Mars
Davíð Sveins. og lúðan góða (mynd:Gísli Örn Reynisson)
Davíð Sveins. og lúðan góða (mynd:Gísli Örn Reynisson)

31.03.2004 Mars

Lúða var það heillin

Vetrarvertíð er nú í fullum gangi, en ekki hefur verið neinn óhemju kraftur í veiðum netabáta undanfarið. “Menn hafa getað hvílst þokkalega á milli túra” sagði einn glaðbeittur sjóari af yngri kynslóðinni í gær. Á þriðjudaginn voru vertíðarbátar að landa flestir um og yfir tíu tonnum hver. Áhöfnin á Hafdísi fékk þó skemmtilegan glaðning í netin í gær, en þar var á ferðinni lúða sem vóg 129 kíló. Þetta var mikill happadráttur sem sýnir og sannar að það er líf í strákunum á Hafdísinni. Nú verður spennandi að fylgjast með hvort unglingarnir á Hafdísinni haldi sínu striki og innbyrði fleiri lúður á vertíðinni.

Veðurhorfur á miðunum næsta sólarhringinn gera ráð fyrir SA 10-15 m/s og þokusúld með köflum, en SA og A 5-10 m/s eftir miðnætti. Á fimmtudag er gert ráð fyrir SA og A 10-15 m/s, en heldur hægari vestur af landinu. Veðurspáin fyrir föstudag er SA 13-18 m/s, en 8-13 m/s fyrir norðan land.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica