Motorcross á Hornafirði
Hópur áhugamanna á Hornafirði hefur sótt um aðstöðu fyrir torfæru-bifhjólahóp (motorcross) til Bæjarráðs Hornafjarðar. Við erum að leita eftir hentugu svæði þar sem við getum komið upp æfingabraut og aðstöðu fyrir þetta sport, stað þar sem ekki er hætta á að við verðum fyrir mönnum eða dýrum segir Guðni Þór Valþórsson sem er einn þeirra sem stendur fyrir stofnun bifhjólafélags á Hornafirði.
Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur hefur skoðað nokkur svæði sem mögulega koma til greina og segir hann að það muni skýrast á næstu dögum hvaða svæði verði fyrir valinu. Guðni segir að ráðamenn bæjarfélagsins hafa tekið þessu máli mjög vel og lögreglan hér er búin að sýna þessu alveg ótrúlega mikinn skilning og vera samvinnuþýð.
Í bifhjólafélaginu eru 20 manns og von er á fleirum í hópinn í vor og sumar og reiknar Guðni með því að í haust verði félagar um 30. Í sumar og vetur verður unnið að því að gera æfingabraut og koma upp þeirri aðstöðu sem til þarf en það er mikið verk að útbúa svæðið svo það uppfylli allar kröfur.
Guðni segir að félagið muni leggja mikla áherslu á umferðafræðslu og bætta umferðarmenningu sinna félaga. Í reglum okkar verður að enginn fari inn á æfingasvæðið nema hann sé í viðeigandi alklæðnaði og það verður algert skilyrði. Þetta er öryggisfatnaður sem er nauðsynlegur öllum þeim sem þetta sport stunda og eitthvað nota bifhjól, þetta verður ein af reglum félagsins öryggisins vegna”. Búnaðurinn kostar á bilinu 70 til 140 þúsund krónur.
Bifhjólafélagsskapur í landinu er ört vaxandi og eftir tvo mánuði verður bifhjólakeppni á Kirkjubæjarklaustri þar sem skráðir eru 300 keppendur. Meðal keppenda þar er Hornfirðingurinn og rallýkappinn Sigurður Gunnar Jónsson sem einnig var með í keppninni í fyrra.
Þeir sem að stofnun bifhjólafélagsins standa eru Guðni Þór Valþórsson, Ágúst Ágústsson og Sveinn H. Friðriksson.





Skrifa athugasemd