Ferðafélagið fer með rekstrarvörur inn í Kollumúla.
Nokkrir félagar úr Ferðafélagi Austur-Skaftafellssýslu fóru um tvær síðustu helgar á jeppum inn í Kollumúla. Ekið var upp eftir Jökulsárgljúfrum en leiðin þarna inn eftir gljúfrinu er aðeins fær við sérstök veðurskilyrði sem helst skapast á vorin og haustin. Slík skilyrði sköpuðust núna um daginn og er Ferðafélagið ásamt nokkrum jeppamönnum búið að fara þarna tvær ferðir inneftir með gas og aðrar rekstrarvörur.
Rannveig Einarsdóttir var ein þeirra sem fóru í Kollumúla og segir hún að ferðin hafi verið alveg stórkostleg. “Leiðin þarna inneftir gljúfrinu er mjög mikilfengleg og menn og STÓRIR jeppar verða agnarsmáir í samanburði við umhverfið og náttúruöflin sem þarna ráða ríkjum. Þetta er algjör tröllavegur, mikið stórgrýti og svo hyljir sem þarf að þræða hjá en þetta var óskaplega gaman og spennandi að fara þetta”.
Það er ekki alltaf auðvelt að komast inn í Kollumúla og þegar eitthvað þarf að framkvæma þarna innfrá þarf mjög oft að bera allt sem til þarf ofan af Illakambi sem er 40 mínútna gangur og bratt á köflum. Það kemur sér því ótrúlega vel fyrir okkur þegar færi gefst að koma rekstrarvörum þarna inneftir eftir öðrum leiðum segir Rannveig. Þær leiðir eru að flytja vörur inn eftir með þyrlu sem oft hefur verið gert og keyra inn eftir gljúfri Jökulsár á jeppum og til baka höfum við tekið ýmiskonar rusl sem safnast hefur saman þarna innfrá í gegnum árin og er stærra en svo að menn beri það til byggða. Þessi leið er á köflum mjög grýtt og stórvarasöm. Menn ættu því alls ekki að fara þarna inneftir á bílum nema undir leiðsögn kunnugra.





Skrifa athugasemd