Mars
Gamli Olísskálinn rifinn
Núna er verið að brjóta niður gamla Olísskálann við Hafnarbraut eða BP eins og hann var kallaður hér áður fyrr en síðan verður hreinsað til á planinu. Þessi skáli sem verið er að rífa var byggður 1964 og var Jón Rafnkelsson fyrsti umboðsaðili þar. Síðan höfðu fjórir aðilar annast afgreiðslu Olís á þessum stað þar til Haukur og Ásdís tóku við umboði Olís 1988 og hafa síðan rekið staðinn af myndarskap þó húsakosturinn hafi löngu verið kominn á tíma.
Margmenni fylgdist með þegar verið var að rífa skálann.





Skrifa athugasemd