Ríki Vatnajökuls - Mars
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
Gamli Olísskálinn rifinn
      <description>Núna er verið að brjóta niður gamla Olísskálann við Hafnarbraut eða BP eins og hann var kallaður hér áður fyrr en síðan verður hreinsað til á planinu. Þessi skáli sem verið er að rífa var byggður 1964 og var Jón Rafnkelsson fyrsti umboðsaðili þar. Síðan höfðu fjórir aðilar annast afgreiðslu Olís á þessum stað þar til Haukur og Ásdís tóku við umboði Olís 1988 og hafa  síðan rekið staðinn af myndarskap þó húsakosturinn hafi löngu verið kominn á tíma.</description>
      <alt>Gamli Olísskálinn rifinn</alt>
Lónið stækkar
      <description>Þegar verslunin Lónið opnaði s.l. mánudag hafði verslunin stækkað til muna frá því að síðustu viðskiptavinirnir gengu út á laugardaginn því um helgina var verslunin stækkuð um 25 fermetra og er aðstaðan öll hin glæsilegasta bæði björt og rúmgóð. Það eru hjónin Guðný Helgadóttir og Hákon Gunnarsson sem eiga og reka verslunina. Guðný sagði að rekstur verslunarinnar hefði gengið mjög vel í gegnum árin en uppistaðan í rekstrinum er alhliða fataverslun, en einnig seljum við ljós, rafmagnstæki, úr og ýmsa smávöru.</description>
Lúða var það heillin
      <description>Vetrarvertíð er nú í fullum gangi, en ekki hefur verið neinn óhemju kraftur í veiðum netabáta undanfarið. “Menn hafa getað hvílst þokkalega á milli túra” sagði einn glaðbeittur sjóari af yngri kynslóðinni í gær. Á þriðjudaginn voru vertíðarbátar að landa flestir um og yfir tíu tonnum hver. Áhöfnin á Hafdísi fékk þó skemmtilegan glaðning í netin í gær, en þar var á ferðinni lúða sem vóg 129 kíló. Þetta var mikill happadráttur sem sýnir og sannar að það er líf í strákunum á Hafdísinni. Nú verður spennandi að fylgjast með hvort unglingarnir á Hafdísinni haldi sínu striki og innbyrði fleiri lúður á vertíðinni.</description>
Sýnt í Nýheimum
      <description>Í kjölfar sameiginlegra þemadaga Nesja- og Hafnarskóla í síðustu viku hefur hluti af sýningunni sem var í Mánagarði verið færður í Nýheima. Sýningin verður uppstilt í Nýheimum fram á föstudag og er því kjörið tækifæri fyrir þá sem ekki komu í Mánagarð að kíkja við og sjá vinnu nemenda. Í vikulok er stefnt að því að dreifa bæklingum á öll heimili í sýslunni þar sem kemur fram hvar hægt er að losa sig við ýmislegt til eyðingar eða endurnýtingar.</description>
Ferðafélagið fer með rekstrarvörur inn í Kollumúla.
      <description>Nokkrir félagar úr Ferðafélagi Austur-Skaftafellssýslu fóru um tvær síðustu helgar á jeppum inn í Kollumúla. Ekið var upp eftir Jökulsárgljúfrum en leiðin þarna inn eftir gljúfrinu er aðeins fær við sérstök veðurskilyrði sem helst  skapast á vorin og haustin. Slík skilyrði sköpuðust núna um daginn og er Ferðafélagið ásamt nokkrum jeppamönnum búið að fara þarna tvær ferðir inneftir með gas og aðrar rekstrarvörur.</description>
Lilja Rós kjörin Netstúlka Símans
      <description>Um s.l. helgi fór fram kjör á fegurðardrottningu Austurlands. Ein Hornfirsk blómarós tók þátt í keppninni að þessu sinni, Lilja Rós Aðalsteinsdóttir. Ekki hreppti okkar stúlka titilinn Ungfrú Austurland þó svo að hún hefði verið vel að þeim titli komin sem og allar hinar stelpurnar. En Lilja Rós vann aftur á móti titilinn “Netstúlka Símans” en þar var hún valin í kosningu, sem eins og nafnið gefur til kynna fór fram á netinu. Verðlaunin fyrir nafnbótina “Netstúlka Símans” voru glæsilegur gsm sími frá Símanum. Til hamingju með árangurinn Lilja Rós.</description>
Olís opnar nýja stöð
      <description>Í dag opnar ný og glæsileg Olísstöð á Hornafirði. Nýja stöðin er stór og rúmgóð og uppfyllir allar kröfur nútímans. Í nýju stöðinni verður mjög aukið við vöruúrval frá því sem áður var og bætast inn margir nýir vöruflokkar. Haukur Sveinbjörnsson rekstrarstjóri hjá Olís á Hornafirði sagði að þetta væri mikill munur frá gamla kofanum sem þjónað hefur Hornfirðingum lengi, enn hann heyrir nú brátt sögunni til og mun hverfa í þessari viku. Haukur sagði að lokafrágangur á öllu utanhúss þ.e.a.s. plani, dælubúnaði og þvottaplani yrði látið bíða til næsta vetrar en þá yrði stöðin og umhverfið endanlega klárað.</description>
30 ár frá opnun hringvegarins
      <description>Í sumar eru merk tímamót í sögu samgöngumála Austur-Skaftfellinga og allra þeirra sem um landið ferðast, en þá eru 30 ár frá því að lokið var byggingu Skeiðarárbrúar og hún tekin í notkun. Brúin sem er 820 metrar að lengd er lengsta brú landsins og með opnun hennar var hringvegurinn öllum opinn.</description>
Atkvæðagreiðslu lokið - samningur felldur
      <description>Talningu í atkvæðagreiðslu um samning Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins er lokið. Niðurstaða allra félaga inna Starfsgreinasambands Íslands var birt samtímis kl. 17:00 í dag. Niðurstaða félagsmanna Vökuls er eftirfarandi: Á kjörskrá voru 367 manns. Atkvæði greiddur 167 eða 45,5 %. Já sögðu 79 eða 47,31 %. Nei sögðu 86 eða 51,50 %. Auðir seðlar 2 eða 1,20 %.</description>
Karl Guðni fékk verðlaun fyrir tillögu að merki Kvískerjasjóðs
      <description>Verðlaun fyrir tillögu að merki fyrir Kvískerjasjóð var afhent við hátíðlega athöfn í Freysnesi í Öræfum í gær og hlaut þau Karl Guðni Kristjánsson á Höfn. Sigurlaug Gissurardóttir formaður sjóðsins afhenti Karli Guðna áritað eintak af Kvískerjabók í viðurkenningarskini. Nemendur 10. bekkjar í Heppuskóla á Höfn í Hornafirði fengu það verkefni að gera tillögur að merki fyrir Kvískerjasjóð. Undir handleiðslu kennara síns, Árna Péturs Hilmarssonar, hönnuðu þau nokkrar tillögur. 4 nemendur voru síðan valdir til að vinna áfram með sínar tillögur.</description>
Lionsmenn færa Heppuskóla góða gjöf
      <description>Í morgun komu Lionsmenn á Hornafirði færandi hendi í Heppuskóla. Í farteskinu höfðu þeir átta hljómtækjasamstæður sem þeir færðu skólanum að gjöf. Formaður Lionsklúbbs Hornafjarðar Reynir Ólason afhenti skólanum gjöfina og sagði það von Lionsmanna að gjöfin kæmi að góðum notum. Guðmundur Ingi Sigbjörnsson skólastjóri Heppuskóla þakkaði fyrir höfðinglega gjöf og sagði m.a. að þau hljómflutningstæki sem hefðu verið til staðar í skólanum væru orðin gömul og lúin og uppfylltu ekki kröfur nútímans. Hljómflutningstækin verða sett upp í kennslustofum skólans.</description>
Úrslit frá vetrarmóti Hornfirðings
      <description>Aðrir Vetrarleikar Hestamannafélagsins Hornfirðings fóru fram s.l. laugardag í blíðskaparveðri við Stekkhól. Þátttaka í mótinu var mjög góð í öllum flokkum og hross almennt í góðri þjálfun. Að leikunum loknum komu keppendur og áhorfendur svo saman í félagsheimili hestamanna á Stekkhól og tóku við verðlaunum um leið og þeir yljuðu sér á kaffi og vöfflum sem þær Sigríður kona formannsins og Þorbjörg í Ártúni sáu um að handera.</description>
Úthlutað úr Kvískerjasjóði
      <description>Í gær var í  fyrsta sinn úthlutað rannsóknastyrkjum úr Kvískerjasjóði og fór styrkveitingin fram í Freysnesi í Öræfum. Kvískerjasjóður var stofnaður á síðasta ári af umhverfisráðuneytinu, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum fyrir framlag þeirra til rannsókna og öflunar þekkingar á náttúru og sögu Austur Skaftafellssýslu.  Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknastyrkja til einstaklinga og stofnana.</description>
Motorcross á Hornafirði
      <description>Hópur áhugamanna á Hornafirði hefur sótt um aðstöðu fyrir torfæru-bifhjólahóp (motorcross) til Bæjarráðs Hornafjarðar. Við erum að leita eftir hentugu svæði þar sem við getum komið upp æfingabraut og aðstöðu fyrir þetta sport, stað þar sem ekki er hætta á að við verðum fyrir mönnum eða dýrum segir Guðni Þór Valþórsson sem er einn þeirra sem stendur fyrir stofnun bifhjólafélags á Hornafirði.</description>
Nýtt stálþil við Krosseyjarbryggju
      <description>Framkvæmdir við nýtt stálþil við Krosseyjarbryggju í Hornafjarðarhöfn mun væntanlega hefjast í júní n.k. og þarf verkinu að vera lokið áður en síldarvertíð byrjar í september. Stálþil verður rekið niður utan við það sem fyrir er og með tilkomu þess verður viðlegudýpi  átta metrar í stað sex metra  eins og nú er. Leitað var tilboða frá efnissölum stálþils og stálþilsfestinga og bárust fjögur tilboð. Bæjarráð ákvað að ganga til samninga samkvæmt tilboði við G.Arason ehf/Arcelor sem er uppá kr. 18.587.702. Verkið verður boðið út í næsta mánuði.</description>
Tónlistarlíf Hornfirðinga á glæsilega framtíð
      <description>Það var mikið um að vera í Mánagarði í gær þegar Nesja- og Hafnarskóli héldu sameiginlega árshátíð í lok þemaviku. Á árshátíðinni mátti sjá afrakstur vinnu nemenda, en þema vikunnar voru umhverfismál og yfirskriftin var “Sóðar og slóðar erum við ekki” Út um allan Mánagarð mátti sjá vinnu nemenda og kenndi þar margra grasa. Skemmtidagskrá nemenda var einkar glæsileg þar sem hvert tónlistaratriðið rak annað ásamt öðrum skemmtiatriðum. Flutningur krakkanna og framkoma var til mikillar fyrirmyndar og greinilegt að tónlistarlíf Hornfirðinga á glæsilega framtíð fyrir sér. Að lokum var svo slegið upp balli og var ekki annað að sjá en að allir skemmtu sér konunglega.</description>
Fjörutíu fermingarbörn
      <description>Fermingarbörn í Sveitarfélaginu Hornafirði á þessu vori eru fjörutíu. Fyrsta fermingin verður 4. apríl, Pálmasunnudag, í Hafnarkirkju og sú síðast verður 31.maí, annan dag Hvítasunnu. Fermingardagarnir verða 13 í sex kirkjum í sýslunni. 
Margar fjölskyldur fá veitingahúsin á staðnum til að sjá um matinn í fermingarveisluna  og losna þannig við mikið umstang. Hjá þeim á Hótel Höfn fengust þær upplýsingar að búið væri að panta níu matarveislur, sumar yrðu á hótelinu aðrar úti í bæ. Algengustu pantanir hjá hótelinu eru fyrir 60 til 80 manns en fer upp í 150.</description>
Alltaf nóg við að vera
      <description>Hornfirðingar þurfa ekki að láta sér leiðast þessa helgina því nóg er um að vera í menningarlífinu. Á föstudagskvöld mun Harmoníkufélag Hornafjarðar standa fyrir harmoníkuhátíð á Víkinni. Gestur kvöldsins verður Grétar Geirsson harmoníkuleikari. Að lokinni skemmtuninni verður síðan stigin dans fram eftir nóttu. Á laugardaginn mun Þorsteinn Guðmundsson verða með uppistandssýningu á Hótel Höfn. Sýninguna kallar hann FÚTT og er hún sambland af hefðbundnu uppistandi og leikþáttum á myndbandi. Á laugardaginn verða Blues tónleikar í Nýheimum þar sem Glenn Kaiser, blues gítarleikari frá Bandaríkjunum mun skemmta gestum, en Glenn er vel þekktur í sínu heimalandi.</description>
      <alt>Glenn Kaiser</alt>
Árshátíð Hafnar- og Nesjaskóla
      <description>Foreldrum, systkinum og öllum Hornfirðingum er boðið á Árshátíð Hafnar- og Nesjaskóla. Árshátíðin verður haldin í dag fimmtudaginn 25. mars kl 17:00-19:00 í Mánagarði. Þar kemur fram afrakstur þemavinnu liðinnar viku þar sem umhverfismál hafa verið á oddinum, seldir verða umhverfisvænir pokar, sýnd verða hús sem 1. og 6. bekkur hafa verið að vinna við, slide show sem 7. bekkur hefur verið að vinna við, og margt fleira. Einnig verða skemmtiatriði sem nemendur skólanna munu sýna. Þar verður selt kaffi, gos, safi og eitthvað gott í gogginn og mun ágóðinn renna til Hafnar- og Nesjaskóla til að kaupa spil og bolta handa nemendum skólanna.</description>
Ferðamenn eru okkar stóriðja
      <description>Nýr formaður ferðamálafélags Austur Skaftafellssýslu er Guðrún Ingimundardóttir fædd og uppalin í uppsveitum Árnessýslu,  kom árið 1975 til Hornafjarðar og ætlaði að vera eitt sumar en hún fór ekki til baka. Guðrún býr á Höfn ásamt eiginmanninum Þóri Snorrasyni og syninum Snorra Frey en þrjú uppkomin börn hennar eru í Reykjavík. Guðrún er kunnug flestu sem við kemur ferðaþjónustu á heimasvæðinu bæði sem blaðamaður og með vinnu sinni við ferðaþjónustu.  Guðrún segir að þetta leggist vel í sig og hún er tilbúin að leggja sig alla fram í þessu nýja starfi. Ferðamál og öll þjónusta þeim tengd  skipta okkur öll á þessu svæði miklu máli og því er tilvalið að taka nýkjörinn formann tali og spyrja um  starfið, tildrög þess og hvað er framundan núna þegar ferðaþjónustuárið er að byrja.</description>
      <alt>Guðrún Ingimundardóttir</alt>
Fyrsta grafan komin á staðinn
      <description>Byrjað er að mæla og setja niður stikur á svæðinu þar sem göngin í Almannaskarð koma og fyrsta grafan er komin á staðinn. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að komið verði með vinnubúðirnar öðru hvoru megin við helgina og hann á von á að eitthvað verði byrjað að grafa í næstu viku. Gamalt máltæki segir ,,hálfnað er verk þá hafið er”.
Í sumar verður farið að huga að undirbúningi fyrir byggingu nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót og finna nýtt brúarstæði en um það eru skiptar skoðanir meðal heimamanna. Reynir segir að fyrsta fjárveiting til framkvæmdanna verði árið 2006  en hvort verkið verður boðið út þá er ekki vitað ennþá.</description>
Nezir Ohran til liðs við Sindra
      <description>Nú er frágengið að nýr markmaður gengur til liðs við Sindra fyrir komandi tímabil. Markmaðurinn heitir Nezir Ohran, 31 árs gamall og er með mikla reynslu. Nezir kemur til landsins í byrjun apríl. Þetta eru góðar fréttir fyrir liðið og gífurlegur styrkur fyrir hópinn sem fyrir er. Ákveðið hefur verið að liðið fari í æfinga- og keppnisferð til Ólafsvíkur um páskana og verður þar tekist á við fyrrverandi þjálfara Sindra, Ejub Purisevic og lærisveina hans í Víking Ólafsvík sem sigruðu 3. deildina s.l. sumar. Hjá Sindra eru menn enn vongóðir um að 1 – 2 leikmenn bætist við hópinn fyrir átökin í sumar.</description>
Vantar greiðfæra leið út á Suðurfjörur
      <description>Aðgengi að Suðurfjörum er enn að mestu lokað eftir að Hólmsá braut sér leið til sjávar við Skinneyjarhöfða í stórflóðunum fyrir tæpum tveim árum. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur fór í síðustu viku að skoða aðstæður og segir hann að hægt sé að komast út á fjörur hjá  Borg þ.e með leyfi  landeiganda og eftir hans leiðsögn. Helgi telur að líklegasta leiðin fyrir veg út á Suðurfjörur sé rétt austan við Hólmsá og þar niður með ánni en það sé dýr vegagerð. Ekki er ljóst hvenær sú framkvæmd getur orðið þar sem engin fjárveiting er til.
Helgi segir að miklar breytingar séu orðnar við ósinn sem á sínum tíma var grafið fyrir í landi Flateyjar við fjörurnar  þar er komið mikið vatnsrennsli sem lokar leiðinni frá veginum út á sandinn vestan Hólmsá og segir Helgi það næsta ljóst að þar sé aðgerðar þörf.</description>
Hornfirsk blómarós í Ungfrú Austurland
      <description>Fegurðarsamkeppni Austurlands verður haldin í Egilsbúð Neskaupstað n.k. laugardag og er þetta í fimmtánda sinn sem keppnin er haldin. Fulltrúi Hornafjarðar í keppninni er Lilja Rós Aðalsteinsdóttir. Foreldrar hennar eru Aðalsteinn Aðalsteinsson og Elísabet Þorgerður Einarsdóttir. Lilja Rós er 22 ára gömul og nemur sálfræði við Háskólann á Akureyri og er þar á fyrsta ári. Einn af þeim titlum sem í boði er fyrir þær sjö stúlkur sem þátt taka í Fegurðarsamkeppni Austurlands er Netstúlka Símans og er kosning hafin.</description>
Frétt frá 7. bekk, Hafnarskóla í opinni viku
      <description>Nú er í gangi sameiginleg opin vika í Hafnar- og Nesjaskóla undir yfirskriftinni “Sóðar og slóðar erum við ekki”. Þema vikunnar er umhverfistengt og markmiðið að nemendur og starfsfólk verði meðvitaðri um umhverfi sitt og umgengni við náttúruauðlindir jarðarinnar. Í þessari vinnu skólanna er blandað nemendum sem mest saman. Gengið er út frá því að eldri nemendur aðstoði þá yngri.  1. og 6. bekkur mynda einn vinnuhóp,  2. og 4. bekkur annan, 3. og 5. bekkur þann þriðja en 7. bekkur sér um almannatengsl.</description>
Fjölskyldan saman, gaman
      <description>Síðastliðin vetur tóku margar Hornfirskar fjölskyldur þátt í verkefninu “Fjölskyldan saman, gaman!” Það verkefni var m.a. hugsað til að auka tækifæri fjölskyldunnar til heilsueflandi samverustunda. Þátttaka fjölskyldufólks var mjög góð og í skoðanakönnun sem gerð var í tengslum við verkefnið kom fram mikil ánægja með framtakið og sterkur vilji til áframhaldandi  vinnu í svipuðum dúr. Átti það bæði við um þátttakendur og aðila sem starfa við æskulýðs- og íþróttamál.</description>
      <alt>Fjölskyldan saman, gaman</alt>
Bíó og uppistand
      <description>Á laugardaginn mun Þorsteinn Guðmundsson mæta með sýninguna sína “Fútt” á Hótel Höfn. “Fútt” er uppistandssýning þar sem blandað er saman hefðbundnu uppistandi og leikþáttum á myndbandi sem varpað er uppá tjald. Þorsteinn sem er löngu þekktur fyrir uppistand og þátttöku sína í gamanþáttum í sjónvarpi og kvikmyndum, kemur fram með brakandi ferskt efni, fjallar um íslenska bankaræningja, fálkaorðuna og fullkomlega nýja hlið á stjörnufræði svo fátt eitt sé nefnt.</description>
Sóðar og slóðar erum við ekki
      <description>Í dag hefst sameiginleg opin vika Hafnar- og Nesjaskóla. Yfirskrift vikunnar er “Sóðar og slóðar erum við ekki” Þema vikunnar er umhverfistengt og markmiðið að nemendur og starfsfólk verði meðvitaðri um umhverfi sitt og umgengni við náttúruauðlindir jarðarinnar. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning fyrir þessa daga af starfsfólki skólanna til að allt megi ganga sem best fyrir sig.</description>
Harmoníkuhátíð á Víkinni
      <description>Á föstudagskvöldið mun Harmoníkufélag Hornafjarðar standa fyrir harmoníkuhátíð og dansleik á veitingastaðnum Víkinni. Þetta er í tíunda skipti sem félagið stendur fyrir harmoníkuhátíð og hefur hún verið mjög vel sótt í gegnum tíðina. Allt frá upphafi hefur félagið boðið harmoníkuleikara utan Hornafjarðar á hátíðina og að þessu sinni er hátíðargesturinn Grétar Geirsson harmoníkuleikari og bóndi á Áshól við Hellu, en hann hefur kennt á harmoníku í sinni heimasveit og er vel þekktur spilari á Suðurlandi.</description>
Dans í Nesjaskóla
      <description>Undanfarin ár hefur dans verið kenndur í íþróttatímum Nesjaskóla og hafa krakkarnir haft mjög gaman af þeim tímum. En núna stendur meira til í skólanum til að efla dansáhugann enn frekar. Dagana 29. mars til 2. apríl mun Jón Pétur Úlfarsson danskennari hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru mæta og kenna dans í skólanum. Kennslan er fyrir alla nemendur skólans og fer fram á skólatíma. Krakkarnir munu fá einn tíma á dag og stefnt er að því að bjóða foreldrum í heimsókn í skólann föstudaginn 2. apríl til að líta á árangurinn. Ekki er nokkur vafi á að börnin muni hafa bæði gagn og gaman af þessari heimsókn enda dansinn líkamstjáningarform sem börnum er mjög eðlilegt að tjá sig með.</description>