Mars
Sigurlaug afhendir Karli Guðna Kvískerjabók og verðlaunaskjal
Sigurlaug afhendir Karli Guðna Kvískerjabók og verðlaunaskjal (mynd:Ragnar Frank)
Sigurlaug afhendir Karli Guðna Kvískerjabók og verðlaunaskjal (mynd:Ragnar Frank)

29.03.2004 Mars

Karl Guðni fékk verðlaun fyrir tillögu að merki Kvískerjasjóðs

Verðlaun fyrir tillögu að merki fyrir Kvískerjasjóð var afhent við hátíðlega athöfn í Freysnesi í Öræfum í gær og hlaut þau Karl Guðni Kristjánsson á Höfn. Sigurlaug Gissurardóttir formaður sjóðsins afhenti Karli Guðna áritað eintak af Kvískerjabók í viðurkenningarskini. Nemendur 10. bekkjar í Heppuskóla á Höfn í Hornafirði fengu það verkefni að gera tillögur að merki fyrir Kvískerjasjóð. Undir handleiðslu kennara síns, Árna Péturs Hilmarssonar, hönnuðu þau nokkrar tillögur. 4 nemendur voru síðan valdir til að vinna áfram með sínar tillögur.

Að lokum var það tillaga Karls Guðna Kristjánssonar sem varð fyrir valinu. Fjórmenningarnir fengu afhent áritað, innrammað viðurkenningarskjal sem þakklætisvott fyrir vinnu sína.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica