Sýnt í Nýheimum
Í kjölfar sameiginlegra þemadaga Nesja- og Hafnarskóla í síðustu viku hefur hluti af sýningunni sem var í Mánagarði verið færður í Nýheima. Sýningin verður uppstilt í Nýheimum fram á föstudag og er því kjörið tækifæri fyrir þá sem ekki komu í Mánagarð að kíkja við og sjá vinnu nemenda. Í vikulok er stefnt að því að dreifa bæklingum á öll heimili í sýslunni þar sem kemur fram hvar hægt er að losa sig við ýmislegt til eyðingar eða endurnýtingar.
Bæklingurinn var unnin af nemendum 7. bekkjar Hafnarskóla í þemavikunni.
Nemendur skólanna hönnuðu líka skilti sem fest hafa verið á ljósastaura við Hafnarbrautina og að lokum má benda fólki á að innkaupapokar hannaðir af nemendum skólanna eru til sölu í Hafnarskóla.





Skrifa athugasemd