki kannað aðstæður, en segir að þetta virðist vera svipuð staða og kom upp árið 1929 og aftur vorið 1991 þegar jökullinn hljóp fram. Þá kom ekkert vatn í Skeiðará alllengi og menn fóru að velta því fyrir sér hvort vatn væri að safnast fyrir undir jöklinum. En svo var ýmislegt sem benti til þess að vatnið færi í Gígjukvísl og mér skilst að það sé það sem er að gerast núna, að vatnið safnist ekki fyrir undir jöklinum heldur fari annars staðar fram svipað og var 1991 segir Helgi. Þá varð mikið framhlaup í jöklinum um sumarið og hann færðist fram um einn km, mest að vestanverðu. Það byrjaði í mars og þá sást mikið sprungusvæði um 10 km uppi á jöklinum sem benti til þess að hann væri að hlaupa fram. Lesa meira
 
Öldungarnir nokkrum árum yngri en í dag (mynd:Hulda Laxdal)

Öldungar í blaki - 27.04.2004 Apríl

Um s.l. helgi lögðu blakkonur í Sindra land undir fót og skelltu sér á öldungamót í blaki sem haldið var á Akranesi. Mótið byrjaði á fimmtudag og því lauk á sunnudag. 80 lið voru skráð til keppni og voru keppendur um 800 talsins. Öldungarnir frá Sindra spila í 4. deild en alls eru 6. deildir í kvennablakinu. Hinar “öldruðu” konur Sindra lentu í 4. sæti í sinni deild en þar keppa 7 lið og voru þær mjög ánægðar með árangurinn. Bjössi blak og Védís voru liðsstjórar hjá Sindra en þau hjónin eiga sterkar taugar til blakstarfs á Hornafirði og meðan þau bjuggu á Hornafirði blómstraði blakíþróttin og keppt var í mörgum flokkum. Lesa meira
 
Stella Hrönn  ( Mynd Ragnar Frank)

Stella Hrönn boðin velkomin í Öræfasveit - 27.04.2004 Apríl

Fjölmennt lið Öræfinga, um 50 % íbúa í sveitinni komu saman í Hótel Freysnesi um helgina og buðu nýjan starfsmann þjóðgarðsins í Skaftafelli velkominn til starfa í Öræfasveit. Veitingar, kaffi og kökur voru þar í boði þjóðgarðsins á degi umhverfisins. Þessi nýi liðsmaður þjóðgarðsins er Stella Hrönn Jóhannsdóttir sem valin var úr hópi tuttugu og eins umsækjenda um stöðu sérfræðings við þjóðgarðinn í Skaftafelli. Að gömlum og góðum íslenskum sið sagði hún Öræfingum frá sér og fjölskyldu sinni en hún er frá bænum Keflavík á Hegranesi í Skagafirði. Lesa meira
 
Skildi þessi dans verða sýndur í námsferðinni

Námsferð í Öræfin - 26.04.2004 Apríl

Fyrir tveimur árum var farið með alla nemendur Hafnarskóla í tvær námsferðir. 6. og 7. bekkur fóru í Öræfin en 4. og 5. bekkur í Suðursveit. Þessar ferðir þóttu takast með eindæmum vel og var ákveðið að endurtaka þær annað hvert ár þannig að allir nemendur kæmust á báða staði á meðan þeir væru í skólanum. Ferðirnar eru kallaðar námsferðir því í þeim er lögð áhersla á umhverfistengt nám auk þess að eiga góðar stundir saman. Á morgun er komið að námsferð fyrir 6. og 7. bekk Hafnarskóla og verður haldið á vit ævintýranna í Öræfin. Gist verður eina nótt í Hofgarði og komið heim úr ferðinni seinnipartinn á miðvikudag. Lesa meira
 

Tveir fullfermis túrar - 26.04.2004 Apríl

Það hljóp heldur betur á snærið hjá áhöfninni á Þinganesi SF-25 um s.l. helgi. Mokfiskirí var í botnvörpuna og tveir fullfermistúrar á örfáum dögum. Á laugardaginn lönduðu þeir í Reykjavík fullfermi af þorski eða um 45 tonnum. Strax var haldið á miðin að lokinni löndun og var veiðin vægast sagt ævintýralega góð og kom skipið aftur inn til löndunar í gær með fullfermi. Aflinn fékkst á Eldeyjarsvæðinu suður af Reykjanesi og voru menn að taka þetta um tólf tonn í holi og var uppistaðan í aflanum 3 – 5 kg. þorskur. Átta manna áhöfn er á skipinu og eigendur skipsins eru Skinney-Þinganes á Hornafirði. Lesa meira
 
Frábært dómaratríó!

Styttist í sigurleikina - 26.04.2004 Apríl

Um helgina héldu meistaraflokkslið Sindra í knattspyrnu í enn eina ferðina til Reykjavíkur til að keppa í deildarbikarnum. Heldur hefur gengið illa bæði hjá meistaraflokk karla sem og kvenna, en nú virðist eitthvað vera að rofa til og eitt er víst að það styttist alltaf í sigurleikinn. Sindraskvísur kepptu á laugardaginn við Þrótt Reykjavík á gervigrasvellinum í Laugardal. Leikið var í hávaða roki og bar leikurinn þess glöggt merki. Stelpurnar okkar urðu að játa sig sigraðar 4 – 0 en mikil batamerki sáust á liðinu frá leikjunum helgina áður. Tveir leikir eru eftir í deildarbikarnum hjá stelpunum. Þann 8. maí gegn Fjölni og 9. maí gegn Keflavík. Lesa meira
 
Magnús í Blómalandi og Jón Stefán í byggingarham

Setja saman tíu smáhýsi til viðbótar - 25.04.2004 Apríl

Náttbóls-félagar hafa ekki slegið slöku við síðustu dagana við húsasmíðarnar og segja að stuttur tími sé til stefnu, ferðatíminn alveg að byrja. Þeir eru að setja saman tíu smáhýsi sem sett verða niður á tjaldsvæðinu þar sem þeir eiga fimm hús sem tekin voru í notkun í fyrra sumar og eitt að auki sem ekki var gengið frá þá. Gerð hefur verið ný tillaga um deiliskipulag á tjaldsvæðinu og bæjarráð samþykkt að hún verði auglýst. Jón Stefán Friðriksson, einn Náttbóls eigenda, segir að svæðin sem til greina komi fyrir húsin séu, uppi í hólnum fyrir ofan húsin sem komin eru eða við hliðina á þeim í átt að Fiskhólnum. Lesa meira
 
Sparkvöllur KSÍ

Sparkvallaátak KSÍ - 23.04.2004 Apríl

Knattspyrnusamband Íslands hefur undanfarna mánuði unnið að undirbúningi sparkvallaátaks. Sparkvellirnir sem fyrirhugað er að byggðir verði víða um land eru 18 metrar á breidd og 33 metrar á lengd og verða lagðir fyrsta lokks gervigrasi. Vellirnir verða vel girtir af og munu mörkin falla inn í girðinguna. Á fundi hjá Æskulýðs- og tómstundaráðs 4. desember s.l. var hvatt til þess að sveitarfélagið gengi til samstarfs við KSÍ um gerð sparkvallar á Hornafirði. Hjá sveitarfélaginu fengust þær upplýsingar að Sveitarfélagið Hornafjörður hefði áhuga á að ganga til samstarfs við KSÍ um gerð sparkvallar þó svo að ekki hefði enn þá verið gengið frá umsókn þar að lútandi. Lesa meira
 
Hjördís Þóra formaður Vökuls

Samningar samþykktir - 23.04.2004 Apríl

Á miðvikudaginn s.l. lauk talningu í atkvæðagreiðslu um samkomulag Vökuls og Samtaka atvinnulífsins. Niðurstaða atkvæðagreiðslu var eftirfarandi: Á kjörskrá voru 374 og greiddu 174 atkvæði eða 46,52%. Já sögðu 138 eða 79,31%, nei sögðu 28 eða 16,09% og auðir seðlar voru 8 eða 4,6%. Samningarnir voru því samþykktir og liggur því fyrir að samningar er komin á fyrir verkafólk á almenna markaðnum. Samningarnir gilda frá 1. mars s.l. Lesa meira
 
Blíða við höfnina

Er sumarið komið - 23.04.2004 Apríl

Nú er sumardagurinn fyrsti að baki og samkvæmt því ætti að vera komið sumar. Börnin trúa því alla veganna statt og stöðugt enda ekki ástæða til að rengja hina fullorðnu eða hvað. Sumar og vetur fraus ekki saman þetta árið og því allt í uppnámi með gæði komandi sumars. En ef tekið er tillit til himintunglanna og rýnt í gamla speki kemur í ljós að sumarið í sumar ætti að geta boðið upp á allt það besta sem íslenskt veðurfar er fært um. Ágætis hiti ætt að haldast flesta dagana, sólin kemur til með að skína töluvert, það mun eitthvað rigna og smá kuldakast mun koma óvænt í bakið á landanum. Lesa meira
 
Klippt á borðann við opnun nýja Olísskálans

Formleg opnun nýja Olísskálans - 22.04.2004 Apríl

Olísskálinn á Höfn var formlega opnaður við hátíðlega athöfn klukkan tíu í morgun. Fjöldi manns mætti á staðinn og félagar úr lúðrasveitinni undir stjórn Jóhanns Morávek léku ljúf sumarlög. Albert Eymundsson bæjarstjóri klippti á borðann og opnaði Olísverslunina formlega og óskaði eigendum og umsjónarmönnum til hamingju með staðinn. Fjöldi tilboða er í gangi í tilefni dagsins, boðið var uppá kaffi og ilmandi brauð sem bakað er á staðnum og börnin fengu ís. Þessi nýja verslun er í alla staði hin glæsilegasta og gott vöruúrval. Lesa meira
 
Frá námskeiði fiskvinnslufólks

Atkvæðagreiðslu líkur í dag - 21.04.2004 Apríl

Atkvæðagreiðslu um samninga Vökuls við Samtök atvinnulífsins á Hornafirði líkur í dag. Verslunarmenn eru á lokasprettinum í samningamálunum en iðnaðarmenn eru eitthvað lengra á eftir með sína samninga segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður Vökuls. Lítið sem ekkert hefur gerst í samningum hjá sjómönnum. Í dag verður haldinn sameiginlegur fundur með starfsmönnum hjá öllum bræðslum á Austurlandi og er það annar fundur þeirra í samningamálum. Búið er að semja fyrir þá sem vinna hjá ríkinu en þeir fara ekki í atkvæðagreiðslu fyrr en í maí þar sem beðið er eftir að gerðir séu stofnanasamningar á hverri stofnun fyrir sig. Lesa meira
 
Hressir strákar í Cock Robin

Árshátíðarball Heppuskóla - 21.04.2004 Apríl

Að kvöldi sumardagsins fyrsta verður árshátíðarball Heppuskóla haldið í Mánagarði. Það er engin smá hljómsveit sem mun leika fyrir dansi hjá krökkunum því “200 þúsund naglbítar” munu mæta á svæðið og halda uppi brjálaðri stemningu. Einnig munu Hornfirsku hljómsveitirnar Cock Robin og Fiction koma fram. Ekki er nokkur vafi á mikið fjör verður í Mánagarði, enda “200 þúsund naglbítar” rokksveit eins og þær gerast bestar og þekkt fyrir mikla stemningu og líflega sviðsframkomu. Svo er bara að bíða og sjá hvort Hornfirsku sveitirnar slái stórbandinu við á ballinu! Lesa meira
 
Stemning á Humarhátíð 2003

Undirbúningur fyrir Humarhátíð gengur vel - 21.04.2004 Humarhátíð Fréttir

Undirbúningur fyrir Humarhátíð er komin á fullt skrið en hátíðin verður haldin dagana 2. – 4. júlí. Eins og undanfarin ár er undirbúningurinn í höndum Björgunarfélags Hornafjarðar, Kiwanisklúbbsins Ós og Knattspyrnudeildar Sindra. Að sögn Gests Halldórssonar sem á sæti í undirbúningsnefndinni er mikil vinna búinn að vera í gangi undanfarið og búið að ráða bæði hljómsveit og kynnir. Hljómsveit Humarhátíðar þetta árið verður “Á móti sól” og mun hljómsveitin leika á útidansleik á föstudagskvöldið og í íþróttahúsinu á laugardaginn. Kynnir hátíðarinnar verður hinn eini og sanni Felix Bergsson sem verður ekki í vandræðum með að gleðja unga sem aldna. Lesa meira
 
Hundurinn var rólegur þó svo að vatnið vantaði (mynd:Ragnar Frank)

Hvar er Skeiðará! - 20.04.2004 Apríl

Það er óvenjulegt að geta gengið þurrum fótum í farvegi Skeiðarár, en það er hægt núna. Vatnsrennsli í Skeiðará hefur verið óvenjulega lítið frá aprílbyrjun og þar sem útfall hefur verið í Skeiðará er núna hægt að fara um árfarveginn á skóm segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli. Ragnar skoðaði aðstæður við ána í gær og sagði það sérkennilega tilfinningu að standa í miðjum farvegi Skeiðarár og ekkert vatn þar sem straumhörð jökuláin rann. Morsá rennur undir Skeiðarárbrú austanmegin og Skeiðará, lítil kvísl, rennur undir brúna að vestanverðu. Vesturkvíslin kemur úr nýju útfalli og er rennsli hennar mjög lítið og ekkert í líkingu við það sem venjulega er í Skeiðará. Lesa meira
 
Skinney-Þinganes

Skinney - Þinganes kaupir Festi - 20.04.2004 Apríl

Í s.l. viku voru undirritaðir samningar um kaup Skinneyjar – Þinganess hf á Festi hf. Í kaupunum fylgja skipin Örn KE og Þórshamar GK ásamt aflaheimildum þeirra eftir að 2,0% loðnukvótans hafa verið seld til annarra félaga. Einnig fylgir Gautavík ehf sem á og rekur fiskimjölsverksmiðju á Djúpavogi. Skinney-Þinganes hefur í framhaldinu gengið frá samningi um sölu á Erni KE til Gjögurs hf ásamt veiðiheimildum í síld. Samhliða hefur verið gerður samstarfssamningur við Gjögur um síldveiðar fyrir vinnslu félagsins á Höfn. Lesa meira
 
Frá æfingu hjá Karlakórnum Jökli

Menningin blómstrar - 20.04.2004 Apríl

Langar þig til að hitta mann og annan næstu dagana og njóta um leið menningar af ýmsum toga? Þá er Hornafjörður staðurinn. Á morgun miðvikudag bíður Kvennakór Hornafjarðar upp á opna æfingu í Nýheimum kl. 20:00, en það er síðasta æfing kórsins fyrir Danmerkurferð. Allur aðgangseyrir mun renna til flygilkaupa í Nýheimum. Á sumardaginn fyrsta verða slysavarnakonur með kaffisölu milli kl. 15:00 og 17:00 í húsi félagsins og lofa þær því að borðin muni svigna undan kræsingum eins og ævinlega. Að kvöldi sumardagsins fyrsta mun síðan Karlakórinn Jökull halda sína árlegu vortónleika. Tónleikarnir verða haldnir í Hafnarkirkju og hefjast kl. 20:00. Tónleikarnir verða síðan endurteknir á sama stað á sama tíma á föstudaginn. Lesa meira
 
Þær eru samt lang flottastar

Ekki okkar helgi, gengur betur næst - 19.04.2004 Apríl

Um s.l. helgi kepptu bæði karla og kvennalið Sindra í deildarbikarnum. Meistaraflokkur karla keppti við Víðir Garði á laugardaginn, leikurinn fór fram á Leiknisvellinum og unnu Víðismenn leikinn 4-0. Sindramenn áttu þó sín færi í leiknum og hefðu með smá heppni getað lætt inn 2–3 mörkum. Uppistaðan í leikmannahópnum hjá Sindra voru strákar sem enn eru gjaldgengir í 2. flokk og vonandi herðir þessi reynsla þá og hvetur til dáða á komandi sumri. Björn Pálsson er búin að tilkynna félagaskipti aftur yfir í Sindra og lék með liðinu um helgina ásamt hinum nýja markmanni Sindra, Nezir Ohran frá Bosníu, en félagaskipti hans gengu í gegn á laugardaginn. Eins og áður hefur komið fram er þar á ferðinni góður markmaður og verður hann ekki sakaður um mörkin sem liðið fékk á sig um helgina. Lesa meira
 
Hús félagsins við Álaugarveg

Kaffisala á sumardaginn fyrsta - 19.04.2004 Apríl

Hin árlega kaffisala Slysavarnadeildarinnar Framtíðar á sumardaginn fyrsta verður í húsi félagsins. Kaffisalan hefur notið mikilla vinsælda hjá bæjarbúum og ekki er að efa að fullt verður út úr dyrum hjá þeim slysavarnakonum. Slysavarnadeildin Framtíðin hélt upp á 50 ára afmælið sitt þann 7. febrúar s.l. og hélt deildin aðalfund sinn þann dag. Í framhaldinu var ákveðið að halda hátíðarkvöldverð á Víkinni og var hann haldinn þann 19. mars s.l. Slysavarnafólk og gestir áttu saman ánægjulega kvöldstund með kvöldverði, glensi og gríni. Lesa meira
 
Setið utan við glerskálann í Skaftafelli

Gestastofan í Skaftafelli stækkuð - 19.04.2004 Apríl

Auglýst var í vetur eftir fólki sem áhuga hefði á að taka að sér veitingasöluna í Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli og rann umsóknarfrestur út án þess að nokkur umsókn bærist. Það hefur enginn fengist til að taka veitingasöluna að sér svo við breyttum bara rekstrarfyrirkomulaginu þannig að gestastofan verður stækkuð um það pláss sem veitingastofan og verslunin voru í þannig að skálinn verður eitt rými segir Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður. Lesa meira
 
Varskar húsmæður á reiðnámskeiði

Húsmæður í reiðskóla hjá Hanný Heiler - 17.04.2004 Apríl

Hanný Heiler bóndi og tamningamaður í Dynjanda í Nesjum hefur látið langþráðan draum rætast og opnað reiðskóla. Hún er komin með góða aðstöðu fyrir kennslu og byrjuð með reiðnámskeið. Núna í vikunni byrjuðu fjórar húsmæðrur á Höfn að læra undirstöðuatriðin í reiðmennskunni. “Konurnar eru allar óvanar hestum og fyrst læra þær að leggja hnakkinn á hestinn, fara á bak og sitja hestinn rétt og stjórna honum, þær stóðu sig vel og ætla allar að koma aftur,” segir Hanný. Þessar konur eiga það sameiginlegt að eiga eiginmenn sem eiga hesta og sinna hestamennsku af áhuga. Ekki er ljóst hvort konurnar eru að þessu til að geta sótt um inngöngu í hestaklúbb karlanna eða hvort þær ætla að stofna sinn eigin klúbb og er nafnið Hestaklúbburinn Glódís tilnefnt í því sambandi. Lesa meira
 
Félagarnir Daníel og Hlynur

Hornfirsk stuttmynd komin í 16 mynda úrslit á PoppTíví - 16.04.2004 Apríl

Úrslitaþáttur í Sketcha-keppni Landsbankans & PoppTíví var sýndur s.l. miðvikudag á PoppTíví og er alls búið að sýna 80 stuttmyndir sem eru að hámarki 7 mín að lengd. 16 af þeim eru nú komnar í úrslit og þar á meðal er stuttmynd þeirra félaga Daníels Imslands og Hlyns Pálmasonar "FS3" sem fjallar um goðsögn sem leitar hefndar eftir að fjölskylda hans er myrt. Myndin sem er í anda Braveheart er alls 40 mín að lengd og er klippt úr henni 7 mínútur fyrir Sketcha-keppnina. Lesa meira
 
Kvennakór Hornafjarðar í Gautaborg 2002 (mynd KKH)

Kvennakórinn til Kaupmannahafnar - 16.04.2004 Kvennakór Hornafjarðar

Kvennakór Hornafjarðar heldur á vit ævintýranna í lok þessa mánaðar. Það eru frændur okkar Danir sem verða þessa heiðurs aðnjótandi og mun kórinn halda tónleika í Jónshúsi í Kaupmannahöfn þriðjudaginn 27. apríl kl. 20:00. Ekki er nokkur vafi á að Kaupmannahafnarbúar muni taka vel á móti okkar fólki enda Hornfirðingar ákaflega vel kynntir í borginni við sundin. Til að hita sig upp fyrir Jónshús mun kórinn halda tónleika í Árbæjarkirkju 24. apríl kl. 16:00. Vortónleikar Kvennakór Hornafjarðar verða síðan í Hafnarkirkju í maí. Lesa meira
 
Tilbúnar í slaginn

Boltinn kominn vel af stað - 16.04.2004 Apríl

Um páskana skruppu leikmenn mfl. Sindra í æfingaferð á Snæfellsnesið, nánar tiltekið til Ólafsvíkur og öttu þar kappi við heimamenn. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og voru spilaðir tveir leikir. Fyrri leiknum lauk með sigri Víkings 1 – 0 en síðari leikurinn fór 0 – 0 og í þeim leik stóð nýr markmaður Sindra, Nezir Ohran á milli stanganna og var það einróma álit manna að þar væri á ferðinni mjög góður markvörður og sýndi hann mikið öryggi og góð tilþrif þrátt fyrir að vera nýkomin úr löngu og ströngu ferðalagi. Lesa meira
 
Frá námskeiði fyrir unga ökumenn

Námskeið fyrir unga ökumenn - 15.04.2004 Apríl

Þrettán ungmenni sóttu námskeið fyrir unga ökumenn sem haldið var í Nýheimum á Höfn í gær. Sjóvá Almennar hafa verið með námskeið fyrir unga ökumenn undanfarin ár þar sem Einar Guðmundsson forvarnafulltrúi og Sumarliði Guðbjörnsson deildarstjóri tjónadeildar ásamt Sigurði Helgasyni hjá Umferðaráði hafa annast kennsluna. Námskeið þessi hafa verið haldið á nokkrum stöðum á landinu og það sem af er þessu ári hafa rúmlega 600 ökumenn og ökunemar sótt þau. Lesa meira
 
Jökulsá í Lóni

Ný göngubrú opnar gönguleið úr Stafafellsfjöllum inn á Lónsöræfi - 15.04.2004 Apríl

Brúarvinnuflokkur frá Reyðarfirði byrjar í næstu viku að setja saman og setja upp göngubrúna yfir Jökulsá í Lóni þar sem farið er inn í Kollumúla. Byrjað var á brúnni í fyrra-sumar, þá voru steyptar undirstöður og mun verkinu verða lokið í endaðan maí. Núna er aðeins fært á jeppum inn að Einstigi þar sem brúin kemur yfir Jökulsá, en í næstu viku ætla þeir hjá vegagerðinni að hefla veginn inneftir og mun þá leiðin verða fær fyrir fjórhjóla drifna bíla. Lesa meira
 
Björn Sigfússon með nikkuna góðu (mynd:Gísli Örn)

Nikkan þanin á landstíminu - 14.04.2004 Apríl

Nú hafa netabátar frá Hornafirði hafið veiðar aftur gott páskafrí. Í gær var ágætis fiskirí en aflinn frekar blandaður að sögn sjónarvotta! Í dag réru flest skip til fiskjar, bæði stór og smá og var ágætis kropp að sögn heimildarmanns, sem ekki vill láta nafn síns getið. Ekki er útlit fyrir sjóveður á morgun enda gerir veðurspáin ráð fyrir ört vaxandi NA-átt og þykknar upp, 20-25 m/s og rigning seint í kvöld, en NV 18-23 m/s í fyrramálið. NV 10-15 m/s og skúrir seint á morgun og á föstudag N og NV 10-15 m/s, en mun hægari út af Suðausturlandi. Lesa meira
 
Vanda í Hafnarskóla í morgun

Vanda Sigurgeirsdóttir heimsækir Hornfirska æsku - 14.04.2004 Apríl

Í kvöld mun Vanda Sigurgeirsdóttir mæta á almennan foreldrafund í Hafnarskóla. Þar mun hún ræða um gildi íþrótta sem forvarnastarfs, hvernig stuðla megi að sem mestri þátttöku í íþróttum, mismun á þjálfun eftir kynjum, keppni í íþróttum og fleira. Það eru Æskulýðs- og tómstundaráð, Sindri og Grunnskólar Hornafjarðar sem hafa veg og vanda að heimsókninni. Foreldrafundurinn er bara einn liður í þessari heimsókn því Vanda mun m.a hitta alla nemendur í Hafnar- og Heppuskóla í þessari viku, auk þess sem hún heldur fund með öllum þjálfurum og mætir á nokkrar æfingar í kvennaboltanum. Lesa meira
 
Gert klárt fyrir sýningu á Bar par (mynd:Ásta Margrét)

Leikferð á Selfoss - 14.04.2004 Apríl

Leikfélag Hornafjarðar og Leikhópurinn Lopi halda um komandi helgi í leikferð til Selfoss. Leikfélag Hornafjarðar mun sýna leikritið “Bar par” á föstudagskvöldið kl. 20:30 í leikhúsinu við Sigtún. Leikverkið “Bar par” hlaut feikn góðar viðtökur Hornfirðinga og góða dóma hjá gagnrýnendum. Leikhópurinn Lopi sem skipaður er unglingum á aldrinum 13 – 16 ára, mun síðan á laugardaginn sýna leikritið “Allt í plati” á sama stað kl. 14:00. Leikritið “Allt í plati” er skemmtilegt barnaleikrit þar sem Lína Langsokkur leiðir okkur um Hálsaskóg og þar hittir hún m.a. Lilla Klifurmús, Mikka ref, Karíus og Baktus og þá bræður Kasper, Jesper og Jónatann. Bæði leikritin eru í leikstjórn Magnúsar J. Magnússonar Lesa meira
 
Nanna Halldóra og Sólveig (mynd:kokkur.is)

Velheppnuð styrktarveisla - 13.04.2004 Apríl

Á laugardaginn var haldin glæsileg matarveisla í Nesjaskóla til styrktar fötluðum í Austur-Skaftafellssýslu. Húsfylli var og ekki annað að heyra en gestir væru ánægðir með kvöldið. Veislan byrjaði með fordrykk og léku þeir Einar Jónsson og Þórir Ólafsson ljúfa tónlist fyrir gesti. Valgeir Ólafsson tók síðan við sem veislustjóri og leiddi gesti í gegnum borðhaldið. Guðlaug Hestnes lék á píanóið meðan gestir nutu glæsilegra rétta sem framreiddir voru af Jóni Sölva og aðstoðarfólki hans. Fleiri listamenn komu fram og skemmtu gestum, Jóhann Árni Andrésson lék á hljómborð og Birna Þráinsdóttir á þverflautu. Nanna Halldóra Imsland söng lagið “A thousand miles” við píanóundirleik Sólveigar Sigurðardóttir og slógu þær stöllur hreinlega í gegn með flutningi sínum. Lesa meira
 
Skinney-Þinganes með nýtt vörumerki

Nýtt vörumerki hjá Skinney-Þinganes - 13.04.2004 Apríl

Nýtt vörumerki, Blumaris, hefur verið tekið í notkun hjá Skinney-Þinganes og verður vörumerkið notað á þær vörur sem fyrirtækið selur undir eigin nafni. Vörur frá fyrirtækinu eru velþekktar um allan heim undir mismunandi nöfnum, skammstöfunum og númerum en segja má að fyrirtækið hafi í raun ekki haft neitt sérstakt vörumerki. Hinu nýja vörumerki er ætlað að samræma þetta og festa í sessi þá góðu ímynd sem vörur félagsins hafa. Þetta kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins www.sth.is. Lesa meira
 
Vestrahorn VI

Málverkasýning á hornafjörður.is - 11.04.2004 Apríl

Um páskahátíðina verður boðið uppá málverkasýningu á hornafjordur.is Það er listamaðurinn Elísabet Þorsteinsdóttir sem opnar fyrir þennan nýja lið á hornafjordur.is. Elísabet hefur lært myndlist á námskeiðum hjá Steinunni Einarsdóttir frá Vestmannaeyjum og eru flestar myndir hennar akríl- og olíumálverk. Myndir Elísabetar bera vott um að þar er á ferðinni góður listamaður og greinilegt að málaralistin er henni í blóð borin. Myndefnið sækir hún að mestu í heimabyggðina í Austur-Skaftafellssýslu. Elísabet hefur haldið fjórar málverkasýningar og eins hefur hún verið með málverk til sölu á Markaðstorgi Hornfirðinga í Hornabæ og hafa myndir hennar vakið mikla athygli þar. Lesa meira
 
Gjáin hættulega sem myndaðist við Hafrafell og Svínafellsjökul

Bráðinn Svínafellsjökull skapar hættuástand - 10.04.2004 Apríl

Hættuástand hefur skapast við Hafrafell í Öræfum þar sem gönguleið liggur að Svínafellsjökli. Jökullinn er alveg farinn á löngum kafla og þar sem göngustígur að jöklinum liggur er kominn 10-20 metra hár bakki meðfram honum og þar undir djúpt lón. Bakkinn er milli 100 - 200 metra langur og hefur grafið undan brúninni svo að ef farið er þar fram á er hætta á að bakkinn geti gefið sig og næsta víst er að þeim sem þar lenti niður verður ekki hægt að bjarga. Jón Benediktsson í Freysnesi segir að þarna sé full ástæða til mikillar varúðar, fólk verður að sýna aðgát. Vegurinn upp að þessu svæði er stutt austan við Skaftafellsá og þarna kemur fjöldi ferðamanna á sumrin, oft eru margar rútur á dag á planinu við göngustíginn. Frá planinu er smá spölur eftir göngustígnum fram á bakkann þar sem ekki er lengur hægt að komast að jöklinum. Lesa meira
 
Jökulsárlón, vinsæll ferðamannastaður [© ebe]

Páskarnir á næsta leyti - 07.04.2004 Apríl

Nú líður að einni af stóru umferðarhelgum ársins. Það hefur jú ekki farið framhjá neinum að páskarnir eru á næsta leyti og leggjast þá margir í ferðalög til að hitta ættingja og vini um hátíðarnar. Sumarfæri er þessa dagana á flestum vegum landsins og ætti færðin því ekki að spilla ferðagleðinni. Þeir sem ætla sér austur á land geta óhikað ekið Öxi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Fyrir skíðaglaða Hornfirðinga þá er lítið um að vera í Oddskarði, engin snjór og ástandið í fjallinu eins og í byrjun september að sögn heimamanna. Í Stafdal í Seyðisfirði er ástandið lítið skárra og litlar líkur á að skíðabrekkurnar verði opnar þar um páskana. Lesa meira
 
Mundi Sæm SF-1

Þorskurinn í Páskafrí - 06.04.2004 Apríl

Hornfirskir netabátar munu draga upp net sín á morgun en þá hefst hið árlega þorskveiðibann. Þorskveiðibannið nær yfir veiðar á grunnslóð frá Stokksnesi og suður og vestur um land. Þetta er nokkurs konar “fæðingarorlof” hjá þorskinum en fyrir austan Stokksnes og utan við 12 mílur má þó áfram reyna að krækja í þann gula. Frekar léleg veiði hefur verið hjá Hornfirskum vertíðarbátum að sögn Torfa Friðfinnssonar á Hafnarvoginni, aflinn hefur verið svona frá 5 tonnum og upp í þetta 10 – 11 tonn og vilja sjómenn kenna því um hversu lítið æti sé á svæðinu. Lesa meira
 
Austurlandsmeistarar í 5. flokk 2002 sameinast nú í 4. flokk og halda til Færeyja

Fjórði flokkur karla hjá Sindra leggst í víking - 06.04.2004 Apríl

Nú hefur verið ákveðið að halda með 4. flokk karla hjá Sindra í æfinga- og keppnisferð til Færeyja. Ferðin verður farin í byrjun júní og verður siglt á vit ævintýranna með Norrænu og verður dvalið í viku í Færeyjum. Gestgjafar strákanna í ferðinni er Havnar Bóltafelag í Þórshöfn, en það félag heldur upp á 100 ára afmæli sitt á þessu ári. Þetta sögufræga félag þeirra Færeyinga er núverandi deildarmeistarar í Færeyjum. Hjá Sindra eru bundnar miklar vonir við þessa ferð vegna áframhaldandi samskipta félaganna og stefnt er að því að koma á varanlegum samskiptum á milli Sindra og HB. Lesa meira
 
Jón Sölvi, matreiðslumeistari

Fjáröflunarveisla til styrktar fötluðum - 06.04.2004 Apríl

Á laugardaginn verður haldin fjáröflunarveisla til styrktar fötluðum og verður hún haldin í Nesjaskóla. Það er Jón Sölvi Ólafsson matreiðslumaður sem stendur fyrir veislunni sem verður öll hin glæsilegasta. Styrktarveislan hefst stundvíslega kl. 18:00 og verður þá boðið upp á fordrykk. Þegar menn hafa lokið við fordrykkinn og hitt mann og annan hefst síðan sjálf matarveislan, boðið verður uppá 5 – 6 rétta stórglæsilegan kvöldverð. Meðan snætt er mun Guðlaug Hestnes leika ljúfa “dinnertónlist” Allir þeir fjármunir sem safnast munu verða notaðir til kaupa á lyftustól fyrir sundlaug Hafnar. Slíkur stóll mun auðvelda allt aðgengi fatlaðra að sundlauginni. Lesa meira
 
Stórbrotið landslag í  Lóni  (úr myndasafni)

Bjólfskviða verður öll tekin í Sveitarfélaginu - 05.04.2004 Apríl

Bjólfskviða er ævintýri um víkinga, tröll og forynjur og gerist sagan í Danmörku um árið 800 og svipar henni mjög til Hringadróttinssögu en höfundur hennar Tolkin hafði mikið uppáhald á Bjólfskviðu. Handrit myndarinnar er þegar klárt, búið er að tryggja fjármagn hennar að mestu leiti sem er um 800 milljónir. Undurbúningur hefst þegar að tveim vikum liðnum en taka myndarinnar hefst í byrjun október mun standa yfir í u.þ.b. 10 vikur. Um 400 manns munu koma að gerð myndarinnar og verður fast starfslið um 70 manns. Í einu hestaatriðinu munu koma við sögu 120 hestar. Kvikmyndin verður á ensku og er reiknað með að hún verði frumsýnd í kvikmyndahúsum víða um heim í maí á næsta ári. Lesa meira
 
Á kafi í undirbúning í Hafnarskóla í morgun

Framhaldslíf sorps - 04.04.2004 Apríl

Krakkarnir í 7.bekk Hafnarskóla hafa útbúið mjög gagnlegan bækling sem þau eru að senda í öll hús í sveitarfélaginu. Í bæklingi þessum eru leiðbeiningar um hvert hægt er að fara með það sem fólk þarf að losna við. Skrá er yfir þau fyrirtæki og félög sem taka við ýmsu til eyðingar eða til endurnýtingar t.d. ábreiður og ullarföt til björgunarsveitarinnar , apótekið tekur lyf til eyðingar, föndurefni til dagþjónustu fatlaðra, leikskólarnir taka við leikföngum, gömul rúmföt og vefnaðarvörur til Félags aldraðra og Þrykkjan þiggur nýtileg áhöld og húsgögn. Gámastöðin við Álaleiru er með gám fyrir notuð föt, fyrir Rauða kross Íslands. Lesa meira
 
Sindraskvísur komnar að víkingum og sjómönnum

Frestað hjá meistaraflokki kvenna - 02.04.2004 Apríl

Meistaraflokkur kvenna hjá Sindra átti að leika sinn fyrsta leik í Deildarbikarnum á morgun laugardag, við Keflavík. Leiknum hefur hins vegar verið frestað til 9. maí, þannig að fyrsti leikur hjá Sindraskvísum verður laugardaginn 16. apríl við hið svokallaða norðurbandalag, Þór/KA/KS. Fyrsti leikur hjá stelpunum á Íslandsmótinu er settur á þriðjudaginn 25. maí gegn Fjarðarbyggð á Eskifjarðarvelli. Meistaraflokkur karla lék um síðustu helgi við ÍH í deildarbikarnum og máttu okkar menn lúta í gras 3-2. Markaskorarar hjá Sindra voru þeir Guðjón Óskarsson og Gísli Freyr Brynjarsson. Lesa meira
 
Eysteinn Sindri (mynd:FAS)

Söngkeppni framhaldsskólanna - 02.04.2004 Apríl

Á morgun laugardag verður haldin hin árlega söngkeppni framhaldsskólanna. Keppnin fer að þessu sinni fram í Kaplakrika í Hafnarfirði. Fyrir hönd Framhaldskólans í Austur-Skaftafellssýslu keppir Eysteinn Sindri Elvarsson. Eysteinn Sindri mun flytja lagið “Sólin sest” en lagið er eftir hann og textann gerði hann í samstarfi við Nönnu Halldóru Imsland, Steindór Sigurjónsson og Emil Örn Morávek. Í gær frumflutti hann lagið í kaffiteríunni í Nýheimum við mikinn fögnuð þeirra sem á hlýddu. Greinilegt að “söngtröllið Eysteinn” er ekki í vandræðum með að hressa upp á lífið og tilveruna. Lesa meira
 
Maggi og Bjartmar klippa og klippa

Vorverkin í görðunum - 02.04.2004 Apríl

Tré og runnar í görðum á Hornafirði eru farin að taka vel við sér og eins er með ýmsan annan gróður og fólk farið að huga að görðum sínum. Rannveig og Magnús í Blómalandi hafa í tugi ára aðstoðað garðeigendur með klippingu trjáa og bara allt sem til garðyrkju telst þar með taldar ráðleggingar. Rannveig, sem var alveg til í að gefa okkur góð ráð með trén í garðinum og á hverju skuli byrja, segir að það sé um að gera að drífa sig í að klippa trén í garðinum núna ,,það er ekki eftir neinu að bíða og best er að vera búin að klippa áður en trén laufgast. Lesa meira
 
Glæsisnekkja James Brown

Glæsisnekkja við bryggju á Hornafirði - 01.04.2004 Apríl

Í morgun lagðist að bryggju á Hornafirði ein glæsilegasta snekkja sem hingað hefur komið. Eigandi skipsins er auðkýfingurinn James Brown og sigldi hann hingað ásamt áhöfn sinni frá Englandi. Áhöfn skipsins telur 6 menn og miðað við íburðinn í skipinu þá er ljóst að ekki væsir um áhöfnina. James sagði aðspurður að áhugi hans á siglingum og Íslandi hefði verið þess valdandi að hann hélt upp í þessa stórsiglingu til Ísland. "Svo var pabbi á freygátu við Íslandsstrendur í þorskastríðinu og mig langaði að kynnast þjóðinni sem lagði breta í því stríði". Lesa meira
 
Séð yfir Höfn

Fermingar nálgast - 01.04.2004 Apríl

Nú líður að fermingum og væntanlega er orðin mikil spenna og tilhlökkun hjá væntanlegum fermingarbörnum. Ættingjar og vinir koma jafnvel um langan veg til að taka þátt í hátíðarhöldunum með fermingarbarninu og fjölskyldu þess. Pálmasunnudagur er n.k. sunnudag og þá verða fermd í Hafnarkirkju 11 unglingar og er þetta fyrsta fermingin af þrettán í Austur-Skaftafellssýslu. Fermt verður í Hafnarkirkju, Hoffellskirkju, Kálfafellstaðarkirkju, Bjarnaneskirkju og Stafafellskirkju. Fermingarbörn á þessu ári eru 40. Lesa meira
 
Raðhús Búmanna

Meira byggt - 01.04.2004 Apríl

Útlit er fyrir að húsbyggingarframkvæmdir í Sveitarfélaginu Hornafirði verði meiri en verið hefur undanfarið. Samkvæmt upplýsingum frá Hákoni Valdimarssyni byggingarfulltrúa er byrjað á byggingu íbúðarhúss í Firði í Lóni og í sumar verður byrjað á íbúðarhúsi á Hvalnesi í Lóni, einnig á einbýlishúsi á Höfn. Nokkur ár munu vera síðan íbúðarhús var byggt í Hornafirði utan Hafnar Verið er að ljúka við endurinnréttingu söluskála Olís og byrjað á nýrri Essó-stöð í stað þeirrar gömlu. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica